Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Síða 17

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Síða 17
leg viðhorf til barnsins og brjóstagjafarinnar. Þessar mæður litu á brjóstagjöf ekki eingöngu sem næringu heldur einnig mikilvægan þátt í tengslamyndun við barnið. Þær höfðu ekki spáð mikið í brjóstagjöf fyr- irfram. Brjóstagjöf var þó eina valið fannst þeim. Þeim leið vel og var brjóstagjöfin hluti af móður- ímynd þeirra. Ef vandamál kom upp við brjóstagjöf- ina hafði það neikvæð áhrif á sjálfsmynd og móður- ímynd kvennanna. Þær voru ekki lengur góðar mæð- ur! Hinn hópurinn var svo „raunsæiskonan“. Sú móð- ir trúði því að brjóstagjöf væri ekki svo ómissandi þáttur í móðurhlutverkinu. Þeim fannst pelagjöf jafn- góður kostur og bentu oft á feit og sælleg börn sem hefðu bara fengið þun-mjólk máli sínu til stuðnings. Ef þessar konur brjóstafæddu börnin sín þá var það vegna þæginda. Mjólkin var tilbúin með rétt hitastig og alltaf til staðar. Þessar konur vildu hafa stjórn á hlutunum og litu á pelagjöf sem fullnægjandi kost. Raunsæiskonunni var svo skipt niður í tvo undir- hópa. Annar hópurinn leit á móðurhlutverkið sem sitt aðalhlutverk. Brjóstagjöfin var þó ekki mikil- vægur þáttur fyrir móðurhlutverkið. Móðurhlutverk- ið var miðpunturinn í þeirra eigin sjálfi. A meðan hinn hópurinn sá móðurhlutverkið sem eitt af þeirra mörgu hlutverkum í lífinu. Til að vera sáttar við sjálfa sig þörfnuðust þær annars en að vera „bara“ móðir. Þær litu á sinn rétt sem jafnan á við barnið,, það sem er gott fyrir „mig“ er gott fyrir barnið“. Þeir þættir er höfðu áhrif á ákvörðunarferlið voru að brjóstagjöf var vegna eðlisávísunar hjá hugsjóna- konunni en vegna þæginda hjá raunsæiskonunni. Allar konurnar í rannsókninni upplifðu einhverskon- ar þrýsting. Þrýstingur gat verið margskonar, sumir makar aðlöguðust ekki brjóstagjöfinni. Þeir litu á brjóstagjöf sem „sexual turn off‘ og bamið sem sinn keppinaut. Sumuin konunum líkaði illa að gefa bam- inu brjóst innan um aðra og voru þær líklegri til að upplifa sig sem fanga (Cooke, M. 1996 sjá Barclay og Jones). Þótt þetta módel skýri í sjálfu sér ekki neitt, þá er gaman að skoða konuna út frá því. Módelið væri hægt að nota sem hjálpartæki í að meta hvaða fræðsla passaði hverri konu. Hugsjónakonan þarf meiri stuðning til að allt gangi upp og hennar fræðsla miðast að öðrum þáttum en hjá raunsæiskonunni. Fræðsla til raunsæiskonunnar væri undirstrikun á þægindunum sem fylgja brjóstagjöfínni, með auðvit- að annari fræðslu. Konan í dæmisögu minni er ekkert einsdæmi. Mæður sem vilja/geta ekki haft barn sitt á brjósti halda áfram að þiggja af okkur þjónustu. Ég tel mik- ilvægt að við hjálpum konum að byggja upp sjálfs- traust í sínu nýja hlutverki. Einnig verðum við að kynna þá vinnu sem liggur að baki góðri brjóstagjöf. Fræðslu er ábótavant við þá vinnu. Það er mýta hér á landi að brjóstagjöf sé dans á rósum á 4 klst. fresti. Foreldrar þekkja ekki nægjan- lega þarfír barns síns. Ef foreldrar þekkja þarfír og hegðun nýburans er auðveldara að takast á við upp- eldið og eflaust yrði þá minni þörf á ábót. Það er kannski, þegar á botninn er hvolft, fræðsla um nýbu- rann en ekki brjóstagjöfma sem leysa myndi „ábótar- vandamálið“? Heimildir: Cooke,M. Mothers'experience of infant feeding: a new the- ory. Rannsókn birt í Barclay.L. og Jones.L. Midwifery Trends and practice in Australia. 1996, Churchill Livingsto- ne: Melboume. Dawson,E„ Gauld,R. og Ridler, J. (1993) Empowering mothers. Nursing RSA Verpleging vol 8 no. 4 bls, 10-12. Inch,S„ (1996), Breastmilk and formula milk - what's the dijference? MIDIRS Midwifery Digest mar 6:1* Inch, S.,(1996), The importance of breastfeeding MI- DIRS Midwifery Digest jun 6:2* Rajan,L. (1993) The contribution of professional support, information and consistent correct advice to successful bre- astfeeding. Midwifery 9 bls. 197-209. Royal college of Midwives, Successful Breastfeeding, 1991 Churchill Livingstone,London. Frétt frá stjóm LFÍFÍ Veittir hafa verið styrkir úr B-hluta Vísindasjóðs LMFÍ. Árdís Ólafsdóttir, Ijósmóðir, hlaut 160.000 kr. til að vinna að gerð lokaverkefnis síns til meistaragráðu við Thames Valley University, London, Englandi. Spurningin sem Árdís leitast við að svara er: Hafa ljósmæður sem starfa við ljósmóðurstörf í hefðbundnu kerfi á Kvennadeild Landspítalans áhuga og vilja til að starfa við samfellda Ijósmæðraþjónustu? Helga Gott- freðsdóttir hlaut 140.000 kr. styrk en hún vinnur einnig að lokaverkefni til meistaragráðu við sama skóla. Helgu verkefni leitast við að kanna viðhorf mæðra og ljósmæðra til þeirrar þjónustu sem veitt er í mæðra- vernd. LJÓSMÆÐRABLAPIÐ 17

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.