Freyr - 01.07.1919, Qupperneq 18
80
FREYE.
tækja og heyhitamæla á Sambandssvæðinu.
5. Samþykt íjárhagsáætlun fyrir árið
1919, áætlaðar tekjur kr. 6770,00, útgjöld kr.
5330,00.
6. Samkvæmt lögum Sambandsins átti
formaður þess, sira Sigurður Stefánsson að
ganga úr stjórninni og baðst hann undan end-
urkosningu.
Fulltrúi Mýrahrepps mælti þá, sumkvæmt
ósk fulltrúanna, nokkur þakklætisorð til for-
mannsins fyrir mjög góða starfsami hans fyrir
Sambandið, frá því það var stofnað og stað-
festu fulltrúarnir það með því að standa upp.
l>akkað formaður fyrir og árnaði Sambandinu
allra heilla og þakkaði fulltrúunum góða sam-
vinnu.
Formaður var kosinn Kristinn Guðlaugs-
son bóndi á Núpi, með 9 atkv.
Með því að fundinum var kunnugt um, að
gjaldkeri sambandsins, póstafgreiðslumaður
Guðm. Bergsson, mundi bráðlega flytja burt
af íssafirði, voru auk formanns kosnir í stjórn-
ina:
Sigurður Sigurðsson lögm. með 9 atkv. go
Tryggvi Pálsson bóndi á Kirkjubóli með 7
atkvæðum.
Varaformaður endurkosinn bankastjóri Jón
B Jónsson.
Sigurður Stefánsson.
8§>
Arðsamir gripir.
Nú á seinni tímum er ekki farið að telja
þann bóndann bestan búmann, sem flest hefur
búpeningshöfuðin, heldur hinn sem mestan hefir
arðin og tryggastan.
Veturinn 1916—17 átti Jón bóndi Jónsson
á Sigurðarst. 2 kýr, önnur þeirra (Bleikja) bar
siðast í janúar, en hin (Hyrna) f miðjum febr.
Þegar Hyrna bar, var Bleikja i 20 pt. á dag
og fljótlega fer Hyrna líka í 20 pt., en þeg-
ar lengra leið fer að minka í Bleikju svo hún
fer niður i 19 pt. og svo í 18, en Hyrna
hækkaði sig í 21 pt. og mest dagsnit var i
henni 221/, pt. og því hjelt hún á sjer þar
til 6 viknm eftir burð.
Ársmjólk úr Hyrnu hefir verið um 4500
p. t. en Bleikju um 4000 p. t. Þegar feiti
hefir verið mæld, þá hefir 1 pd. af smjöri
verið úr 12—13 p. t. mjólkur. Jetið hafa þær
um 70 vættir af töðu og aðeins lítið eitt af
síldarmjöli.
Kýrnar báðar hafa verið hinir fallegustu
gripir, rauðar að lit.
Það vil jeg taka fram, að öll meðferð á
kúnum — atlot, hirðing og fóðrun, hefir ætíð
verið þar í besta lagi.
Stóruvöllum i mars 1919.
P. H. Jónsson.
Töðubrestur og fóðurbætiskaup
Merkur bóndi úr Strandarsýslu skryfar
einum af útgefandi „Preys“ (Sigurði) að þar
i hreppi (Felshreppi) hafi verið taldir fram í
haust 500 hestar af töðu, sem á sumum bæjum
var mest arfi og skarfakál, í stað 1400—1500
hesta í meðalári.
Sami hreppur keypti í haust alskonar fóð-
urbætir, sild, síldarmjöl og lýsi fyrir á fimta
þúsund krónur.
Til kanpenda „Freys“
Um leið og það tilkynnist, að jeg hefi nú
selt þann hlut í „Frey“, sem jeg hefi átt í hon-
um frá byrjun, skal jeg hjermeð færa öllum
góðum viðskiftavinum blaðsins þakkir mínar
fyrir viðskiftin og biðja þá að snúa sjer eftir-
leiðis til hr. Sigurðar alþm. Sigurðssonar um
allt það viðvíkjandi biaðinu, sem þeir áður
áttu við mig um.
Rvík. 1. júlí 1919.
Magnús Einarsson.
Leiðrjetting.
Freyr 16. ár, nr. 5, bls. 56 (siðari dálki),
16. linu: moðsuðu les matsuðu; 19. linu: —
falli burt; 19. línu (snúa) les (snúa).
$>