Freyr - 01.07.1919, Page 14
76
EREYR.
getur borið. Hagi sje í bithaga böfuðbólsins.
Girða skal landsdrottinn á sinn kostnað að
helmingi við nýbýling. Eftirgjald miðist við
þann árafjölda, sem nýbýlingi er settur til
ræktunar landiuu. Sje ræktunartíminn t. d.
settur 15 ár og eftirgjald eftir nýbýlið er sett
150 kr. — þegar það er fullræktað — þá borg-
ar nýbýlingurinn 10 kr. eftir fyrsta árið, 20 kr.
eftir annað árið, 30 kr. eftir þriðja árið o. s. frv
Eftir 15. árið borgar hann 150 kr. eftir nýbýl-
ið og úr því 150 kr. árlega.
Nýbýlið sje erfðafe3tuland, þó með því
skilyrði, að ef nýbýlingurinn vill flytja sig burtu
og selja rjett sinn til nýbýlisins, þá eigi lands-
drottinn kauparjettinn á öllum mannvirkjum á
nýbýlinu eftir mati óvilhallra manna. — Að-
setursskilyrði nýbýlings sje hin sömu og í
kauptúnum.
Þetta eru aðaldrættir Dýbýlahugmyndar-
innar, eins og jeg hefi hugsað mjer þá.
Vitanlega þyrfti að búa til lög, sem trygði
rjett nýbýlings á móts við landsdrottim, og
gagnkvæmt.
Með þessu fyrirkomulagi, sem jeg hefi bent
á hjer að framan, ætti á fáum árum, að mynd-
ast fjöldi smábænda, sem væri sjálfstæðir og
óháðir, engu síður en tómthúsmenn í kaup-
stöðum og sjávarþorpum. Væntanlega gæti
þeir komið sjer upp nokkrum búpeningi, þeir
gæti að mestu leyti sjálfir yrkt land sitt og
þegar það væri alt komið i rækt, þá gætu þeir
haft á býli sýnu ca. 1 kú og 40—50 fjár. Og
þessi bústofn, i sambandi við vel launaða at-
vinnu nokkurn tíma sumarsins, ætti að vera
nægilegt til framfærslu fjölskyldu.
Þegar nýbýlingnum færi að þykja of þröngt
um sig, gæti hanu selt rjett sinn til landsins,
ásamt mannvirkjum, og tekið stærri jörð til
ábúðar og afnota.
Á meðan nýbýlingurinn heldur við nýbýli
sitt, væri hann að öllu frjálsari og sjálfstæðari,
en venjulegir leiguliðar, vegna þess, að færri
væri vítin að varast. Og jafnvel þóttþaðværi
í samningum á milli hans og landsdrottins, að
hann ynni höfuðbólinu t. d. eins mánaðartíma
að heyskap, þá gæti það als eigi talist svo
sem skerðing á frjálsræði hans — slikt hlyti
ætíð að vera bundið frjálsu samkomulagi.
Enn er eitt:
Nýbýlingurinn myndi geta skapað sjer
og fjölskyldu sinni notalegt og nægilegt viður-
væri allan ársins hring; en í það er mikið
varið. Myndi með þessu móti skapast hraust
og sveitsækin kynslóð, til blessunar landi og
lýð.
Bið jeg svo góða menn að athuga mál
mitt, breyta hugmynd minni, þar sem þess er
þörf, í sem besta átt og — framkvæma Jiana.
Á Sumardag hinn fyrsta 1919.
Guðm. Davíðsson
á Hraunum.
Nýbýli og Jarðaskifting,
Á hinum siðustu árum hefir mjög aukist
eftir spurn eftir jarðnæði, og viðast hefir geng-
ið afarilla að fá jarðir til ábúðar eða keyptar.
Af þessu hefir leitt, að margir þeir er búa
vildu i sveit hafa orðið nauðugir, viljugir, að
hröklast í sjóþorp og kaupstaði, og selja þann
bústofn sem þeir áttu að miklu eða öllu leiti.
— Þessi jarðnæðisvöntun hefir enn fremur verið
orsök þess, að allar jarðir, sem seldar hafa
verið á síðustu árum, hafa afskaplega hækkað
i verði, svo að litlar, og hálf niðurníddar jarð-
ir, eru seldar og keyptar miklu hærra verði,
en góðu hófi gegnir og komnar upp fyrir það,
sem búast má við, að jarðirnar renti sig, jafn-
vel í betri árum.