Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 9

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 9
F R E Y R 71 30—40 ára gamlar. — Af þessari á- stæðu meðal annars, hafa menn nú síð- ustu árin tekið upp heyrannsóknirnar að nýju, og er þá tekið tillit til þess, að þýðing heys er ekki eingöngu bundin við meltanleg næringarefni í því, en að innihald þess af steinefnum og fjörefn- um skiftir einnig miklu máli. — Á- hrifamesta orsök hins vaxandi áhuga er- lendra vísindamanna og bænda, fyrir heyi og heyrannsóknum, er þó vafa- laust hin aukna notkun þess hér í ná- grannalöndunum og 'víðar. Undanfarin ár hafa menn vegna gjaldeyrisskorts leitast við að nota sem mest af heima- öfluðu fóðri, og þess vegna lagt meiri áherziu á grasrækt og heyverkun en fyr. Það er því eðlilegt og sjálfsagt að gera tilraunir til þess að auka við þá vitneskju og þekkingu, sem fyrir hendi er um heyið, og mikið hefir áunnist í þessum efnum með rannsóknum síðari ára. — En þrátt fyrir þessar ágætu út- lendu tilraunir og rannsóknir, tel ég nauðsynlegt að gerðar séu sjálfstæðar athuganir með íslenzkt hey. Eins og ég hefi tekið fram áður, er það oft gjörólíkt erlendu heyi bæði um gras- tegundir og verkun, og það er hér á landi aðalfóðrið — langsamlega þýðing- armesta fóðrið, — en þó má það heita lítt rannsakað enn sem komið er. Það er ómótmælanleg staðreynd, að við vitum allt of lítið um heyið okkar. Við þekkj- um ekki næringargildi þes,s til hlítar. Við vitum ekki með vissu hverjar kröf- ur er hægt að gera til þess um afurða- myndum, og það er jafnvel ekki vel Ijóst, að hve miklu leyti er óhætt að treysta því, til þess að viðhalda lífi og heilsu búfjárins. 1 því sambandi vil ég benda á þá alkunnu staðreynd, að það hefir þrásinnis komið fyrir, að fénaður hefir fallið hér á landi, þó að nóg hey hafi verið fyrir hendi að vöxtum til. Sá feliir hefir því ekki stafað af heyskorti, held- ur af því að einhver nauðsynleg efni hef- ir vantað í heyið, sem þar af leiðandi hefir verið mjög lélegt fóður. Bændum hefir ekki verið nægilega ljóst hve lítils- virði heyin voru og þessvegna treyst þeim um of. Það er því nauðsynlegt að leiðbeina bændum um þessi efni, en ef hægt á að vera að 'veita leiðbeiningar, sem ekki geta brugðist, er óhjákvæmi- legt að rannsaka heyið. Markmið hey- rannsóknanna er að afla upplýsinga um fóðurgildi hinna ýmsu heytegunda okk- ar, og sé þá tekið tillit til þroskastigs grasanna þegar slegið er, og eins til þess hvernig verkunin hefir tekist. Á þann hátt fæst vitneskja um, hve miklum afurðum, t. d. mjólk, má búast við, fyrir ákveðinn þunga af heyi, en af því sést aftur hvort nauðsynlegt er að gefa kjarnfóður með því eða ekki. Ennfremur hvaða tegundir skuli nota, hve mikið af þeim og í hverjum hlutföllum. Það vantar mikið á að þessi atriði séu nægi- lega upplýst, og þó að reynt sé að gefa leiðbeiningar um þau, þá eru þær leið- beiningar að meira eða minna leyti byggðar á ágiskunum, meðan heyið er ekki ítarlega rannsakað. — Einn nauð- synlegur þáttur í heyrannsóknum eru athuganir um innihald þess af stein- efnum. Það er enginn vafi á því, að íslenzkt búfé er iðulega sjúkt af stein- efnaskorti, og hlýtur það að stafa af vöntun þessara efna í heyið, eða óheppi- legum hlutföllum milli þeirra innbyrð- is. Nokkrar steinefnarannsóknir á ís- lenzku iheyi hafa að vísu verið gerðar, en þær eru allt of fáar til þess, að af þeim sé hægt að draga verulegar álykt- anir um það, að hverju leyti íslenzku

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.