Freyr - 01.09.1938, Page 17
PEEYfc
143
Hófst hún kl. 2 e. h. í kennslustofum
skólans með ræðu, er formaður félags-
ins, Kristinn Guðlaugsson bóndi á Núpi
flutti.
Þá var lesinn húslestur af Birni Guð-
mundssyni skólastjóra, lesturinn um lilju-
grös vallarins, eftir sr. Pál Sigurðsson.
Sungnir sálmar bæði fyrir og eftir.
Að húslestrinum loknum var gengið
til borðs í leikfimissal skólans. Á borðum
var íslenzkur hátíðamatur, er verið hef-
ir: hangikjöt o. fl.
Yfir borðum flutti Kristinn Guðlaugs-
son inngangskaflann og sögu félagsins,
en hann og Jóhannes Davíðsson bóndi í
Neðri-Hjarðardal höfðu samið sögu þess
og um leið menningarsögu hreppsins síð-
astliðna hálfa öld.
Eftir að staðið var upp frá borðum,
var gengið í Skrúð og garðurinn skoðað-
ur.
Að því loknu var aftur safnast í
kennslustofum skólans og flutti þá Björn
Guðmundsson skólastjóri ræðu, er hann
nefndi um daginn og veginn.
Næst flutti Jóhannes Davíðsson þrjá
kafla úr sögu félagsins og sveitarinnar;
um garðrækt, heyskap og búpenings-
rækt. Síðan söng blandaður kór, undir
stjórn Hauks Kristinssonar bónda á
Núpi nokkur lög.
Að söngnum loknum flutti Krástinn
Guðlaugsson enn framhald af sögu fé-
lagsins og sveitarinnar: Um menningar-
mál. Síðan var gengið til leikfimisals
og drukkið kaffi. Yfir borðum flutti pró-
fastur Sigtryggur Guðlaugsson ræðu um
búskap og sveitalíf og áhrif sveitabú-
skapar til þjóðþrifa og menningar. Að
kaffidrykkjunni lokinni var enn safnast
saman í kennslustofum skólans. Las þá
skólastjóri smásögu og nokkur kvæði.
Síðan söng Sigtryggur Kristinsson bóndi
í Alviðru nokkur lög og lék Haukur
Kristinsson undir á orgel.
Jóhannes Davíðsson afhenti þá félag-
inu afmælisgjöf, sjóð að upphæð krónur
780.00, er félagsmenn hafa safnað und-
anfarin ár, með því að hver bóndi lét
einn gimbrargemling eiga lamb og gaf
andvirði þess til sjóðsmyndunarinnar. •—
Sjóðurinn á að heita: Afmælissjóður
Búnaðarfélags Mýrahrepps, og verkefni
hans fyrst um sinn það, að lána bændum
fé til framkvæmda þeirra, er jarðabóta-
styrkur nær til, þar til styrkurinn er út-
borgaður. Þá tilkynnti formaður félags-
ins, að stofnun sparisjóðs, er félagið hef-
ir haft með höndum undanfarið, væri
þannig komið, að öllum undirbúningi
væri lokið, aðeins ættu ábyrgðarmenn
eftir að kjósa tvo menn í stjórn sjóðsins.
Þá fluttu félagsmenn og gestir, kvæði,
kveðjur og ræður. Guðmundur Guð-
mundsson bóndi á Sæbóli flutti félaginu
kvæði.
Af gestanna hálfu flutti skólastjóri
Ólafur Ólafsson á Þingeyri, snjalla ræðu,
Guðmundur Ingi Kristjánsson bóndi á
Kirkjubóli las nokkur kvæði frumsamin
og þar á meðal kveðju til félagsins.
Fleiri gestir töluðu einnig.
Áður en horfið væri heim, var hress-
ing borin á milli fólksins og skemmtu
menn sér undir lokin við samræður og
almennan söng, síðast var sunginn sálm-
ur og hófinu slitið klukkan 1 um nóttina.
Fóru flestir heim til sín að því loknu.
J. D.
Sumarslátrun sauðf jár var fyrst leyfð í
lok ágústmánaðar. Heildsöluverð var þá
ákveðið kr. 1,80 á kg. dilkakjöts, en
lækkar í kr. 1,50 um miðjan sept. Verð-
uppbót er ákveðin á saltkjöti 6 aurar
en á freðnu dilkakjöti 5 aurar á lcg.