Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Side 8
38
TÍMARIT V.F.I. 1946
KEY
®Uronium 238 ð 235 in nofural
pToportions ob pure metol or
pure chomical compound
URANIU M
THORIUM*
(NF) Nucleor fuel
Purifled Thorium
Plutonium
e.g., energy for heot Q electric
power; rodíoactive fission
producfs Q isotopes; rodiotions
URANIUM THOR1UM THORIUM
BY-PRODUCTS FROM MINES DEPOsrrs BY-PRODUCTS
Framleiðsla kjaniorkueldsneytis. Yfirlitsmynd úr Scientific and Technical Aspects of The Control of Atomic Energy.
og öll stjórn á þeim fer fram með tækjum, sem
stjórnað er úr mikilli fjarlægð.
Að sjálfsögðu er einnig mikið af mælitækjum í
sambandi við turnana, svo auðvelt sé að fylgjast með
öllu sem gerist.
Sama er að segja um efnagreininguna. Henni er
allri stjórnað úr fjarska. Úraníumstengurnar eru
leystar upp í kerum, og upplausninni síðan dælt úr
einu kerinu í annað og botnfalli skolað burtu. Kerin
eru öll í röð í langri steypurennu, sem er að miklu
leyti neðanjarðar.
Yfirlit.
Af því, sem nú hefur verið sagt, er það ljóst: Að
tvö frumefni, U235 og Pu239 hafa þann eiginleika,
að þau klofna á gagngerðan hátt, ef á þau verka
neutrónur. Kemur fram við þetta mikil varmaorka
og auk þess myndast neutrónur við klofninguna. Ef
nægilegt magn er samankomið á einn stað af öðru
hvoru þessara efna, heldur breyting þessi áfram af
sjálfsdáðum, þegar hún einu sinni er komin af stað.
Efni þessi er því ekki hægt að geyma á einum stað,
ef farið er fram úr magni þessu, þvi ávallt geta
myndast einhverjar neutrónur í þeim af tilviljun
(radíóaktívitet, geimgeislar), og sundrast þau þá. Ef
magnið hins vegar er neðan við þessa krítisku stærð,
verður ekki sprenging, því of mikið af neutrónum
tapast þá út úr efnunum, svo að kjarnabreytingarnar
hætta. Efni sem hafa þessa eiginleika nefnast kjarn-
orkueldsneyti. Þótt aðeins þessi tvö efni hafi verið
framleidd í svo stórum stíl, að þau raunverulega
hafi verið notuð við orkuframleiðslu, má telja víst,
að fleiri slík efni séu til, en það eru efni af thoríum
eða actíníum-röðinni. Er sérstaklega gert ráð fyrir
því, að U233 hafi þessa eiginleika.
Efnum þessum má ,,brenna“ í reaktíonsturnum og
stjórna bruna þeirra eftir óskum. Annað hvort ma
nota efnin hreinsuð eða í blöndum með öðrum efnum.
Því hreinni sem efnin eru, því minni turna er hægt að
hafa.
Framleiðsla kjarnorkueldsneytis.
Framleiðsla efna þessara hefur nú verið rakin og
sést yfirlit um möguleika til framleiðslu á kjarnorku-
eldsneyti á myndinni hér að ofan.