Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 20
GUÐRÚN ÞÓR, deildarstjóri Göngudeild Kvennadeildar:
Eftirlit á meðgöngu
Mikilvægt er að greina snemma þau
einkenni sem bent gætu á byrjandi
pre-eclampsi. Reglulegt eftirlit og góð
mæðravernd hefur í því sambandi
veigamiklu hlutverki að gegna.
í hverri skoðun er fylgst með þyngd-
araukningu, þvag athugað fyrir eggja-
hvítu og blóðþrýstingur mældur.
Meðferð:
Fer eftir einkennum.
Ef blóðþrýstingur er vægt hækkað-
ur, á bilinu 140—160/90—100, og
hefur eftir hvíld í 10—20 mín. ekki
lækkað, konan hefur þyngst óeðlilega
mikið, og/eða er með dreifðan bjúg,
er konunni ráðlagt að hvíla sig heima í
viku. Hafi einkennin þá ekki gengið til
baka er konan lögð inn á meðgöngu-
deild.
Hins vegar, ef um er að ræða alvar-
legan háþrýsting um og yfir 160/100,
eggjahvítu í þvagi og/eða mikla þyngd-
araukningu, er konan strax lögð inn á
meðgöngudeild.
Fræðsla:
Þar sem flestar konur með pre-
eclampsi finna ekki til neinna ein-
kenna, er mikilvægt að vel sé útskýrt
fyrir konunni eðli sjúkdómsins og til-
gangur meðferðar. Markmiðið er að
konan skilji og geri sér grein fyrir mikil-
vægi nægrar hvíldar og reglulegu eftir-
liti. Einnig getur verið æskilegt að
fræða aðstandendur um eðli sjúkdóms-
ins með tilliti til umgengni og stuðn-
ings, því mikilvægt er að konan sé í
andlegu jafnvægi og eins áhyggjulaus
og kostur er. Sýna þarf mikinn skilning
og hlýju í samskiptum við konuna og
aðstoða hana við að leysa þau vanda-
mál, sem upp geta komið samfara
breytingum á daglegu lífi og innlögn á
sjúkrahús.
1 8
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ