Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 52

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 52
ELANCYL KREM FYRIR SLIT HVAÐ ER SLIT? Slit á húð kemur ottast fram sem bleikar eða rauðleitar rákir á yfirborði húðarinnar. Algengast er að sjá þessar rákir á maga en einnig eru þær algengar á mjöðmum, efst á lærum og á brjóstum. Húðslit getur myndast vegna of mikillar strekkingar á húð t.d. við meðgöngu, viö of mikla þyngdaraukningu eða of hraða grenningu. Framleiðsla vissra tegunda hormóna á meðgöngutímanum og á kynþroskaskeiðinu getur einnig orsakað slit. Eftir margra ára rannsóknir hóf ELANCVL tilraunastöðin framleiöslu ELANCYL SLITKREMSINS. Þetta krem inni- heldur fjölda virkra efna sem bæði fyrirbyggir myndun slits og I mörgum tilfellum dregur úr þvf sliti sem er til staðar. NOTKUN ELANCYL SLITKREMIÐ er borið á umrædd svæði tvisvar á dag með hringlaga hreyfingum þar til kremið hverfur inn i húðina. Þetta á við hvort sem um er að ræða fyrir- byggjandi ráðstafanir t.d. á meðgöngutimanum eða þegar slit er þegar til staöar. Tilvalið er aö nota kremiö á meðan á meðgöngu stendur. Það má lika nota þaö eftir barnsburð og þá einnig á með- an konan hefur barnið á brjósti. ÁRANGUR ELANCYL SLITKREMIÐ hefur svokallaðan P.P. gæOa- stimpil I Frakklandi sem einungis franska heilbrigðisráðu- neytiö getur veitt. Stimpil þennan fá aðeins þær vörur sem hafa uppfyllt ströngustu kröfur og staðist margþættar þró'- anir. Rannsóknir þær sem ráðuneytið lót gera hafa meöal annars sýnt að 92% þeirra kvenna sem notuðu ELANCYL SLITKREMIÐ frá þriðja mánuöi meðgöngu til fæðingar komust alveg hjá þvl að slitna. Eins sýndu rannsóknir a eldra sliti fram á bætt ástand húöarinnar eftir eins mánað- ar notkun slitkremsins. Slitlínurnar voru minna áberandi og bleikur litur þeirra daufari.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.