Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 29

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 29
LJÓSMÆÐKABLAÐIÐ 61 stoð ljósmæðra við hjúkrun aldraðra. Óskar hann eftir að fjárhæð þessari verði varið, helzt til utanfarar þeirrar ljósmóður, sem kynna vildi sér málefni aldraðra. Einnig gjöf frá Magnúsi Jónassyni, Vestmannaeyjum: Fimm skuldabréf LMFl, sem gefin voru út til kaupa á sumarbústaði ljósmæðra að Munaðarnesi, að upphæð kr. 1000,00 hvert bréf. Lýsti formaður þakklæti sínu til þess- ara manna, fyrir þessar góðu gjafir, og ekki síst þann vinarhug, er þeir sýndu félaginu. Margrét Þórhallsdóttir þakkaði gjafir þær sem for- maður hafði áður afhent henni. Einngi þakkaði hún öllum fyrir komuna, og sérstaklega ánægjulegan fund. Formaður endurtók að lokum sérstakt þakklæti til Norðurlandsdeildar fyrir allan undirbúning fundarins, öll- um fundarkonum fyrir ánægjulegan fund og sagði að þessi fundur yrði lengi í minnum hafður. Á fundinn voru mættar 81 ljósmóðir. Fundi slitið. Vilborg Einarsdóttir ritari. Leiðrétting Eins og fram kemur í aðalfundargerð, var í síðasta blaði rangt farið með heiti á ljóði Davíðs Stefánssonar, það heitir Fjallkonuljóð. Einnig var nafn söngvarans rangt. Hann heitir Birgir Marinósson.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.