Freyr - 01.01.1939, Síða 7
Theodór flrnbjörnsson, frá Osi.
Fæddur 1. apríl 1888 — Dáinn 5. janúar 1939.
Um 1920 urðu miklar breytingar á Bún-
aðarfélagi íslands. Fjárframlög uxu stór-
um til félagsins, svo að því var fært að
taka ný verkefni til meðferðar. Starfs-
mönnum félagsins fjölgaði. Hópur ungra
áhugamanna gekk í þjónustu þess um það
leyti. Einn þeirra manna, sem þá hóf starf
sitt hjá Búnaðarfélagi Islands, var Teo-
dór Arnbjörnsson, frá Ósi. Frá þeim tíma
hefir hann unnið óslitið hjá félaginu.
Þann 5. janúar síðastl. kom Theodór
Arnbjörnsson, eins og venja hans var, á
skrifstofu félagsins og gegndi þar gjald-
kerastörfum og öðrum skyldustörfum sín-
um. Síðasta verk hans var að telja í sjóði
og fullviss# sig' um, að hann væri réttur.
Klukkan rúmlega 5 síðdegis stóð hann upp
frá störfum, jafn rólegur í yfirbragði og
gjörhugull og hann var vanur, kvaddi mig
með handabandi og hélt heim. Rúmri
klukkustund síðar hringdi kona hans til
mín og segir mér að hann sé andaður.
Mér hefir sjaldan eða aldrei orðið jafn
hverft við dánarfregn. Að vísu var mér
kunnugt, að Theodór gekk með hættuleg-
an hjartasjúkdóm, sem gat valdið dauða,
hvenær sem verða vildi. En sjá hann, að
því er virtist hraustan, klukkustund áður
en andlátið er tilkynnt, veldur því. Ekki
hefi ég getað varizt því, að í huga minn
hefir komið, að hann sjálfur hafi 5. janúar
haft meira eða minna óljóst hugboð um, að
vistaskipti væri fyrir höndum. Sjóðtalning
Theodór Arnbjörmson.
þennan dag og hlýtt handtak, þegar hann
kvaddi mig, vekja þennan grun minn.
Theodór Arnbjörnsson er fæddur að
Stóra-Ósi í Miðfirði 1. apríl 1888. Faðir
hans var Arnbjörn Bjarnason, hrepps-
stjóri, sem lengi bjó rausnar- og myndar-
búi á Stóra-Ósi. Faðir Arnbjörns var
Bjarni Thorarensen, er síðast bjó á Stóra-
Ósi, af hinni alkunnu Thorarensens-ætt.
Móðir Theodórs hét Sólrún Árnadóttir, af
góðum bændaættum á Vatnsnesi. Að Theo-
dór stóðu því ágætis bændur í fleiri liði í
báðar ættir.
Theodór ólst upp á Stóra-Ósi, til fullorð-
ins ára. Þótti hann snemma bera af öðrum