Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 3

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 3
Sígtír lífsins. Oft hefi ég fundið sárt til þess, hversu sigri lífsins er lítið á lofti haldið í sam- ræðum, blaðagreinum og útvarpi. En hin hliðin — þegar dauðinn verður sterkari er lífið — lengur eða skemur — er auglýst við öll tækifæri. Má þar benda á allt talið um fjárpest, harðindi, slysfarir — og svo eftirmælin. Freyr vildi ef til vill flytja nokkur orð um sigur lífsins á einu sveitaheimili síð- astliðið vor, 1936. Þá urðu líka mörg heimili austan og norðan lands óvenju fegin þessum sigri, eftir harðann vetur. Það var í byrjun maímánaðar: regn og sólskin skiptist á, lækir suðuðu, jörð grænkaði og kindunum var leyft að fara til fjallanna. Ungur maður nýkominn heim af skóla lá í rúmi rétt við gluggann í litla kvistherberginu. (Sjá mynd). Mikill sótthiti og rauðflekkótt hörund bar þess vott að mislingana hafði hann flutt heim með sér. Húsfreyjan og 3 stálpuð börn höfðu ekki fengið mislinga. Þetta var ekki álitlegt í byrjun vor- anna. En mislingar hafa sinn gang, og þeir koma ekki nema einu sinni á æfi manns, það var bótin. Bóndinn var úti við störf sín og aldr- aður vinnumaður — faðir hins veika pilts. Dagar liðu. ,,Þú ert beðinn að koma pabbi“, sagði yngri sonur bóndans — þar sem hann kom hlaupandi að heim- an. „Hann er svo mikið veikur núna; þær halda að hann muni deyja þá og þegar“. Ein nótt leið, og móðir piltsins vakti við rúm hans. Það batnar ekki. Þetta hlýtur að vera eitthvað meira en mislingar. Það dugar nú ekki lengur að vera að tala í síma við læknirinn. Það verður að sækja hann. Læknirinn kom: ungur, góðlegur mað- ur, nýkominn frá prófborðinu. Hann skoðar vandlega sjúklinginn. Allir vona að hann segi eitthvað, sem gefi vonir — góðar vonir. En læknir segir fátt, hann er alvarlegur á svip. „Hvað haldið þér að þetta sé, það hlýt- ur að vera eitthvað meira en mislingar?“ „Já, lungnabólga“, sagði læknirinn. „Nú þarf ég að fara, get komið aftur á morg- un, og tek þá með mér ýmislegt sem vant- ar, og gæti ef til vill hjálpað, annars verður þetta að hafa sinn gang. Vildi samt geta verið hjá honum einhverja daga“. Vorblíðan heldur áfram, það grænk- ar og vorannirnar kalla. Látum þær nú eiga sig. Allir eru lagstir í mislingum, sem þá geta tekið. — Heimilið er ein- angrað, en læknirinn er samt daglegur gestur. Eina hugsun alls heimilisfólks- ins er sú sama — þessi, að lífsaflið mætti verða dauðanum yfirsterkara. Hin grænu lauf reynitrjánna verða stærri með hverjum degi sem líður. Það má teygja hendina út um glugga litla kvistherberg-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.