Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Síða 18

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Síða 18
64 TÍMARIT V.P.I. 1945 Jóhannes Zoega er fæddur á Norðfirði 14. ágúst 1917, og eru foreldrar hans Tómas Zoega, sparisjóðsforstjóri þar, og kona hans Steinunn Símonardóttir. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskólanum í ReyJ.ja- vík 1936. Hann stundaði nám við verkfræðiháskólann I Miin- chen 1937—1939 og við verk- fræðiháskólann í Berlín, unz hann lauk prófi þar sem Dipl.- Ing. í vélaverkfræði 1941. — Réðst hann þá til Bayerische Motorenwerke í Munchen og starfaði þar til vorsins 1942, en var aðstoðarverkfræðingur við vélaverkfræðideild háskól- ans í Múnchen 1942—1945. Hann réðst til vélsmiðjunnar Hamars 1. okt. 1945. — Jó- hannes kvæntist Guðrúnu Bene- diktsd.óttur 17. nóv. 1945. Er hún dóttir Benedikts Sveinssonar, fyrrum alþingismanns, og konu hans Guðrúnar Pétursdóttur, fædd 10. okt. 1919. Sigurður l>orkelsson er fæddur á Akureyri 1. febr. 1914, og eru foreldar hans dr. phil. Þorkell Þorkelsson, veðurstofu- stjóri, og kona hans Rannveig Einarsdóttir. Tók hann stúd- entspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1932. Hann stund- aði nám við verkfræðiháskól- ann í Kaupmannahöfn 1933— 1939 og lauk prófi þaðan sem rafmagnsverkfræðingur. Réðst hann þá til Post- og Telegraf- væsenet í Kaupmannahöfn, fyrst sem aðstoðarverkfræð- ingur, en síðar sem konunglega skipaður verkfræðingur, og starfaði hann þar, unz hann fór til Islands 1945. Hann var skipaður verkfræðingur hjá póst- og símamálastjóra l.sept. 1945. —" Sigurður kvæntist 30. ágúst 1941 Emma Else Olsen. Er hún dóttir P. Olsen, vatnsveitustjóra í Viborg. Gunnar Tómasson er fæddur í Reykjavík 26. marz 1919, og eru foreldrar hans Tómas Jóns- son, kaupmaður, og kona hans Sigríöur Sighvatsdóttir. Tók hann stúdentspróf frá Mennta- skólanum í Reykjavik 1938 og stundaði siðan nám í vélaverk- fræði við verkfræðiháskólann í Kaupmannahöfn, unz hann lauk prófi frá honum 1944. Réðst hann þá til Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn og starfaði þar til hann hvarf til Islands í ágúst 1945. Hann er ráðinn verkfræðingur hjá vél-. smiðjunni Hamar í Reykjavík frá 14. Sept. 1945. Gunnar Böðvarsson er fæddur i Reykjavík 8. ágúst 1916, og eru foreldrar hans Böðvar Kristjánsson, menntaskólakennari, og kona hans Guðrún Thorsteinsson. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1934. Stundaði hann nám í vélaverkfræði við verkfræðihá- skólann í Stokkhólmi skólaárið 1934—’35, við verkfræðiháskól- ann i Múnchen 1935—’36 og síðan við verkfræðiháskólann í Berlin, unz hann lauk prófi frá þeim skóla 1943. Réðst hann þá til A/S Atlas í Kaup- mannahöfn og starfaði þar, unz han hvarf heim að ófriði loknum, sumarið 1945. Hann réðst til Raf magnsef tirlits ríkis- ins 15. júní 1945, og hefir hann með höndum stjórn jarðborana rikisins. — Gunnar kvæntist 12. ágúst 1944 Tove Christensen. Er hún ættuð frá Kaupmannahöfn. J. E. V. Norrænt verkíræðingamót. 3. Norræna verkfræðingamótið (NIM 3) verður haldið í Stokkhólmi 27.—29. maí 1946, og taka öll Norðurlöndin fimm þátt í því. Var samþykkt á fundi í V.F.I. 12. des. 1945 ,,að kjósa. þriggja manna nefnd til að undirbúa og koma fram fyrir félagsins hönd í sambandi við" mótið, ,,en að loknum aðalfundi i febrúar n. k. taki hinn nýi formaður félagsins sæti í nefnd- inni sem fjórði maður". Voru Steingrímur Jónsson, Ólafur Sigurðsson og undirritaður kosnir í nefndina. Hefur Ólafur Sigurðsson, sem enn dvelur i Stokkhólmi, mætt á fundum undirbúningsnefndarinnar fyrir okkar hönd, og lýsir hann fyrirhugaðri tilhögun mótsins á þessa leið: ,,Að morgni fyrsta dagsins verður mótið sett með sameiginlegum fundi. Fulltrúi hvers lands talar í ca. 20 mín, ber kveðju landsins, og gefur yfirlit yfir framtíð og markmið iðnaðar og tæknilegra rannsókna síns lands. Eftir hádegisverð byrja fyrirlestrar í hinum mis- munandi greinum. Að morgni næsta dags halda þessir fyrirlestrar áfram og um eftirmiðdaginn er ráðgert að skoða rannsóknar- stofur í Stokkhólmi og nágrenni. Að morgni þriðja og síðasta dags eru fyrirlestrar, síðan sameiginlegur hádegisverður og þá lokafyrirlest- ur sameiginlegur fyrir allar deildir. 30. maí er helgidagur og mun þá sennilega verða stór flugsýning í Stokkhólmi, sem þátttakendur mótsins hafa aðgang að. Daginn eftir skiptist hópurinn og verð- ur farið í heimsókn til mismunandi iðnaðarfyrirtækja í Stokkhólmi eða út um land. Á þennan hátt byrjar mótið á mánudegi og lýkur opinberlega á miðvikudegi, en heldur áfram fyrir þá, er vilja, þar til á föstudag.” Gert er ráð fyrir, að af Islands hálfu verði fluttir tveir fyrirlestrar á mótinu, annar um Hitaveitu Reykjavíkur, en hinn um skipulag bæja hér á landi. Mun Helgi Sigurðsson flytja hinn fyrrnefnda, en Hörður Bjamason hinn siðamefnda eða einhver annar í forföllum þeirra. J. E. V. Steindórsprent h.f.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.