Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1927, Page 25

Freyr - 01.01.1927, Page 25
F R E Y R 15 Iíöjlands-mjólkurbú, 1883—1924. legar byggingar fyrir búið, útbúnar með öllum nýtísku tækj- um fvrir mjólkur- meðferð, bæði smjör- og ostagerð o. Þessar byggingar og áhöld hafa kostað 750,000 kr. Eigi eru til neinar skýrslur um það hve mikla mjólk þetta mjólkurbú hefir haft til meðferðar fyrstu árin, en það var lítið til að byrja með. Arið 1890 var mjólkin .... 289.000 kg. — 1910 — — .... 2.170.000 — — 1923 — — .... 4.684.000 — Þessar tölur sýna, að mjólkurframleiðsl- an hefir aukist stórkostlega. Vér stöndum nú við lík vegamót og Norð- menn, þá þeir voru að byrja að koma mjólkurbúum sínum á fót. Umbótamögu- leikarnir eru hér meiri, í mörgum sveitum landsins, en hvort oss auðnast að fá jafn miklu eða meiru áorkað en frændur vorir, mun sjást á komandi tímum. 8. Sigurðsson. Efri-Hvoll. Rjörgvin Vigfússon og Ragnheiður Ein- arsdóttir, eru þau einu sýslumannshjón á landinu, er ávalt hafa stundað landbúnað. Meðan Björgvin hélt Skaftafellssýslu, bjó hann að Höfðabrekku. Heimili þeirra hjóna, El'ri-Hvoll í Rangárvallasýslu, ber á sér mikinn myndarblæ, bæði utan húss og innan og hefir tekið miklum stakka- Fyrsta og síSasta byggingin. skiftum í tíð þeirra hjóna. Túnið stækkað um 10 ha. (30 dagsl.), er það með feg- urstii túnum á landinu. Byggingar reisu- legar og vel gerðar. Síðast er þar bygt fjós fyrir 10 kýr með haughúsi, alt úr stein- steypu með járnþökum, mjög vandað. Fén- aður er þar góður, sauðfé vænt og ræktað meira en gerist alment, nautpeningur mjög vænn og' afurðamikill. Kýrnar fá tóma töðu, þó mjólkuðu þær þar til jafnaðar síðasta ár, 2851 lítra með 3,48% litu og geldstöðu- tími var til jafnaðar 3 vikur. Heyeyðslan var um 28 hestar af töðu (pr. 100 kg.) á kú. Með 30 aura verð á líterinn varð hreinn arður af kúnni 425 krónur. Sýslumaður hefir altaf uxa, sem hann beitir að vetrin- um, og telur arðvænlegt. Björgvin cr einlægur áhugamaður uni al- mennar framfarir og þá fyrst og fremst héraðs síns og hefir átt mikinn þátt í fram- förum þess síðan hann kom þangað. Berst hann nú fyrir því, að komið sé upp s.kóla í héraðinu, í lýðháskólaformi, verði hann settur á jörð sýslunnar, Stórólfs- hvol, og samhliða verði hafin ræktun á Hvolsvelli, sem er mjög vel fallinn lil rækt- unar.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.