Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1911, Blaðsíða 4

Freyr - 01.02.1911, Blaðsíða 4
FREYK. 18 arnir, sem ávalt eru stærri og fleiri eD karl- maurarnir, eiga 20—24 egg hver, og ungast þau út á 4—7 dögum við hitann úr húð- inni. Utan um eggin er skurn úr ákaf- lega þóttu og haldgóðu efni (chitin), sem þolir sérlega vel áhrif allra hinna venjulegu baðlyíja, og geymir ágætlega ungans, sem innan í er. Úr því unginn er kominn út úr egginu’ líða 14—17 dagar, þangað til hann er orðinn fullþroskaður og fær um að auka kyn sitt. Á hverri kláðakind er ávalt mesti sægur af maurum og mauraeggjum og varla er það hugsanlegt að nokkur sú kind, sem maur er á og það þótt maurinn sé nýskriðinn á hana, sé eggjalaus, því að frjósemin er ákafleg og eggja- viðkoman afar-ör. Hver kind, sem grunuð er 'um að hafa á sér kláðamaur, verður því um leið grunsóm að því er snertir maura-egg. — Um lif- seigju mauranna utan kindar er áður getið, en um eggin er það að segja, að þau geta haldið sér 2—3 vikur og ef til vill stundum miklu lengur í raka, en aðeins vikutíma í þerri. Til þess að lækna kláðakind þarf að losa hana við alla þá maura og mauraegg, sem á henni eru. Þá hatna hrúður og sár af sjálfu sér. Verði svo séð um að á hana berist ekki nýir maurar eða ný egg, íær hún aldrei kláða framar. Með baðlyíjunum reynum vér að drepa maurana á fónu, en með hreinsun húsanna og einangrun fjárins er reynt að koma í veg fyrir að féð sýkist að nýju. Ef jafn hægt væri að drepa maura og egg á kindinni, þyríti ekki nema eitt gott bað, því að það vita menn að drepa má með einu baði alla þá maura, sem á kindinni eru, þegar hún er böðuð. En því raiður eru eggin verri við- fangs og kemur það af þvi, að baðefnið kemst ekki gegn um eggjaskurnið inn til ungans, nema ef til vill á elztu eggjunum, sem komin eru svo langt að unginn fer að skríða út og skurnið er því farið að bila. Úr vanalegu kláðabaði, sem drepur alla maurana, komast því flest eggin lífs af og halda áfram að vera á kindinni þangað til þau ungast út. Til þéss ganga eftir því sem áður er sagt 4—7 dagar og eftir þann tíma er því kindin, sem virtist alveg heilbrigð rétt eftir baðið, orðin aftur krök. I>á líða 14—17 dagar þangað til þessir nýju maurar eru orðnir kynþroska og farnir að verpa eggjum. Sé nú kindin ekki böðuð aftur innan þess tíma að nýju eggin koma til sögnnnar, heldur kindin áfram að vera kláðakind og lækn- ingin hefir því ekki verið fólgin í öðru en að drepa þá ruaurakyuslóð sem var á kindinni fyrir haðið. Ef kindin aftur á móti er böðuð í annað sinn áður en ný egg koma, en þó ekki fyr en vissa er fyrir því að öll eggin, sem sluppu lifandi úr baðinu, eru unguð út, orðÍD að maurum, þá fæst nokkurnveginn full vissa fyrir því að kindin sé al-læknuð, ef bað og böðun hefir verið í lagi. En að eitt hað al- lækni kláða er jafn sennilegt og að ekki komi aftur vatn í brunu, sem einu sinni hefir verið þurausinn, án þess þó að tekið hafi verið fyrir uppsprettuna. Ef lækna á kláða, verður að taka . fyrir „uppsprettuna11; eggin verður að drepa, en það er ekki gjörlegt öðru vísi en með því að bíða eftir því að þau ungist út og drepa síðaa alla ungu maurana áður en þeir komast tíl þroska. Eitt kláðabað er því hreinasta kák eða. öllu. heldur fjarstæða og þetta mátti löggjöfunum 1903 vera kunnugt, því að þetta hefi eg reynt að gjöra mönnum skiljanlegt síðan 1897 og sér- staklega tók eg það skýrt fram í Isafold 20, júní 1903, rétt fyrir kláðaútrýmingarþingið, þar sem eg komst svo að orði: „Að fyrirskipa eitfc bað á kláðafé, er kák, og að fyrirskipa eitt bað á fé, sem gruoað er um kláða, er líka kákr því hafi kindin kláða, læknar eitt bað yfir höf- uð ekki, en hafi hún ekki kláða, er kláðabað' óþarft.“ Og um þingtímann (ísafold 19. ág.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.