Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 22
Metið er hverju sinni hvort konan
kemur aftur í dagönn eða hvort hún út-
skrifast og fer í venjubundið mæðra-
eftirlit.
Þær konur sem fá að fara heim, en
koma aftur ýmist f dagönn eða til eftir-
lits og mæðraskoðunar á Meðgöngu-
deildina, eru þær konur sem hafa
blóðþrýsting 140/95—100, ( + ), + af
próteini í þvagi, blóðpróf innan eðli-
legra marka. Sumar konur geta ekki út-
skrifast heldur eru lagðar inn til
áframhaldandi legu og frekara eftirlits.
Þetta eru þær konur sem; svara hvíld
alls ekki og blóðþrýstingur er
140/100—105, eru með eggjahvítu í
þvagi, blóðpróf eru lítilsháttar brengluð.
Meðferð kvenna sem eru lagðar
inn:
Upphafsmeðferð byggist á því að
konan liggi í rúminu með klósett- og
sturtuleyfi í að minnsta kosti tvo sólar-
hringa.
1. Tilgangur rúmlegu:
a) Athuga hvort og hvernig blóð-
þrýstingur lækkar í verulegri
hvíld, en hann lækkar einmitt oft-
við leguna.
b) Rúmlega eykur blóðflæði um
fylgju og nýru.
c) Bjúgur rennur gjarnan af.
2. Blóðþrýstingur er mældur a.m.k. x
4 á dag.
3. Ef blóðþrýstingur lækkar eftir 2ja
sólarhringa legu má auka fótaferð í
1—2 daga og e.t.v. útskrifa konu ef
vel gengur.
4. Ef konan hefur ennþá slæma pre-ec-
lampsiu þrátt fyrir legu er ef til vill
20 __________________________________
hafin lyfjameðferð — > Ef konan
svarar lyfjagjöfinni vel, má hefja fóta-
ferð smátt og smátt.
5. I alvarlegri tilfellum er mikilvægt að
konan sé á rólegum stað, helst
einbýli.
6. Mataræði: Skiptir einnig miklu máli.
Konan má fá almennt fæði en sneiða
þó hjá saltríkum mat. Ef mikill leki
er á eggjahvítu er í einstaka tilfellum
ráðlegt að gefa eggjahvíturíkt fæði.
Ekki er nauðsynlegt að draga úr
vökvainntekt.
TILGANGUR MEÐFERÐAR:
Miðar að því að fyrirbyggja;
Hjá konunni;
1) Krampa.
2) Æðaskemmdir
blóðstorkutruflanir
innri blæðingar.
/ fylgju;
1) Otímabærar hrörnunarbreyting-
ar, lélega starfsemi.
2) Fylgjulos.
Hjá barni;
1) Vaxtarseinkun.
2) Fósturlát, hugsanlegt ef slæm
pre-eclampsia.
3) Fyrirburafæðingu.
DAGLEGT EFTIRLIT KVENNA MEÐ
PRE-ECLAMPSIU:
1. Fylgst er náið með hugsanlegum
fylgikvillum pre-eclampsiu:
a) Höfuðverkur (leiðir oft fram í
enni).
b) Sjóntruflanir (flygsur fyrir
augum).
1—IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ