Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1938, Side 14

Freyr - 01.09.1938, Side 14
140 F R E Y R Var hann þá á landbúnaðarsýningunni á Bellahöj og á þingi norrænna búvísinda- manna í Uppsölum. Aðalviðfangsefni Halldórs við rann- sóknir hans á kjötgæðum hinna ýmsu fjárkynja (einkum skozkra), var ná- kvæmur samanburður á vaxtarlagi, bráð- þroska, vöðvabyggingu og öðru eðli og sérkennum kjötsins hjá fjárkynjunum og margt fleira. Með þessum rannsóknum lagði hann grundvöll að því, hvernig hægt er að dæma um gæði kjötsins, með því að mæla kroppana. Verða þær mæl- ingaaðferðir sennilega við hann kenndar og helztu niðurstöðuatriði þessara mæl- inga og annara rannsókna hans, verða gagnlegar fyrir þá, sem þurfa að dæma fé á fæti og meta kjöt. Halldór tók, sem eðlilegt var, íslenzkt dilkakjöt með í rannsóknum sínum og samanburði, og reyndist svo, að íslenzku lömbin þoldu illa samanburð við jafn- þung lömb af skozkum kynjum á sama aldri. Helztu gallar þeirra eru, að þau eru háfættari og beinastærri en annað fé, er rannsakað var. Einnig reyndust þau (af sömu ástæðum) holdþunn og ekki nógu feit á verðmætustu hlutum kropps- ins: spjaldhrygg og lærum. Þann ókost höfðu þau líka, að vöðvarnir voru of dökkrauðir og verður það mest áberandi á mögrum kroppum, sem lengi eru geymdir í frosti. Ein orsökin sem þessu veldur, virðist vera langur rekstur til slátrunar. Það atriði rannsakaði Halldór nokkuð á Akureyri í fyrrahaust, á lömbum úr Bárðardal, sem sum voru flutt á bíl til Akureyrar, en sum rekin þangað og slátr- að strax, er þau komu úr rekstri, og höfðu kropparnir af reknu lömbunum dekkri vöðva. Fyrir allmörgum árum rannsakaði Gísli Guðmundsson gerlafræðingur áhrif reksturs og þreytu á kjötið og komst að sömu niðurstöðu (meira blóð í kjötinu og annarleg efnasambönd). Telur Halldór nauðsynlegt að rann- saka þetta nánar, og þá jafnframt að rannsaka hvort lömbin léttist ekki svo mikið, við langan rekstur til slátrunar, að bílflutningar borgi sig, þar sem þeim verður við komið og rekstrarleið er löng. Einnig þykir honum vert að athuga hvort ekki sé ástæða til að hafa styttri ,,dag- leiðir“, í fjallgöngum, einkum á víðáttu miklum afréttum, svo að fara megi hæg- ar með féð og þreyta það minna. Þann kost reyndist íslenzka dilkakjöt- ið að hafa í bezta lagi, að það er mjög fíngert að vöðvabyggingu og þess vegna er það líka ljúffengt. Ekki gerir Halldór ráð fyrir að dokt-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.