Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Side 18
HluK>erk Ijósmóöur á meðgöngu
eftir Sigríði Síu Jónsdóttur, tjósmóður
Starf Ijósmæðra hefur sem eðlilegt er tekið miklum
breytingum í aldanna rás og eru ástæðumar margar.
Ein þeirra eru þær kröfur sem samfélagið gerir til
ljósmæðra. Fyrirlestur þessi hefði verið með talsvert
öðrum áherslum fyrir nokkrum árum og ég spái því
að af fáeinum árum liðnum verði þær hugmyndir
sem hér koma fram partur af daglegum störfum ljós-
móðurinnar og ekki talin ástæða til að fjalla sérstak-
lega um þau á ráðstefnu eða á prenti.
Sérstaða Ijósmóðurinnar á meðgöngu
Talsverð áherslubreyting hefur orðið á starfsháttum
ljósmæðra á meðgöngu frá því upp úr 1990. Miðast
breytingin að því að þarfir hinna verðandi foreldra
eru sífellt hafðir meira að leiðarljósi. Nú þykir það
alveg sjálfsagt að konan hafi sömu ljósmóðirina alla
meðgönguna. Tími þess „mæðraeftirlitsins", þegar
við kölluðum „næsta“ er fullkomlega liðinn undir
lok. Vil ég taka svo djúpt í árinni að segja að þetta sé
stórkostleg þróun og löngu tímabær. Ársgömul lög
um réttindi sjúklinga (nr. 74, 1997) styðja einnig
þetta breytta vinnulag því að samkvæmt því skal
ljósmóðir „leitast við að koma á traustu sambandi
milli sín og sjúklings“ (3.gr.).
Ljósmóðirin sem hugsar um konuna á meðgöng-
unni og maka hennar/fjölskyldu hefur alla möguleika
til að mynda góð tengsl við hina verðandi foreldra
(Cronk og Flint, 1989 ). Ljósmóðirin er í lykilaðstöðu
til að átta sig á styrkleikum og veikleikum sérhverrar
verðandi móður og maka/fjölskyldu hennar. Barns-
hafandi konur hér á landi koma yfirleitt í sína fyrstu
meðgönguskoðun um 12. viku meðgöngu. Frá þeim
tíma og fram að fullri meðgöngu eru um 28 vikur.
Ljósmóðirin hefur því u.þ.b. 196 daga til að byggja
upp tengsl og traust á milli sín og hinnar stækkandi
fjölskyldu. Til gamans má geta að þessi dagafjöldi
jafngildi sjö fjögurra vikna sumarfríum.
Af þessu vil ég draga þá ályktun að starf ljósmóð-
urinnar á meðgöngu sé það mikilvægasta af störfum
okkar Ijósmæðranna. Rökstuðningurinn kemur svo
hér að neðan.
Ég hef lengi átt mér þann draum að við íslenskar
ljósmæður vinnum með allt barnseignarferlið. Þegar
vinnan er þannig skipulögð, að sama ljósmóðirin
16
hugsi um konuna
og hennar fjöl-
skyldu í með-
gönguverndinni,
fæðingunni og
sængurlegunni, þá
verður auðvitað sú
Ijósmóðir sú mikil-
vægasta. í dag er
jú vísir að þessu
skipulagi fyrir
konu í eðlilegri
meðgöngu hjá
ljósmæðrum í
MFS einingunni á Fæðingadeild Landspítalans og á
smærri stöðum úti á landi, þar sem er starfa t.d. ein
eða tvær ljósmæður.
Hin mörgxi hlutöerk Ijósmóðurinnar á meðgöngu
Ljósmóðirin hefur í mörg „horn að líta“ við með-
gönguverndina. Hér á eftir fylgja sex meginatriðið í
starfi hennar.
Hlutöerk Ijósmóðurinnar á meðgöngu
✓ 1. Stuðningur.
✓ 2. Traust.
✓ 3. Fræðsla.
✓ 4. Meðgöngumat / áhættumat.
✓ 5. Samhæfing þjónustunnar.
✓ 6. Samvinna við
aðra sérfræðinga.
Shiðningur
Þessi hluti starfsins er mjög yfirgripsmikill. Ljós-
móðirin verður að meta þörf hinnar verðandi móður
varðandi reynslu hennar, ótta eða hræðslu. Á hverju
byggir ótti konunnar? Á hún t.d. að baki erfiða fæð-
ingarreynslu sem þarf þá að vinna úr. Hvemig er fé-
lagslegur stuðningur konunnar og hvaða stuðning
þarf að veita henni vegna t.d. skorts á félagslegum
stuðningi? Hvaða stuðning þarf hinn verðandi faðir
ef að hann er þátttakandi á meðgöngunni? Svona
mætti lengi telja. Ljósmóðirin getur á engan hátt
LJÓSMÆPRABLAW