Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 22

Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 22
122 FREYR hænsnin merkt með númerum um lapp- írnar. Þá þau fara inn í varpkassann lokast hann og komast hænumar eigi þaðan út fyr en hann er opnaður. Á þennan hátt er hægt að telja hvað hver hæna verpir mörgum eggjum. En mjög er það misjafnt, frá 0—280 eggjum á ári. Til útungunar eru valin egg undan bestu hænunum og er það notað við kyn- bætur hænsnanna. Einar telur að hænsnarækt sín svari vel kostnaði. Við hænsnarækt hefir verið lögð lítil alúð hér á landi fram að síðustu tímum. En nú eru hér að koma til sögunnar ýmsir hænsnaræktarmenn. Einar Einars- son er þeirra stórvirkastur. Árið 1920 er tala hænsna hér á landi, samkvæmt hagskýrslunum, 15000, en 1929 40000. Innflutningur af eggjum hefir verið allmikill hin síðari árin. Árið 1929 voru flutt til landsins 57000 kg. af eggjum, sem kostuðu 136000 krónur. Þau egg sem fiytjast frá útlöndum eru mestmegnis annars flokks vara, sem er lítt seljanleg á enskum markaði, nema fyrir lágt verð. Hér eru þau tekin góð og gild. Væri nú ekki réttmætt í kreppunni að auka hænsnaræktina, svo fullnægt yrði að minsta kosti þörf landsmanna. Um útflutning gæti og verið að ræða. Reykjavík sækir nú um 150000 kr. at- vinnubótastyrk. Það er nær sama upp- hæð og egg eru árlega keypt fyrir. Væri nú eigi ráð fyrir bæjarstjórnina, að veita mönnum aðstöðu til að koma upp hænsna- búum í atvinnuleysinu, svo eggjainn- flutningurinn gæti sparast. Reykjavíkur- búar kaupa mest af þeim. S. S. Sauðnautin. Eins og kunnugt er komu Grænlands- fararnir með 5 sauðnaut tíl Islands 1929. Ríkisstjórnin keypti þessi sauðnaut og lét setja þau austur að Gunnarsholti á Rang- árvöllum. Um haustið veiktust flest sauðnautin og drógu þau veikindi þau til bana, að undanskildu einu, hinni svonefndu „Siggu“. Banamein sauðnautanna sagði dýralæknir að hefði verið bráðapest. Sigga þreifst allvel um veturinn og næsta sumar. Lifandi vigt hennar var: 3. nóv. 1929: . 47 kg. 15 mars 1930* 54 5. júlí 1930: . 65 — 13. okt. 1930: . 92 — 14. jan. 1931: . 85 — í janúar veiktist Sigga, og dró það hana til dauða 11. apríl 1931. Haustið 1930 keypti ríkisstjórnin 5 sauðnautakálfa frá Noregi, en af græn- lenskum uppruna. Þau komu hingað í októbermán. og voru þá strax flutt að Gunnarsholti og bygt þar hús handa þeim og gerð sérstök girðing, þar sem búpeningur hafði eigi farið um hin síð- ari árin. Um veturinn voru sauðnautin mest í húsi, og fóðruð á heyi, mjólk og litlu einu af kjarnfóðri. í sumar hafa þau gengið úti. Lifandi þungi þeirra hef- ir verið 1931: 14. jan. 30. maí 29. sept. kg. kg. kg. Nr. 1 . . .... 60 80 128 — 2 . . .... 57 74 120 — 3 . . .... 51 63 105 — 4 . . .... 54 72 114 — 5 . . . . .. 46 55 105 ■o o

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.