Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 23
L J ÓSMÆÐR ABL AÐIÐ
55
Fundarstjóri þakkaði formanrii skýrsluna og taldi að
mikið starf hefði verið unnið. Gaf síðan orðið laust til að
ræða skýrsluna. Var skýrslan síðan borin undir atkvæði
fundarins og samþykkt samhljóða.
III. Reikningar félagsins:
Gjaldkeri, Agnes Engilbertsdóttir, skýrði í stórum
dráttum reikningana, sagði að allar fundarkonur væru
með reikningana prentaða, og yrðu þeir síðan bornir undir
atkvæði áður en fundi lyki.
IV. Reikningar Minningarsjóðs Ijósmœðra:
Sigurbjörg Guðmundsdóttir las reikningana og skýrði.
Bar síðan fundinum kveðju frá Helgu Níelsdóttur. Reikn-
ingarnir voru síðan bornir undir atkvæði fundarins og
samþykktir samhljóða.
Reikningar Minningarsjóðs Þuríðar Bárðardóttur:
Kristín I. Tómasdóttir talaði þar fyrir hönd Jóhönnu
Þorsteinsdóttur. Sagði hún að ákveðið hefði verið að veita
styrk úr sjóðnum, sem eru vextir af inneign, kr. 4.470,00,
Krislaugu Tryggvadóttur, Halldórsstöðum, Bárðardal,
sem hefur starfað sem ljósmóðir í 35 ár.
V. Skýrslur deildanna:
Fyrst gerði Margrét Þórhallsdóttir grein fyrir störfum
Norðurlandsdeildar. Aðalfundur var haldinn fyrir árið
1973, 27. júní 1973. Fjórir fundir voru haldnir og fjórir
stjórnarfundir. Basar var haldinn 10. apríl. Var ágóðinn
af honum kr. 46.570,00. Hluta af þeim peningum ákvað
deildin að nota til undirbúnings aðalfundar LMFl, sem þá
hafði verið ákveðið að halda á Akureyri að uppástungu
Norðurlandsdeildar.
Fyrir hönd Suðurlandsdeildar var mætt Elín Stefáns-
dóttir. Þar voru haldnir tveir fundir, basar var haldinn