Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1938, Blaðsíða 9

Freyr - 01.09.1938, Blaðsíða 9
FRE YR 135 •— -------->-------------------------- fjárhús, hesthús og hlöður, bæði á heima- jörðinni og á 2 jörðum er Torfi átti út í Saurbænum og hafði undir, því að úthey- skapur var sem fyr segir lítill á heima- jörðinni. Bústofninn var 15 nautgripir, um 450 fjár og um 30 hross. Eins og sjá má af þessari upptalningu voru það engar smáræðis byggingar, sem Torfi hafði komið upp í Ólafsdal — og hafði hann þóírauninni byggt jörðina upp tvisvar áður — eða litlar jarðabætur á þeim tíma, og ekki undarlegt þótt fjár- hagurinn væri þröngur, með þeim litla styrk, er skólinn naut, enda var Torfi um aldamótin kominn í 17—18 þús. kr. skuld við amtið. Hann bauð þá amtinu fasteign- ir sínar allar, Ólafsdal, Belgsdal og Stóra- Múla, svo og búið til kaups, á virðingar- verði (er mun hafa verið um 44 þús.), eða því verði er um gæti samist. Ekki vildi amtið ganga að boðinu á neinum grundvelli en gaf skuldina eftir. Lá þá við borð að skólinn leggðist niður, en kapp Torfa og kjarkur varð yfirsterk- ara öllum erfiðleikum, og fáum árum síðar skrifar hann mér, að hann sé stað- ráðinn í að halda skólanum áfram ,,með- an hryggurinn tollir uppi“. En þá bætist það ofan á f járhagslegu örðugleikana, að dauðinn leggur 5 efnileg, fullorðin börn þeirra hjóna í gröfina, á örfáum árum. Torfi missir sjón á öðru auga, og Al- þingi (1905) lækkar styrkinn til skól- ans úr 2500 krónum ofan í 1500 kr. (1907), til verklegrar kennslu, og lætur á sér skilja, að ekki sé lengur styrks að vænta. Þar með sá Torfi fyrir örlög 6. barnsins, skólans, sem hann hafði fórnað starfskröftum sínum fyrir, og hetjan beygir kné sín og gefst upp, fyrir þeirri stefnubreytingu, sem orðin er í búnaðar- fræðslumálum og hann var eindregið mótfallinn — en nú er aftur verið að hverfa frá. Hann segir um þetta í bréfi til mín, haustið 1905: „Ólafsdalsskólinn og Eiðaskólinn skulu hætta við vetrarkennslu, en fá fyrst um sinn styrk til verklegrar kennslu. — Ég tel nú samt upp á, að Eiðaskólinn verði ekki lagður niður, Austfirðingar una því ekki. En skólinn héma á engan að nema mig, og ég er efnalaus og uppgefinn, svo að ég get ekki haldið í honum lífinu, annars skyldi ég gjöra það.--------Ég held þó áfram skólanum í vetur og veturinn 1906—07 ef ég lifi, og svo hvolfi ég útvegnum". Um þær mundir, sem Torfi vildi selja amtinu skólann, minnist Björn Jónsson ritstjóri — sem dáðist mjög að Torfa — á, að margir telji eftir launin hans, 800 kr. og telji honum vorkunnarlaust að reka skólann með þeim styrk, sem hann fær, en bendir á, að ekki þyki boðlegt minna en 3000 kr., fyrir álíka kennslu- starf og það, sem Torfi innti af hendi og segir með djúpri fyrirlitningu, á þeim hugsunarhætti ,sem kemur fram gagn- vart Torfa: „Það er von þeir hafi orð á því — miklu minna en borið er við að bjóða hinum lélegasta sýslumanni í eftirlaun!" Guðjón Guðlaugsson, alþing- ismaður á Ljúfustöðum, vinur Torfa, tók og kröftuglega málstað hans á þingi, og í blöðum, með egghvössum rökum, sem honum voru lagin, bæði þegar amtsráð- ið hafnaði tilboði Torfa um sölu á eign- unum og amtið tæki að sér skólann — og endranær. Og marga fleiri talsmenn átti hann, þótt ekki kæmi að því liði, sem dugði. Slík urðu laun langfremsta brautryðj- anda landbúnaðarframfara og búnaðar- menningar, sem þjóðin hafði þá eignast og notið, og það er á engan hallað, þótt sagt sé, sem þjóðin hefir enn eignast, þeg- ar allar ástæður eru rétt metnar.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.