Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 22

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 22
54 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ hún Margréti og öllum norðlenzkum ljósmæðrum fyrir sérstaklega myndarlegan undirbúning og móttökur og af- lienti Margréti að gjöf frá félaginu þjóðhátíðarplatta 1974, og Norðurlandsdeild gestabók. Gat hún þess síðan að hér væri stödd Steinunn Hjálmarsdóttir frá Reykhólum, sagði að það væri öllum sérstök ánægja að hún sæti þennan fund með okkur. Því næst bað formaður fundarkonur að rísa úr sætum og minnast með virðingu og þökk þeirra ljósmæðra er látizt hefðu á árinu. Þá sagði formaður að hér á fundinum væru staddar tvær ljósmæður sem væru búnar að starfa í tugi ára. Væru þetta Ingibjörg Einarsdóttir, Engihlíð, Árskósströnd og Guðbjörg Kristinsdóttir, Siglufirði, og á þessum fundi gerði LMFÍ þær að sínum heiðursfélögum. I þessu tilefni afhenti formaður þeim fagra blómvendi og fór þakkar- og viðurkenningarorðum um þeirra langa og gæfuríka starf í þágu þjóðfélagsins og sem hinn ágæti félagi í LMFl. Yrði þeim síðan sent heiðursskjalið. Fundarstjórar voru Ása Marinósdóttir og Valgerður Guðmundsdóttir, fundarritarar: Vilborg Einarsdóttir og Freydís Laxdal. Ása Marinósdóttir tók síðan við fundar- stjórn. Byrjaði hún að lesa dagskrá fundarins. I. Fundargerð síðasta aðalfundar: Fundarstjóri bar það undir atkvæði fundarins hvort ekki mætti sleppa því að lesa fundargerðina til að spara tíma. Hún væri búin að koma í ljósmæðrablaðinu, og ef- laust allar búnar að lesa hana þar. Engar athugasemdir bárust og var það samþykkt einróma. II. Skýrslan: Einnig las formaður umsögn LMFÍ um fóstureyðingar og ófrjósemiaðgerðir, dags. 21. janúar 1974, og sent var heilbrigðisráðuneytinu.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.