Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 29
SVANHVÍT MAGNÚSDÓTTIR, Ijósmóðir:
Pre-eclampsiur í sængurlegu
Móttaka á deild
Pre-eclampsiur hafa forgang um ró-
legan stað á deildinni. Fá þarf góða
sögu með konunni, þ.e. um blóðþrýst-
ing, þvagútskiinað og eggjahvítu í
þvagi, bjúg, lyfjagjafir, hvernig fæðing
gekk, blæðingu, ástand barns o.fl..
Eftirlit í sængurlegu
Fer eftir hversu alvarleg pre-
eclampsian er. I flestum tilfellum er
lækningin fólgin í fæðingunni og blóð-
þrýstingur verður eðlilegur eftir
hana.(3) Slæmar pre-eclampsiur eru
oft nokkra daga að jafna sig. Flest ec-
lampsiutilfelli koma fyrir eða í fæðingu
en einn fjórði kemur eftir fæðingu og
þá yfirleitt á fyrstu 24 klukkustundum.
(1). Þannig að eftirlitið þarf að vera
best á þeim tíma. Einnig eru til svokall-
aðar síðbúnar pre-eclampsiur. Þær fá
einkenni í og eftir fæðingu og lagast oft-
ast innan 10 daga. (7).
a) Blóðþrýstingur er mældur x2 á sól-
arhring hjá vægari pre-eclampsium
a.m.k. í fjóra sólarhringa en slæmar
eru mældar x2 á vakt og allt upp í
hálfrar klukkustundar fresti. Síðan
er mælingum fækkað. Þessar konur
eru mældar alla sína sængurlegu.
b) Þvag er testað fyrir eggjahvítu
a.m.k. xl í sængurlegu og hjá alvar-
legum pre-eclampsium er testað á
fjögurra tíma fresti. Þær eru á ná-
kvæmum vökvamælingum út og
UÓSMÆÐRABLAÐIÐ ____________________
inn. Oft verður útskilnaður mikill
fyrstu tvo sólarhringana og útlit kon-
unnar breytist hratt. (6). Blóðprufur
eru teknar reglulega og fylgst með
truflunum á storkuhæfni blóðsins.
Fylgst er með blæðingu vaginalt
vegna aukinnar blæðingarhættu.
(4).
c) Fylgjast þarf grannt með einkenn-
um yfirvofandi eclampisu. Athuga
að lyfjagjafir t.d. verkjalyf við sam-
dráttarverkjum geta falið höfuðverk
og fleiri einkenni. (2). Það þarf að
þekkja krampana þegar þeir koma
og bregðast rétt við. (1).
d) Lyfjagjafir eru misjafnar. Oft er lyfja-
gjöf til lækkunar blóðþrýstings hætt
eftir fæðingu og síðan endurmetið
eftir einn til einn og hálfan sólarhring.
Slæmum pre-eclampsium eða þeim
sem hækka mjög snögglega eru oft
gefnir stórir skammtar og þarf þá að
fylgjast vel með þrýstingi og einkenn-
um um of lágan blóðþrýsting.
e) Áríðandi er að fylgjast vel með and-
legu ástandi. Vegna aukins álags
eru konur oft seinni til að tengjast
barni sínu. Þær finna til vanmáttar
gagnvart sjúkdómi sínum sem þær
átta sig oft ekki á. (5). Einnig er
meiri hætta á þunglyndi. (7).