Freyr - 01.09.1926, Page 24
Við höfum einkasölu á
Noregssaltpétri
og umboðssölu frá Det danske Gödningskompani á Chilisaltpétri,
Superfosfati og hinum nýja þýzka Kalksaltpétri (15 V2 °/o), Kali
og mörgum fleiri áburðartegundum. — Vanalegast höfum við allar
helztu tegundirnar fyrirliggjandi á þeim tíma sem mest er þörfin fyrir
þaer, bæði hér í Reykjavík og á útbúum okkar á Isafirði, Akureyri og
Seyðisfirði. — Menn eru beðnir að gjöra svo vel og senda pantanir
sínar nógu snemma.
Við útvegum líka
Sáðhafra og Grasfræ
og viljum við benda mönnum á að senda pantanir nógu snemma.
Fóðurbæti, margar tegundir, höfum við oftast fywrliggjandi og út-
vegum hann beint ef þess er óskað.
Maísmjöl það, sem við höfum ftutt til landsins síðustu árin, hefir
reynst ágætlega; ættu því allir þeir, sem fóðurbæti nota, að gera
tilraun með þetta mjöl.
„Gauchada" gaddavírinn í 25 kílóa rúllum með rúmuin 500 metrum.
Venjulegan gaddavír líka í 25 kílóa rúllum, en með að eins 250 m.
Sléttan vír „Gorgon" í 50 kílóa rúllum með 1200 og 1600 metr-
um, höfum við oftast fyrirliggjandi.
Girðingarstaurana úr járni, sem eru einu staurarnir sem allir vilja
nota, því þeir eru margfalt sterkari og haldbetri en aðrir staurar,
og af því að þeir eru svona sterkir eru þeir líka notaðir sem
hornstaurar og þarf því ekki neina tréstaura. Vinnusparnaður mikill.
Þetta alt höfum við oftast nær fyrirliggjandi.
Höfum umboð á hinum heimskunnu
Skilvindum „Domo“ í mörgum stærðum, afar ódýrum, og á
Strokkunum „Domo“ í 4 stærðum, líka afar ódýrum.