Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 24
56
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
og ágóði af honum, kr. 24.000,00 var gefinn Fæðingar-
deild Sjúkrahúss Selfoss.
Kristín Ólafsdóttir mætti fyrir Vestfjarðadeild. Sagði
hún starfsemi þar litla. Kvaðst hún vera flutt þaðan til
Akraness, en þar væri áhugi fyrir að stofna deild fyrir
Suðvesturland.
Formaður þakkaði fulltrúunum fyrir skýrslurnar, sagði
einnig að Vilborg Einarsdóttir, ljósmóðir, Hornafirði hefði
áhuga fyrir að stofna Austurlandsdeild.
VI. Nœstur kom gestur fundarins,
Reynir Tómas Geirsson.
Flutti hann mjög fróðlegt erindi um fóstureitrun hjá
barnshafandi konum, orsakir hennar og afleiðingar.
Einnig ræddi hann um heilsugæzlu og mæðraeftirlit um
meðgöngutímann. Að erindinu loknu þakkaði fundarstjóri
Reyni fyrir hans góða erindi.
Kaffihlé.
Fundur settur að nýju. Tók þá við fundarstjórn Val-
gerður Guðmundsdóttir.
VII. Gjaldskrá Ijósmœðra:
Formaður tók til máls, sagði fyrst að ekki hefði komið
út lögfest gjaldskrá síðan 1955. Hins vegar hefði félagið
búið sér til gjaldskrá 1962. Sagði hún frá fundi sem hún
sat með samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins á s.l.
ári, þar sem lögð var fram tillaga stjórnar LMFl um nýja
gjaldskrá. Málalok urðu þau, að tillaga stjórnar LMFÍ
var samþykkt og lögfest. Formaður las síðan nýútkomna
gjaldskrá er heilbrigðismálaráðuneytið hefur gefið út og
birt í Lögbirtingarblaðinu.
Orðið laust.
Fríða Einarsdóttir lýsi ánægju sinni með þennan árang-