Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 21
FREYR
121
Kúabú ísfirðinga.
Tvö bæjarfélög hér á landi reka kúabú.
Annað er á Isafirði hitt á Siglufirði.
Kúabú ísfirðinga tók til starfa 1927. Það
er á Seljalandi skamrnt innan Isafjarðar-
kaupstaðar. Auk þess hefir búið til afnota
hálfa jörðina Tungu. Við kúabúið er nú
búið að fullrækta 11 ha. og 4 ha. eru und-
ir ræktun. I ár var heyaflinn um um 550
hestar af töðu og hafragrasi.
Nú eru á búinu 29 mjólkurkýr, auk
ungviðis. Arsnyt kúnna hefir aukist frá
ári til árs.
Meðalnyt hefir verið þessi:
1927— 28 2200 kg.
1928— 29 2580 —
1929— 30 2907 —
1930— 31 3003 —
Þetta dæmi sýnir hve auðvelt er að
auka nythæð kúa vorra, ef þær hafa góð
húsakynni og hagfelda fóðrun.
Mjólkurverð á Isafirði er nú 50 aurar
líterinn.
Bústjóri er Jens Hólmgeirsson.
Frá Eyrarbakka.
Eitt þeirra kauptúna er framast standa
í ræktunarmálum er Eyrarbakki. Land
það sem þorpsbúar leigja er eign Lands-
banka Islands. Bankinn hefur látið gera
aðalframræsluskurði á landi setn er 125
ha að stærð. Stærð leigulanda er 3—5 ha.
Af landi þessu er komið í fulla rækt og
að fullu undirbúið til sáningar næsta vor
43 ha. Unnið er að framræslu og öðrum
ræktunarundirbúningi á hinum hluta lands-
ius. Land það sem tekið er til ræktunar
liggur lágt yfir sjávarmál, er flatlent land
útgrafið eftir svarðartekju, og má teljast
einhver allra óræktarlegasti blettur í öll-
um Elóa. Aður lá land þetta fyrir skemd-
um af sand- og sjávarágangi, sem hvort-
tveggja er stöðvað fyrir tilstilli sandgræðsl-
unnar. Til þess að hægt væri að ræsa
landið, var lagt holræsi út til sjávar, svo
sem áður hðfur verið skýrt frá í blaðinu.
Hefur ræsið reynst hið besta.
Pramkvæmdastjóri ræktunarmálanna á
Eyrarbakka er Haraldur Guðmundsson frá
Háeyri.
Við þessar framkvæmdir hafa lífsskil-
yrði Eyrbekkinga batnað stórkostlega, og
aðstaða þeirra til framhaldandi umbóta. þarf
ekki að takmarkast af landskorti, því
kauptúnið hefur umráð yfir landi sem #lls
er 2249 ha að stærð. Þess má vænta að
Eyrbekkingum auðnist að sjá þetta land
áður en langt um líður fullrækt&ð. Á því
sem þetta land getur framleitt, geta marg-
ar fjölskyldur lifað góðu lífi.
Stærsta hænsnabú á íslandi.
er hænsnabú Einars Einarssonar yngra
í Grindavík. Hann byrjaði hænsnarækt
sína í stærra stíl 1929. Fékk sér þá út-
ung'unarvél og kom upp 127 hænsnum,
en 1930 voru þau 300 og nú um 1000.
Þetta eru alt hvít ítaliensk hænsni,
úrvalskyn. Hænsnahúsið er skúrmyndað
með stórum gluggum á suðurhlið, 107
álna langt og 10 álna breitt. Hefir því
hver hæna um 1 al.2 rúm í húsinu.
Ilænsnin eru fóðruð með sérstakri fóður-
blöndu og býr Einar hana til sjálfur af
ýmsum efnum. í fóðri hænsnanna er
haft nokkuð af þorskalýsi og þykir það
vel gefast.
Hænsnabú þetta er stundað með mik-
illi nákvæmni og hirðusemi. Öll eru