Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Page 16
46
TÍMARIT V.F.Í. 1946
verksmiðjuframleiðslu mætti velja hana eftir því sem
reynslan sýndi, að hentast væri.
Auk framleiðslu á byggingarsteinum úr móbergi
mætti hugsa sér að glerkvoðan yrði notuð á annan
hátt. Glerull er nú mikið notuð í iðnaði, en við fram-
leiðslu hennar mun efnasamsetning kvoðunnar að
vísu verða að vera sérstök og önnur en samsetning
basalts. Hins vegar kæmi til athugunar að nota mó-
berg þegar svo stæði á, að efnasamsetning skipti
minna máli.
Við þessar bollaleggingar er aðeins vikið að hreint
fræðilegum hliðum málsins. En mér er vel ljóst, að
bæði gæti reynst svo, að f járhagglega hliðin yrði allt
annað en glæsileg og eins gæti verið um mjög mikla
tæknilega erfiðleika að ræða.
Mér hefur samt þótt rétt að leiða athygli að þeirri
merkilegu sérstöðu Islands, að eiga óþrjótandi birgð-
ir af náttúrlegu gleri, sem við fyrstu athugun virðist
fela í sér vissa tæknilega möguleika.
Summary:
Basalt rock can. be melted and formed to blocks and used
for pavement and building material. This being1 done to some
extent on industrial scale. As some Icelandie basalt formations
are of certain rare character (palagonite) some technical
aspects regarding such industry, as mentioned, are discussed.
The main characteristics of these basic rocks is their glassy
state. On cooling, glass instead of crystals have formed. On
remelting this difference in state is of great importance.
Melting 1 g of crystalline basalt requires about 400 cal. The
mean specific heat from 1—1300° C is ca. 0,23. Then heating
to the melting point (1300° C) requires 299 cal. Heat of
fusion is 90—100 cal. Glassy materials on the other hand
have no heat of fusion and not defined melting point, but
soften on heating. Thus by using palagonite instead of crystal-
line basalt 90—100 cal. would be saved if the rock was heated
to 1300° C. At lower temperature the glassy material might
be soft enough to be formed by applying pressure. At 900° C
viscosity of the basalt-glass is about 103—10' c. g. s. Compar-
ed with glassblowing which is done at a viscosity of 107 c. g. s.,
this should be low enough. Then heating to 900° C, only 200
cal/g are required compared to 400 cal/g for the crystalline
form.
Considering the cooling of lava the crystals form in a
certain temperature range. Above its upper limit the lava is
in melted form but at its lower limit increased viscosity re-
tards crystallization. Coarse crystalline formation occurs
close to the upper limit. In the middle of this temperature
range the crystals form at the highest rate. Small crystals
are formed. By fast cooling in this range a glassy materials
is formed.
These last mentioned aspects must be kept in mind when
cooling of the stone (moulds) is considered. A glass block
would not be fit as building materials and use of the common
Icelandic coarsy crystalline dolerite shows rather low dura-
bility.
Urskurður
gerðardóms Verkfræðingafélags íslands í máli Siglufjarðarkaupstaðar
gegn Höjgaard & Schultz A/S vegna virkjunar Slteiðsfoss.
Ár 1947 þriðjudaginn 21. janúar kom gerðardóm-
ur Verkfræðingafélags Islands saman á Laufásveg
25, og var þá tekið fyrir málið nr. 1/1946:
Sigluf jarðarkaupstaður
gegn
Höjgaard & Schultz h.f.
og í því kveðinn upp svofelldur
Úrskurður:
Hugmyndaruppdráttur (Idéprojekt) að virkjun
Skeiðsfoss í Fljótum í Skagafjarðarsýslu var fyrst
gerður á árunum 1929—1931, og síðan var unnið að
málinu til 1938, síðast af vegamálastjóra, sem jafn-
framt hefur af ríkisstjórnarinnar hálfu eftirlit vatns-
virkja, og forstöðumanni rafmagnseftirlitsins. Þeir
hugsuðu sér stífluna setta í útrennsli Fljótaár úr
vatninu, en töldu þó til greina koma þá tillögu, að
stíflan yrði sett 300 m norðar í ána. Árið 1941 bað
þáverandi bæjarstjóri Siglufjarðarkaupstaðar varn-
araðilja þessa máls að gera frumdrætti að virkjun
Skeiðsfoss með stíflunni 300 m í norður frá útrennsli
árinnar, og varð þá þrýstivatnspípan þeim mun
styttri en upphaflega var hugsað. Varnaraðili setti
vatnsborð uppistöðunnar í kóta 48,5, í stað kóta 49,5,
sem hann segir áður hafa verið ráðgert, með því
að hann taldi það öniggara vegna einstakra staða i
Stífluhólum, sem að nokkru leyti áttu að vera fyrir-
staða miðlunarvatnsins. Ráðgert var að leggja þrýsti-
vatnspípuna austan megin árinnar. Frumdrættir
þessir voru samþykktir af eftirlitsmanni vatnsvirkja.
Jafnframt gerði varnaraðili útboðsskilmála á ensku