Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1911, Qupperneq 12

Freyr - 01.02.1911, Qupperneq 12
-26 FREYR. úr kaupavinnunni á haustin, heldur en þegar eg hyrjaði að vinna á sumrin. Til þess að vera mikill afkastamaður við stritvinnu, verður að hafa sæmilega góða hurði. En aí þessum þremur eiginleikum, sem eg taldi góðum verkamanni nauðsynlega, er þrótturinn sá sem hinir tveir geta að miklu leyti bætt upp. Eg hefi þekt fyrirtaks verkamenn, sem þó höfðu tæplega meðalmanns burði, en það -voru ötulir menn og vitmenn. Þeir voru fylgnir sér, verkhygnir og verklagnir. Og þá kem eg að síðasta eiginleikanum, sem góður verkamaður verður að hafa, en það er vitið. Það er löngum talað um tvennskonar erfiði, líkamlegt erfiði og andlegt erfiði. Sumir halda að þeir sem fást við andleg störf séu í raun- inni iðjuleysingjar, menn sem ekkert leggi á sig, og séu því ómagar þjóðfélagsins, landsómag- ar. Einu mennirnir sem vinni i landinu séu þeir sem stunda likamlega vinnu. En sannleik- urinn er sá, að öll andleg vinna er um leið líkamlegt erfiði og öll líkamleg vinna er jafnframt andlegt erfiði. Hvorttveggja eyðir i bili orku likamans. En hitt er satt, að munur er á þvi, hve rnikinn þátt andi manns þarf að eiga í starfinu, og við svonefnda líkam- !ega vinnu er sá þáttur minni en við andlega ^vinnu. Hverja hlutdeild á þá andi manns í lík- amlegri vinnu? Hann hngsar upp allar aðferð- ir við vinnuna, og hann stýrir hreyfingum lík- amans og handtökum. Þvi minna sem vitið er, þvi minna er að jafnaði vald mannsins yfir lík- amanum, og því óhagkvæmari allar hans að- ferðir. Aldrei hefir mér fundist það eins aug- Ijóst, að það sé andinn, sem temur líkaraa mannsins og gerir hreyfingar hans hagkvæm- ar og fagrar, eins og á fábjánastofnun einni i Kristjaníu. Eg sá þar í einum hóp eitthvað um 200 fábjána, og það sem vakti mér mesta undrun var að sjá, hve óburðugar og klaufaleg- ar allar hreyfingar þeirra voru. Valdið yfir líkamanum var svo lítið. En flestir munu þekkja nóg dæmi er sanna hið sama. Að fá- bjánar og heimskingjar eru liðléttingar til vinnu, kemur sjaldnast af því, að þá vanti líkams- krafta, heldur af hinu, að þá vantar vitið, sem þarf til þess að sjá hver aðferðin er bezt, og stýra líkamanum. Hve einfalt sem verkið er, þá getur verið munur á því hve haglega það er unnið. Nú mundú allir telja vinnulag þess manns bezt, sem ynni verk sitt bezt og á styztum tíma og með minstu erfiði. Með öðrum orðum: Hver verka- maður er því betri sem hann er vandvirkari, hraðvirkari og lagvirkari. En hvaðan kemur þá vinnulagíð, ilt eða gott? Vetkamaðurinn verður annaðhvort að læra það af öðrum, eða finna það upp sjálfur, en hvort heldur er, þá þarf hann að beita við það viti sínu. Hann verður að athuga og prófa og íhuga aðferðina, og iðka hana síðan, þangað til hann hefir náð fullri leikni. En slíkt kostar áreynslu, andlega og líkamlega, og þessvegna verður mörgum það að taka upp fyrstu aðferð sem þeir sjá, hirða ekki um það hvort hún er ill eða góð og gera sér jafnvel lítið far um að hafa hana ná- kvæmlega eftir. En þegar svo er, getur vel farið svo, að vinnulagið verði ilt, ogskynsemi- gæddum verum ósamboðið. Skynsemin er oss gefin til þess að stjórna athöfnum vorum og vísa oss beztu leið að hverju marki, og hver sera vinnur verk sitt ver og seinlegar og með meiri fyrirhöfn en hann þyrfti, et hann beitti kröftum sinum eins vel og hann hefir vit til, hann gerir sjálfum sér til skammar. Auðvitað á það aðeins við þá sem sjálfir ráða vinnuaðferð sinni. Það hefir oft verið kvartað um það af mönnum sem bezt þekkja tii og vit hafa á, að vinnulaginu hér á landi væri i mörgum grein-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.