Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 21
SIGRÚN VALDIMARSDÓTTIR, Ijósmóðir:
Meðferð við pre-eclampsiu
á Meðgöngudeiíd
Meðgöngudeildin þjónar öllu land-
inu hvað varðar innlagnir á konum
með meðgöngusjúkdóma eins og t.d.
pre-eclampsiu.
Við innlagnir á konum með pre-
eclampsiu er gerður stigsmunur á sjúk-
dómnum;
a) konur sem eru með vægt hækkað-
an blóðþrýsting og væg einkenni
sem eru þá oftast lagðar inn í svo-
kallaða dagönn og
b) konur með alvarlegri einkenni sjúk-
dómsins eru lagðar inn til sólar-
hringsdvalar eða lengri tíma.
Dagönrt:
Hvað er dagönn? Orðið er komið af
enska orðinu daycare. Það er innlagn-
ar fyrirkomulag, sem er þannig háttað
að konur eru lagðar inn til eftirlits og
mats á ástandi hluta úr degi u.þ.b.
4—5 klst. í einu.
A meðgöngudeild Kvennadeildar
Landspítalans var byrjað með þetta inn-
lagnar fyrirkomulag fyrir um það bil 3
árum og hefur það gefist nokkuð vel.
Til fróðleiks má geta þess að gífurleg
aukning hefur orðið á innlögnum til
dagannar. Árið 1990 var 40% aukn-
ing á innlögnum í dagönn frá árinu
1989. Það koma að meðaltali 4 til 5
konur daglega og eru þær allt uppí 100
á mánuði.
Meðferð kvenna sem koma í
dagönn:
Ljósmóðir tekur á móti konunni við
komu og annast hana þann tíma sem
hún dvelur á deildinni sem oftast er 4
til 5 klukkustundir í einu. Konurnar
liggja fyrir mestan hluta þessa tíma.
1. Blóðþrýstingur er mældur a.m.k. x
4.
2. Tekið er hjartsláttarrit af barni.
3. E.t.v. ómskoðun, ef grunur leikur á
vaxtarseinkun, sem einnig er metin
með kliniskri skoðun þ.e. mæld
hæð legbotns + ummál.
4. Blóðpróf tekin:
Mælt hæmoglobin — blóðflögur
— > metin blóðstorkuhæfni blóðsins.
Electrolytar Na + K + C1 - > met-
ið vökvajafnvægi.
— Urea, creatinin, þvagsýra — >
metin nýrnastarfsemi.
— Ef blóðflögur eru lækkaðar er í
einstaka tilfellum tekin storkupróf.
Blóðpróf eru ekki tekin í hverri dag-
önn, heldur metið hverju sinni.
5. Sent er þvag frá konum í almenna
skoðun og smásjárskoðun og at-
hugað er hvort eggjahvíta sé I þvag-
inu, bjúgsöfnun er metin.
6. Ef konur koma oft í dagönn sjá ljós-
mæður á Meðgöngudeild um venju-
bundið mæðraeftirlit.
19
ljósmæðrablaðið