Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 5

Freyr - 01.05.1937, Blaðsíða 5
P R E Y R 67 Um fóðurrannsóknir V. Framtíðarverkefni í fóðurrannsóknum. Eftir Þóri Guðmundsson. Efnagrein- * fyrri erindum hefi ég get- ingar og þess, aö elnagremmgar fóöurgiidi. eru þýðingarmikui og nauð- symegur þáttur i lööurrannsóknum, og oít eru þær jafnvel undirstaða þeirra. En ég tók emmg fram, að einar saman geí'a þær ekki nægiiegar upplýsingar um fóðurgildið, og á þetta sérstaklega við um gras og hey. Það er algengt að efnagreiningar af ólíkum tegundum heys geta verið mjög svipaðar, þó að reynslan hafi sýnt að mikill munur var á næringargildi sömu heytegunda. — Venjulegar fóðurefnagreiningar á heyi gefa upplýsingar um innihald þess af vatni, ösku, eggjahvítuefnum, feiti og kolvetnum, en á hinn bóginn segja þær ekkert um það hve mikill ihluti næring- arefnanna kemur líkamanum að notum, en það er einmitt mjög mismunandi, eft- ir því hvaða grös eru í heyinu, hvort það er snemmslegið eða síðslegið, hvernig verkunin hefir tekist o. fl. — Til þess að geta ákveðið fóðurgildið með sæmilegri nákvæmni, þurfum við að vita hve mik- ið af næringarefnunum, sem til staðar eru samkvæmt efnagreiningu, er melt- anlegt. f sambandi við þetta má geta um, að oft er notuð aðferð, sem byggist á efnagreiningum einum saman, svo nefnd pepsín-saltsýru-rannsókn, til þess að ákveða meltanleg eggjahvítuefni í fóðri. En aðferðin er tæplega ábyggileg, þegar um gras og hey er að ræða, þó að hún sennilega sé vel notihæf við rann- sóknir á eggjahvíturíku kjarnfóðri. Enn fremur fást á þennan hátt engar upplýs- ingar um það, hve mikið meltist af feit- mni eöa Koivetnunum, en þau siöar- nemau eru emmict aoamærmgareimn 1 heyi. Dýratil- Það er Þvi svo» nauðsyn- raunir eru legt verður að láta skepn- nauosyn- urnar sjálfar svara spurn- legar. ingunni um það, hve miKið meltist af nænngarelnum íóðursins. Á þann hátt eman fást upplýsingar, sem um fóðurgildið við má una. En þá er nauðsynlegt að gera sérstakar dýratii- raunir og rannsóknir, svonefndar melt- anleikaákvarðanir, og hafa þær ekki verið gerðar hér á landi fyr en á síðast- liðnum vetri. Erlendis hefir verið gert allmikið að slíkum rannsóknum, en þó eru þær í raun og veru ekki eins marg- ar og ætla mætti, þegar þess er gætt jhve nauðsynlegar og þýðingarmiklar þær eru. Stafar þetta vafalaust af því, að rannsóknirnar eins og þær oftast hafa verið gerðar, eru umsvifamiklar og dýrar. En síðustu 10—20 árin hefir Sví- inn, prófessor Harald Edin, sem ég minntist á í fyrsta erindi mínu, skipu- lagt og fær í kerfi sérstaka starfsað- ferð, til þess að finna hve mikið meltist af næringarefnum fóðursins. Próf. Edin hefir, með margvíslegum og nákvæm- um tilraunum og rannsóknum, fært rök að því, að þessi aðferð er ábyggileg, og að hún er auðveldari, ódýrari og þó að sumu leyti fullkomnari en eldri aðferð- ir. Hún hefir verið prófuð í Danmörku, og danskir fóðurfræðingar og efnafræð- ingar hafa lokið á hana lofsorði, og við fóðurrannsóknir í Bandaríkjum Ame- ríku og í Finnlandi, hefir aðferð Edins einnig verið beitt með góðum árangri. En að sjálfsögðu hefir ihún verið notuð langmest í Svíþjóð, enda liggja nú fyrir allmargar sænskar meltanleika ákvarð- anir á ýmsum tegundum fóðurs.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.