Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 3

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 3
Tím. V. F. í. 1945. 4. liefti. Um Skeiðfossvirkjunina. Erindi flutt á fundi V. F. í. 14. marz 1945. Eftir Jakob Guðjohnsen rafmagnsverkfræðing. 1 2. hefti tímarits V. F. I. ársins 1945 hefir K. Langvad verkfræðingur lýst byggingarframkvæmd- um við virkjun' Skeiðfoss í Fljótá fyrir Siglufjarðar- kaupstað. Hér að neðan skal nú gerð grein fyrir ákvörðun á stærð virkjunarinnar og þess utan lýst þeim hluta virkjunarinnar, vélum og orkuveitu, sem ekki er talað um í grein Langvads. I. Ákvörðun á stærð virkjunarinnar. Veturinn 1937-1938 var gjörð frumáætlun um virkjun Fljótár af vatnamáladeild vegamálaskrifstof- unnar og rafmagnseftirliti ríkisins. í áætlun þessari komu fram allvíðtækar rannsóknir, sem gerðarvoruá “’aforkuþörf Siglufjarðar annars vegar og virkjunar skilyrðum Fljótár hins vegar. Útreikningar þeir, sem hér fara á eftir, eru byggðir á þeim rannsóknum, sem fyrir frumáætluninni lágu, og er árangur þess- ara rannsókna á raforkuþörfinni og vatnsrennslinu sýndur hér í töflum og línuritum. 1) Rennsli Fljótár Vatnsrennslismælingar í Fljótá voru fyrst gerðar 1920 og 1921, en stöðugt síðan haustið 1929. Hefir Ásgeir Bjarnason, raffræðingur á Siglufirði, séð um framkvæmd og tilhögun mælinganna. Á 1. línuriti er sýnt mánaðarennsli Fljótár á árun- um 1930—1937, óslitið í 8 ár. Enda þótt mælitíma- Lilið sé stutt, fæst þó með mælingum þessum allgott yfirlit um rennsli Fljótár. Sést að mánaðarmeðal- rennsli árinnar er allmisjafnt frá 2,8 upp í 71,8 millj. 11:13 á mánuði. Ársframrennslið er aftur á móti furðu jafnt, 200- 260 millj. m3 á mánuði. Venjulega er rennslið mest í maí, júní og júlí, en rninnst yfir vetrarmánuðina frá desember fram í aprílmánuð. Lægst varð vetrarrennslið á tímabilinu 70 60 50 40 30 20 10 O JFriArtJJA 5 0 N D mió i.m 5 I93C /931 1 1 19Jí /93: /931 7 ’ — 193L /93t • /931 > — — — — — — — rsrrsi — — — — r/- — ----- — — Esiia — ij fr Ll li 1. línurit. Framrennsli Fljótár. ágúst 1935 til júní 1936, og ræður þetta tímabil að miklu um stærð virkjunarinnar, svo sem síðar verð- ur vikið að. Það er augljóst, að með svo misjöfnu rennsli sem i Fljótá, verður rúmtak vatnsgeymisins sérstaklega þýðingarmikið fyrir nýtingu vatnsins,

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.