Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Page 14

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Page 14
Fastur þáUur á \)egum náms í Ijósmóðurfreeði \>ið Háskóla íslands í sfðasta Ljósmæðrablaði var þemað brjóstagjöfm og áttu eftirfarandi hugrenningar ljósmóðurnema eftir veru á sængurkvennagangi að fylgja með. Af því varð þó ekki, en betra er seint en aldrei. Á íslandi er hefð sem erfítt er að brjóta, þrátt fyrir rannsóknarniðurstöður og ábendingar Alþjóðuheilbrigðisstofnunarinnar um annað, að gefa þurrmjólkurábót með brjóstagjöf. Kannski hefur sagan áhrif og að undirliggjandi sé óttinn við að hafa ekki í sig og á. Brjóstinu er einhverra hluta vegna ekki treyst og „öryggið" felst í sýnilegum vökva úr staupi eða pela. Þessu virðist öðru vísi farið í nágrannalöndum okkar t.d. Noregi, Danmörk og Svíðþjóð þar sem alþjóðlegu átaki um „Barnvæn sjúkrahús“ sem hvatt var til árið 1989 og fela í sér 10 þrep til velheppnaðrar brjóstagjafar, hefur verið fylgt eftir af heilbrigðisyfirvöldum. Áður hafði árið 1981, staðall Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar um markaðssetningu þurrmjólkur og barnamatar verið samþykktur (International Code of Breastfeeding Substitutes). Um þessa þætti var ítarlega fjallað í síðasta Ljósmæðrablaði. ísland er ekki virkur aðili að alþjóðlega staðlinum um markaðssetningu þurrmjólkur og engin íslensk heilbrigðisstofnun hefur fengið vottun sem „Barnvænt sjúkrahús". Það gefur auga leið að ljósmæður ættu að taka þátt í alþjóðasamstarfi um brjóstagjöf og vekja athygli heilbirgðisyfírvalda og stjórnenda heilbrigðisstofnanna á viðmiðum sem þar eru viðhöfð. Markmiðið er barnið fái sem best viðurværi fyrstu árin og að sem flest börn og fjölskyldur þeirra fái notið brjóstagjafar, því brjóstið er best og leggur grunn að heilsu fólks á lífsleiðinni. Tilgangurinn með birtingu á dagbókarbrotum ljósmóðurnema er eins og áður hefur verið sagt, að gefa ljósmæðrum tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í lærdómi og rökræðu nemans við sjálfan sig og aðra. Ákveðnar aðstæður og atvik standa upp úr. Fyrri reynsla og ný þekking um ábótina, þarfir nýburans og hvernig farsæl „brjóstagjöf4 er háð aðstæðum og þörfum fjölskyldunnar hverju sinni, mun án efa nýtast til faglegs þroska hinnar verðandi ljósmóður. í ljósmóðurnáminu er einmitt lögð áhersla á rétt konunnar og fjölskyldu hennar á upplýsingum um valkosti og á að hún fái styrkingu til að taka þátt í öllum ákvörðunum er lúta að umönnun þeirra. í dæmisögunni hér á eftir upplifðu foreldrarnir barneignarferlið á „jákvæðan, einstaklingsbundinn og persónulegan hátt“ (Námsskrá í ljósmóðurfræði, 1998-1999, bls. 5). lektor, námsstjóri í ljósmóðurfræði 14 LJÓSMÆÐRABLAPIf?

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.