Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 24

Freyr - 01.11.1931, Blaðsíða 24
124 FREYR Tilkynniné. Á síðasta aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands var ákveðið að Sambandið taki í sína þjónustu nokkra menn að vor- inu sem leiðbeini bændum við nýrækt, sáningu o. fl. og borgi kaup þeirra að hálfu leyti, en viðkomandi bóndi eða Bún- aðarfélagið að hálfu leyti. Þau búnaðarfélög eða einstakir menn, sem óska að nota þessa menn, þurfa að gera undirrituðum aðvart um það um. næstu áramót. Stóra-Hofi, 25. nóv. 1931. Guðm. Þorbjarnarson. Jón -Jónsson frá Laug er síðastliðið sum- ar aðstoðaði rannsóknarleiðangur Dr. Wegeners í Grænlandi er nýkominn heim. Skýrir hann blaðinu svo frá að íslensku hestarnir sem notaðir voru til flutnings á farangri leiðangursins upp á jökulinn, hafi reynst mjög vel, og verið í haust- holdum að loknum flutningunum. Fluttar voru 160 smálestir um 14 km. vega- lengd upp í 1000 metra hæð. Er flutn- mgunum var lokið var hestunum lógað nema 4 er fluttir voru til Gothaab og eru notaðir þar við keyrslu um þorpið. í Gothaab eru nú 30 ær er fluttar voru þangað frá Julianahaab haustið 1930. En í Júlíanahaab eiga Grænlendingar 300 fjár auk þess fjár er tilheyrir sauðfjár- ræktarstöðinni. Áhugi Grænlendinga fyr- ir sauðræktinni fer vaxandi. Hefir hreinn arður af sauðfjárræktinni verið um 10 krónur að meðaltali á á. Prentsmiðjan Acta h.f. Tilkynning. Á aukafundi Búnaðarsambands Suður- lands, er haldinn var að Þjórsártúni 23. nóvember þ. á. voru samþyktar eftirfar- andi tillögur: a. Vegna hinnar breyttu og örðugu fjár- hagsaðstöðu framleiðenda landsins, er það knýjandi nauðsyn, að bændur bindist sam- tökum um það, að miða kaupgjald verka- fólksins við verð framleiðslunnar. — Skor- ar fundurinn á formenn hreppabúnaðar- félaganna að beita sér fyrir samtökum bænda innan félaga sambandsins, og felur st.jórn Sambandsins að reikna út hver sé viðeigandi kauptaxti fyrir hvern tíma og að tilkynna niðurstöðutölur sínar til bún- aðarfélaganna fyrir lok febrúarmánaðar ræstkomandi. b. Fundurinn skorar á Búnaðarfélag ís- iands að það hlutist til um að önnur Bún- aðarsambönd landsins beiti sér fyrir sams- konar störfum og í ofanskráðum tillögum getur, hvert á sínu svæði. c. Fundurinn skorar á búnaðarfélögin hvert í sinni sveit, að reyna að fá félaga sína og aðra í umdæmi sínu til að bind- ast samtökum um sparnað, bæði í neyslu og kiæðnaði meðan erfiðleikar heimskrepp- unnar standa. Ætlast fundurinn til þess, ■ að hvert félag finni út, hvað mætti án vera á svæði því, er það nær yfir og hvernig hægast sé að framkvæma ráðstafanir þær, er þau telja heppilegastar í þessu efni. Jafnframt skorar fundurinn á félögin að styðja eftir megni að framleiðslu og notk- nn innlendrar framleiðslu á öllum sviðum. Búnaðaisamband Suðurlands.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.