Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 47
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, formaður LMFÍ:
Frá 36. þingi BSRB
36. þing Bandalags Starfsmanna Rík-
is og Bæja var haldið dagana 27.-29.
maí 1991.
Fulltrúar Ljósmæðrafélags Islands á
þinginu voru Hjördís Karlsdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir.
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir hef-
ur verið fulltrúi félagsins í stjórn BSRB
síðastliðin 3 ár. Hún gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Margrét Guðmundsdótt-
ir var kosin í hennar stað.
Hér á eftir birtum við úrdrátt úr þeim
ályktunum sem samþykktar voru á
þinginu og BSRB gerir að stefnu sinni.
36. þing BSRB leggur áherslu á að
kaupmáttur taxtalauna verði stórauk-
inn og hann rækilega tryggður, svo
dagvinna dugi til framfærslu.
36. þing BSRB leggur sérstaka
áherslu á að stórhækkun lægstu launa
hafi forgang í næstu kjarasamningum.
BSRB leggur áherslu á breytta og
jafnari tekjuskiptingu í íslensku þjóðfé-
lagi, og að launafólki verði tryggð auk-
in hlutdeild í þjóðartekjum.
BSRB krefst þess að starfsmönnum
verði ekki mismunað í launum, og að
sömu laun verði greidd fyrir sömu vinnu
innan sömu stofnunar eða deildar.
Laun miðist við störf, ekki einstakl-
inga. Árlega komi út skrá um stöður
hjá hinu opinbera þar sem störfin skulu
skilgreind, m.a. með tilliti til allra launa
og hlunninda.
BSRB fer fram á aukin réttindi hvað
varðar veikindarétt og barnsburðar-
leyfi. Þess er krafist að fæðingarorlof
verði 12 mánuðir á fullum launum, og
að foreldrar geti skipt því að eigin vali.
36. þing BSRB leggur áherslu á að í
engu verði skert lífeyrisréttindi félags-
manna BSRB sem starfa hjá ríki, sveit-
arfélögum, sameignarstofnunum og
séreignarstofnunum. Þá mótmælir
þingið skerðingu á lögboðnum fram-
lögum ríkisins til Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins undanfarin tvö ár.
36. þing BSRB hvetur til endurskoð-
unar á skattakerfinu með það fyrir aug-
um að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Nauð-
synlegar breytingar í þessa átt verði
m.a. fjármagnaðar með fjármagns-
skatti og stórauknu skattaeftirliti.
BSRB varar alvarlega við öllum fyr-
irætlunum sem stefna I hættu þeim ár-
angri sem náðst hefur í uppbyggingu
velferðarkerfisins og mun beita sam-
takamætti sínum af alefli til að bæta
þetta kerfi.
Jafna þarf lífskjör í landinu og viður-
kenna það sem almenna mannréttindi
að búseta fólks ráði sem minnstu um
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ