Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1920, Blaðsíða 8

Freyr - 01.07.1920, Blaðsíða 8
79 FREYR liöfuöorsökin til þess, aö hiti hleyp- ur i hey, sje sú, að o f m i k i 8 v a t n sje í heyinu, þegar það er boriS saman. Þetta hefir mönnum veriö ljóst um langan aldur, og því keppst við aö fá hey sin sem þurrust í garö. í skrauíþurru heyi hitnar lítiö sem ekkert, en hitinn og skemdirnar veröa því meiri sem heyiö er ver þurt, þegar þaö ar boriö saman. Þó er þaö ekki vatniö í heyinu, sem hitanum kemur af stað, heldur verkanir af öörum rótum runnar; en vatnið er skilyrði þess, aö verkanir þessar geti byrjað og haldiö áfram, svo hiti myndist í heyinu. Frumorsakir heyhitans eru margbrotnar og langt frá því, að það mál sje rannsak- að til hlítar. Leiði jeg hjá mjer að mestu þá hlið málsins. í heyverkunargrein sinni hefir hr. Halldór Vilhjálmsson skýrt frá því helsta, er rannsóknir hafa leitt í ljós um þetta efni. Það er talið að ö n d u n h e y s i n s, smáv’er u-g r ó ð u r (bak- teríur og sveppir) í heyinu og að síðustu kemiskar eí ri’a breytingar eigi mestan þátt í myndun heyhitans og skemd- um þeim, er af honum leiða. Það er varla líklegt, að öndun heysins hafi hjer mikið að segja. Að minsta kosti hitnar fullum fetum í heyjum, þó telja megi víst, að heyið sje að fullu dautt og hætt allri öndunarstarfsemi. Þannig getur hitn- aö í fornum heyjum, sem vatn kemst í. Einnig hleypur hiti, sem án efa er af sömu rótum runninn, í deigt hrossa- og sauða- tað, sem borið er saman í hauga og gryfj- ur, og getur hitinn orðið svo mikill, að t því kvikni. Einnig hitnar í ull, dún o. fl., sem sett er deigt saman í hrúgur. Smáverugróðurinn (gerlar og sveppir) í heyinu og efnabt eytingar þær, er hann kemur af stað, beint og óbeint, mun mestu valda um heyhitann, eins og Halldór skóla- stjóri bendir á. En smáverur þessar þurfa vatns meö, til þess að geta. þróast og starfað. Sumar þessar smáver- ur þurfa loft eða súrefni, til þess að geta þrifist (Aárobionter), t. d. heygerillinn (Bacillus subtilis) o. fl.; aðrar þrífast á- gætl. án súrefnis (Anaerobionter) og dafna vel, eða hvaö best, þar sem loft kemst ekki að, t. d. ýmsir myglusveppir, og margar bakteríur og sveppir er gerð og hita valda. Það er og kunnugt, að efnabrigði fara fram í plöntum sem sviftar eru lofti og súrefni, er svipar til eðlilegrar öndunar (selvgæring eða intra-molekulær öndun). Af efnum í plöntunum sjálfum myndast þá kolsýra og vínandi og framleiðist jafn- framt nokkur hiti. — Það er því hæpiðr að hægt sje að koma í veg fyrir hita í heyi meö öllu, við venjulega þurkhúsverk- un, þó aðstreymi lofts og súrefnis sje tak- markað. Þar sem Halldór Vilhjálmsson talar um varnir gegn hita í heyjum, telur hann það mjög áríðandi að vama lofti að komast að heyinu, til þess að komast hjá efnabruna og tjóni því, er af honum hljót- ist. Samkvæmt þessu mælir hann á móti svonefndum s t r o m p u m og m j ó u m geilum i stórum heystæðum, þær auki inn- streymi loftsins í heyið og auki heyhitann. Hann ræður til að greiða baggana sem best í sundur, jafna heyið og t r o ð a þ a ð, svo sem m i n s t 1 o f t verði í því. Einnig hyggur hann, að f a r g muni draga úr eða varna heyhitanum, því það þjappi loftinu úr heyinu og hindri inn- streymi þess í heyið. Það eru einkum þau atriði, sem hjer eru talin, sem jeg vil gera athugasemdir við. í grein höfundarins eru ýmsar góðar bendingar og athuganir, er mjer virðast mæla móti þessum kenningum. Þannig get-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.