Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1939, Qupperneq 8

Freyr - 01.01.1939, Qupperneq 8
2 F R E Y R ungum mönnum um greind og gjörvileik. I Hólaskóla fór Theodór haustíð 1911 og lauk þaðan prófi vorið 1913, þá 25 ára gamall. Vakti hann mikla eftirtekt, vegna óvenju mikils þroska og hæfileika. Næstu ár eftir skólaveru sína var Theodór vinnu- maður hjá Sigurði Sigurðssyni, skólastjóra á Hólum, og mun hafa annast sauðfárhirð- ingu þar. Vorið 1917 reisti hann bú á Lambanes- reykjum í Fljótum og kvæntist 1919 Ingi- björgu Jakobsdóttur frá Illugastöðum á Vatnsnesi, hinni mestu hæfileika- og sæmdarkonu. Árið 1919 var Sigurður Sigurðsson ráð- inn til þess að vera forseti Búnaðarfélags íslands. Vegna viðkynningar sinnar við Theodór, bæði sem nemanda og síðar vinnumanns, lék honum mikill hugur á að fá hann að Búnaðarfélagi íslands. Þetta mun meðái annars hafa ráðið því, að árið 1919 brá Theodór búi, sigldi þá um haust- ið og stundaði nám við Landbúnaðarhá- skólann í Kaupmannahöfn þann vetur. — Lagði hann einkum stund á líffærafræðí og búfjárfræði. Kom hann heim frá námi sumarið 1920, tók þá strax við starfi sem ráðunautur Búnaðarfélags íslands og hefir gegnt því síðan. Ráðunautur í hrossarækt hefir Theo- dór verið allan þennan tíma. Til 1928 hafði hann sauðfjárræktina einnig með hönd- um. Þá hefir hann og frá því fyrst hann kom til Búnaðarfélagsins haft eftirlit með starfi fóðurbirðgafélaganna. Gjaldkeri fé- lagsins varð hann frá 1934. Eftir Theodór hafa komið út tvær bækur í aðalfræði«;rein hans, hrossaræktinni. Hestar 1932 og Járn- ingar 1938. Auk þess skrifaði Theodór fjölda margar greinar um búfræðimál í Búnaðarritið, Frey og víðar. Hér hefir stuttlega verið skýrt frá störf- um Theodórs, en það, sem hér hefir ver- ið nefnt, er aðeins þur upptalnig, en segir íítið um manninn sjálfan, áhrif hans og eiginleika. Aðalstarf Theodórs var hrossaræktin. Þekking hans á íslenzkum hestum var frá- bær, svo að óhætt er að fullyrða, að á því sviði hefir hann staðið öllum öðrum fram- ar. Hann elskaði hestana. Hann skoðaði þá sem t'élaga og vini okkar mannanna, en ekki réttlausar, skynlausar skepnur. Það var ást hans á starfi sínu og á hestunum, sem ég meðal annars dáði hann fyrir, vegna þess, að þar var ekki um uppgerð að ræða. Bækur hans bera þess glögg vitni. Aðalrit Theodórs, „Hestar“, er að mín- um dómi eitt helzta öndvegisrit, sem út hefir komið á íslenzka tungu. Hann var svo vel ritfær, að þar má óefað telja hann í fremstu röð, og þeirra, er um búfræði rita, stóð hann fremstur allra. í „Hestum“ kem- ur glöggt í ljós hin yfirgripsmikla þekk- ing hans á íslenzkum hestum. Hann þekk- ir helztu ættir þeirra og getur rakið þær í fleiri liðu. En.þó dáist ég meira að skiln- ingi hans á sálarlífi hrossanna. Á þann hátt geta ekki aðrir skrifað um það efni en þeir, sem sameina óvenju hæfileika og mikla þekkingu, en umfram allt hafa ást á viðfengsefninu. Annað aðalrit hans, „Járningar“, sem út kom nú rétt fyrir áramótin, hefir sömu kosti. Málið ágætt, efnismeðferðin prýðileg, en á bak við finn- ur lesandinn glöggt undiröldu skilnings og samúðar með hinum varnarlitlu dýrum. Ég tel að hver bóndi og aðrir, sem skepn- ur hafa undir höndum, þurfi að lesa bæk- ur Theodórs. Þær hljóta að glæða þann skilning, að hesturinn sé „vinur mannsins og félagi“, eins og Theodór kemst að orði í niðurlagi „Hesta“. Þessi siðaboðskapur, sem Theodór hefir gerzt öflugasti og á- hrifaríkasti talsmaður fyrir, á erindi til

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.