Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1939, Síða 12

Freyr - 01.01.1939, Síða 12
6 F R E Y R ur, en s.l. ár 17,23 millj. 1., er skiftast á mjólkurbúin sem næst þannig: Mjólkurbúin í Reykjavík, Flóa, Ölfusi og' Borg- arnesi ............... 13,18 millj. 1. Mjólkursamlag K.E.A. . . 3,11 — - Mjólkurbú Skagfirðinga 0,52 — - Mjólkurbúið á Akranesi 0,20 — - Mjólkurbúið á ísafirði . . 0,19 — - Auk þess, sem mjólkurbúin taka við til sölu, er talið að bein mjólkursala frá framleiðendum til neytenda hafi numið um 4 millj. lítra, eða sem svarar um 1600 kýrnytjum. Eru þá meðtaldir kaup- staðir landsins og kauptún (en það var ekki gert í áramótagrein blaðsins í fyrra, þar sem mjólkursalan utan mjólk- urbúanna var talin 1,5 millj. 1.). Þegar leið á árið safnaðist smjör fyrri, og var þá aftur fyrirskipuð blöndun smjörs (5%) í smjörlíki frá 1. des. Af ostum voru seldar úr landi um 112 smálestir, samkvæmt bráðabirgða- skýrslum Hagstofunnar, og verðið fyrir þá nam alls um 121,5 þús. króna, sam- kvæmt sömu heimildum, eða um kr. 1,08 á kg. Sömu heimildir telja útflutt hross 372 og verð fyrir þau alls kr. 59 þús. eða sem næst kr. 160 á hvert. Er þetta minna en verið hefir undanfarin ár, en innan- lands hefir markaður aukist, fyrir af- sláttarhross, með aukinni loðdýrarækt. Þó hefir hrossum fjölgað töluvert í land- inu hin síðustu árin. Loðdýrarækt (refa- og minkarækt) er töluvert vaxandi, en lítið gætir henn- ar þó enn í utanlands viðskiftum. Bæði er það, að nokkuð selst af skinnum inm anlands — og kemur hvergi á skýrslur — mikið er selt til lífs, og útflutt grá- vara kemur tæplega öll til framtals í opinberum skýrslum. Samkvæmt talningu, er Loðdýrarækt- arfélag íslands lét gera s.l. haust, í sambandi við refamerkingar —- og mat á refum — lætur nærri, að þá hafi alls verið til 4220 silfurrefir, 680 blárefir og sennilega um 2000 minkar. 1 félaginu voru þá um 370 meðlimir — þvínær allir loðdýraeigendur sem þ,á voru í landinu, en síðan hefir loðdýra- eigendum fjölgað og ný loðdýrabú ris- ið upp. S.l. sumar var hér í blaðinu skýrt frá sýn- ingu þeirri — aðallega gripasýningu —• er Búnaðarsamband Suðurlands hélt þá við Þjórsárbrú, í tilefni af 30 ára afmæli sinu, og í síðasta blaði var sagt frá hin- um árlegu búfjársýningum, sem haldn- ar voru s.l. sumar. Vísast hér til þess sem þar er um þessar sýningar allar sagt. Garðyrkjufélag íslands hafði í haust garðyrkjusýningu í Grænmetisskálan- um í Reykjavík. Hefir blaðið lengi átt von á grein um sýninguna — og bíð- ur hennar enn — svo ekki verður henn- ar getið nánar að þessu sinni. Aðeins má geta þess, að þegar undan er skilin sýning á kartöfluafbrigðum frá Sáms- stöðum, var sýningin mestmegnis blóma- sýning og sýning á gróðurhúsaræktun og ræktun í heitum jarðvegi. Var þar margt sem augað gladdi og einnig margt girni- legt til matar. Sýningin var smekkleg og aðsókn ágæt. Þá var og á öndverðum vetri haldin sýning á sama stað á prjónlesi o. fl. ullarvinnu. Stóðu þær fyrir þeirri sýn- ingu frúrnar Anna Ásmundsdóttir og Laufey Vilhjálmsdóttir. Sýningin bar vitni um mikla fjölbreytni í þeirri grein ullariðnaðarins, sem aðallega var sýnd þar, m. a. hversu margvísleg og fögur

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.