Freyr - 01.01.1924, Blaðsíða 16
10
F R B Y R
þrýfst heldur ekki, enda kunna Norðmenn
því yflrleitt illa, að hafa ekki full eignar-
ráð á jörðum sínum. Aðalskógana verður
og vill ríkið samt eiga, þó stofnuð verði
býli í þeim. Með því verndast þeir best
frá eyðileggingu, og ríkið getur þá styrkt
landnema á mjög heppilegan hátt með
að veita þeim atvinnu við skógarvinnu á
veturna.
Fiskveiðar eru miklar við Finnmörk,
veiddist árlega fyrir 6—23 miij. króna á
árunum 1917—22. Er mikill áramunur og
arðurinn misjafn. Fyrir stríðið voru mikil
viðskifti við Norður-Rússland, og var sjó-
mönnum og fylkinu í heild sinni mikill
arður að þeim viðskiftum. Leiddi ýms
vandræði af því er þau viðskifti þrutu.
Vill oft verða þröngt í búi hjá mönnum
við sjávarsíðuna, er útvegurinn bregst á
einn eður annan hátt. Hefir þetta vakið
mjög áhuga á því að efla landbúnaðinn
þar norður frá.
Hreindýrarækt hefir lengi verið mikil
á Finnmörk, helmingur allra norskra Lappa
búa þar, og 4/5 a^ra »fjalla-Finna« — en
fjalla-Finnar nefnast þeir Lappar, er ein-
göngu stunda hreindýrarækt. Fjalla-Finn-
ar í Finnmörk eiga rúmlega 2/3 hluta af
tömdum hreinum í Noregi.
Kautokeino og Karasjok eru aðal-hrein-
dýrasveitirnar, eru í þeim sveitum ca.
80000 hreindýr. Þessar sveitir eru báðar
á hásléttunum, og er litið um landbúnað
á þeim slóðum, en þó nokkuð í Karasjok.
Námur eru allmiklar víða á Finnmörk,
kveður mest að járnnámunum í Varangri,
vinna þar 11—1400 manns.
Veðráttan er öllu betri en ætla mætti
eftir legu Finnmerkur, enda benda skóg-
arnir á það, að ekki só mikill heimskauta-
blær yfir landinu, Meðalhiti 1841 — 1890
var í júlí -f 8,6—12,5° C, og í janúar -4-
3,1—15,8° C. Sumarhitinn verður stund-
um -j- 30° og vetrarkuldinn 40—50° (í
fjallasveitunum). Inn til landsins er stað-
viðrasamt og úrkomur litlar — 300—440
m.m., út við ströndina er stormasamt og
úrkomur meiri, en þó eigi miklar, ca. 600
m.m. á ári.
Það sem mest háir framförum á Finn-
mörk, er vegaleysi og örðugar samgöng-
ur, en eftir þ?í, sem bætt verður úr því,
mun búnaðarmenningin breiðast út og
festa rætur.
1918 var stofnaður búnaðarskóli í Tana
í Finnmörk. Verður skólans og jarðrækt-
artilraunanna þar norður frá, ef til vill,
getið nánar BÍðar.
A. G. E.
Húshitun með hveravatni.
Á nokkrum stöðum á landi hér hefir
hveravatn verið leitt í hús og notað til
hitunar. Mun hitaleiðslan í verksmiðjuna
Álafoss kunnust.
Fram að þessu hefir þó orðið ráða vant
að nota hveravatnið til hitunar þar sem
hverir liggja 1 æ g r a en húsin er hita
skal.
Nú hefir Sveinbjörn Jónsson bygginga-
fræðingur á Akureyri leyst þá þraut á
afar auðveldan og snjallan hátt:
Kalt vatn er leitt frá stað er liggur
h æ r r a en húsið, og í hverinn, eða þró
sem bygð er við hverinn. Þar er vatns-
leiðslan síbeygð í hringa, eins marga og
þarf til þess að kalda vatnið í leiðslunni
nái sama hita og heita vatnið er leikur
um leiðsluna í hvernum. Svo er vatns-
leiðslan lögð áfram heim í húsið, og vatn-
ið notað til hitunar eins og það væri
hveravatn.
Sveinbjörn hefir á þennan hátt hitað