Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1911, Page 8

Freyr - 01.02.1911, Page 8
\ f’EEYE. 22 báðlyf, þegar hið opinbera fyrirskipar kláða- baðanir. Akvæði þetta er ágætt ef vel er á haldið, en getur orðið hið versta átumein lands- sjóðs, ef það er óviturlega notað. iPað má ekki nota það að neinu ráði nema þegar gjorð er gagngjör atlaga til útrýmingar kláðanum. Eg verð beinlínis að telja það óforsvaranlega með- ferð á landssjóðsfó, ef hér eftir yrði haldið á- fram þeim uppteknum hætti, að lögskipa bað- anir á svæði og svæði, einni eða tveim sýslum á ári, þegar það er orðið fullvíst, að kláðinn er svo að segja í öllum sýslum landsins. Slíkar fyrirskipanir kosta auðvitað stórfé, en koma alls ekki að tilætluðum notum, því að kláðinn berst hæglega á næsta vori eða sumri inn í sýsluna aftur, svo að óhjákvæmilegt yrði að baða þar aftur á ný að einu eða fám árum liðnum. Yrðu útgjöld landsjóðs til þannig lagaðra kláðaráð- stafana að öllum líkindum óendanlegá mikil og það þótt baðað væri tveim böðum. J?að þýðir lítið að lækna og úrýma kláða í einni og einni sýslu í einu, þegar ekki verður sé fyrir því, að hann berist ekki þangað aftur jafnharðan. En út yfir tekur, ef ekki yrði úr þessu hætt að fyrirskipa einfóld kláðaböð, hvort heldur er á litlú svæði eða öllu landinu í einu, því að þótt slíkar ráðstafanir séu stílaðar gegn kláðanum, þá eru þær þó í raun og veru konum óvið- komandi og þegar litið er til þess, að lögin frá 8. nóv. 1901 eru eingöngu stíluð gegn fjár- kláðanum, verð eg að álíta það beint lagabrot (brot gegn anda laganna), að borga fó úr lands- sjóði fyrir baðanir, sem hvorki miða að þvi að lækna kláðann né útrýma honum. Það hefir aldrei verið ætlast til þess að landssjóður borg- aði þrifaböð fyrir bændur, en eitt einstakt bað getur verið þrifabað, en er aldrei fulltrygt til þess að lækna kláða. Fyrirskipi hið opinbera hér eftir baðanir samkv. áðurnefndum lögum og leggi til baðefni fyrir landsfé, þá verður það að lögskipa tvennar baðanir (kláðabað); annars- verður að álíta sem stjórnin hafi gefið viðkom- andi bændum fé til þrifabaðs, og ætti það að vera landssjóði óviðkomandi. Þegar tilrætt hefir verið um það, hverra ráða alþingi nú *ætti að leita til þess að vinna á fjárkláðanum, hefi eg heyrt oft, og marga inerka menn halda því fram, að eina ráðið muni vera það, að samin séu ný kláðalög, sem fyrirskipi eitt árlegt bað um land alt í næstu 5—10 ár. Eg skal nú strax geta þess, aðeghefisíð- ur en svo neitt á mót.i þvi, að hér á landi sem nær allstaðar annarstaðar komist sú regla á, að alt sauðfé só baðað þrifabaði á hverju ári, enda er eg þeirrar trúar, 'að svo verði áður langt um líður, því að alment eru menn að verða betur og betur sannfærðir um það, að slík þrifaböð séu eigi aðeins sjálfsögð skepn- anna vegna, heldur gefi þau lika svo mikinn beinan og óbeinan arð, að kostnaður við baðið fáist margborgaður aftur í aukinni og betri ull og bættum þrifum. Jafnskjótt og bóndinn er kominn að þeim sannindura, að hann beint græði á þrifabaði, og þau sannindi eru nú orð- ið eign alls þorra þe.irra, þá mun sizt þurfa að þröngva þeim með lagarefsingum til þess að vinna að -sínum eigin hag. Og þegar það er orðið almenningaálit, að sjálfsagt sé að þrifa skepnur sínar árlega, þá verða þeir ekki marg- ir, sem brjóta móti þvi. Þrifaböð eiga að verða og hijóta að verða almenn, en eg tel ekki standa á sama, á hvern hátt þau verða það, hvort þau hvíla á sannfæringu innan að og, neðan að eða þau eiga að berast uppi af laga- boðum utan að, og ofan að. Erá mínn sjónar- miði geta lög um þrifaböð, nú orðið að minsta kosti, tæplega talist sæmileg eða þá heppileg. Allt öðru máli skiftir þegar ræða er um óvanalegar ráðstafanir likar þeim, sem gjöra þarf um fjárkláða, þar sem alt er undir því

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.