Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Side 31
nota hefðbundnar aðferðir til að
miðla fræðslu til feðra, þ.e. á for-
sendum kvenna þeirra en ekki
þeirra eigin. Það var merkileg
reynsla fyrir mig sem ljósmóður
að sjá að sú leið var ekki sú rétta
heldur bæri að beina fræðslu til
feðra á þeirra eigin forsendum.
Það var því eins og himnasending
þegar að til landsins kom sænski
félagsfræðingurinn Jören Winner-
ström en hingað kom hann á veg-
um íslensku karlanefndarinnar
sem starfar á vegum Jafnréttis-
ráðs. Jören kynnti aðferðir sem
hann hefur unnið við í heimalandi
sínu, m.a. við foreldrafræðslu með
ljósmóður þar sem þau hafa lagt
áherslu á sérstaka fræðslu fyrir
feður þar sem tekið er mið af
þörfum þeirra.
Nú er mun meira til af að-
gengilegu efni sem tekur mið af
þessum nýju áherslum, bæði í
rannsóknarfræðum og bókaút-
gáfu. Sem dæmi um þetta má taka
bók sem kom út 1995 í Danmörku
og heitir „Far nor du blir Far“.
Höfundarnir, sem eru fjórir karl-
menn, leggja áherslu á að veita
öðrum feðrum innsýn í reynslu
sína í feðrahlutverkinu. í bókinni
reyna höfundarnir að upplýsa aðra
feður um flesta þá þætti er varða
meðgöngu, fæðingu og umönnun
bams. Þeir leggja áherslu á að
feður veiti konu sinni stuðning og
að þeir séu einnig virkir þátttak-
endur. Eins og karlmönnum er
lagið er bókin skipulega uppsett,
þó að hún minni mann ekki á bíla-
bók eða handbók um laxveiði.
Hlutirnir eru þó dregnir saman
eins t.d.:
Uáð á meðgöngu
• Myndaðu strax samband við fóstrið.
• Settu þig inní það sem þú veist að
getur gerst á meðgöngu og við fæðingu.
• Sættu þig við geðsveiflur konu
þinnar.
• Byggðu hreiður.
Uáð um fesðingu
• Talaðu út um óskir ykkar við
fæðinguna.
• Taktu tillit til þarfa konu þinnar.
• Sættu þig við hegðun hennar.
• Láttu ekki setja þig til hliðar,
þetta er líka þitt bam.
í bókinni eru einnig skemmti-
leg gullkorn eins og: „Mér fannst
gott að vera hafður fyrir lifandi
stadíf ‘ og á öðrum stað: „Þá skul-
um við ekki segja eins og við ger-
um oft. Ég skal passa barnið í
staðin skulum við segja: Ég skal
hugsa um bamið mitt.“.
Að mínu mati er ómetanlegt að
eiga nú aðgang að slfku efni
tengdu fræðslu fyrir feður. Ég get
ekki látið hjá líða að gera grein
fyrir vinnu minni á öðrum vett-
vangi tengdu breyttu hlutverki
feðra í samfélagi okkar. Á síðast-
liðnu ári lagði ég það til í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar að karl-
menn sem starfi hjá Reykjanesbæ
fengju fæðingarorlof. Samþykkt
þessi var í tengslum við starfs-
mannastefnu bæjarins en nú gefst
starfsmönnum tækifæri á tveggja
vikna fæðingarorlofi á fullum
launum án þess að skerða rétt
móður. Nú þegar hafa allir þeir
starfsmenn sem eignast hafa börn
frá því að fæðingarorlof feðra var
samþykkt nýtt sér þessi réttindi.
Ég tel að að fæðingarorlof feðra
sé löngu tímabært til þess að gefa
feðrum tækifæri til hreiðurgerðar.
Það sem var merkilegt við þessa
samþykkt er að hún var samþykkt
þverpólitískt og lögð fram af öll-
um konunum í bæjarstjórninni.
Ein ástæða þess hversu vel gekk
að fá fæðingarorlof karla sam-
þykkt var sú að formaður bæjar-
ráðs, Jónína Sanders, er einnig
hjúkrunarfræðingur og hefur full-
an skilning á þessu máli.
Að lokum vil ég leggja áherslu
á að allir þeir sem vinna við þjón-
ustu tengda foreldrahlutverkinu
verða að taka upp nýjar og breytt-
ar áherslur í upplýsingagjöf og
fræðslu til verðandi foreldra þar
sem mið verður tekið af fjölskyld-
unni í heild. Samt þarf að leggja
áherslu á að innan fjölskyldunnar
er hver og einn með mismunandi
þarfir. Ég tel að í öllum upplýs-
ingum til verðandi foreldra í
mæðravemd, sem kannski er úrelt
hugtak, verði einnig sérstök feðra-
fræðsla. I sængurlegu, hvort sem
hún er á stofnunum eða veitt
heima, verði að miðla fræðslu til
feðra. Ráðgjafar á heilsugæslu-
stöðvum í ungbarnavemd verða
einnig að taka mið af þessum
breytingum. Síðast en ekki síst
þarf að vera á boðstólunum sér-
hæfð meðferð og úrræði fyrir þau
vandamál sem koma upp á tíma-
bilinu. í dag liggur fyrir haldgóð
þekking á mikilvægi þess að vel
sé búið að velferð fjölskyldunnar
og vitað er að tímabilið í kringum
fæðingu barns er afar viðkvæmt
og brothætt.
Sólveig S. J. Þórðardóttir
Ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur
Gullkom
Eg man eflir að \>era í
raun fegin þegar barnið
óaknaði kltikkan K>ö á
nóttinni til að drekka, af
þóí að ég hafði sóo slerka
löngun lil að horfa afiur á
hann.
FTargaret Drabble
Gtillkotri
Bam á brjósti er jafnmikil
ánægja og þseðingin er k\>öl.
TTarion Zimmer Bradleý
UÓSMÆÐRABLAÐIt)
31