Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Side 3
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 3
Nei, skólagjöld leysa engan vanda
Spurning dagsins
Á Pétur að víkja?
Við íslendingar erum miklir
eftirbátar annarra Norðurlanda-
þjóða í menntamálum og sérstak-
lega í málefnum háskólanna. ís-
land skipar einungis 14. sæti af 28
OECD-ríkjum í framlögum til
menntamála miðað við fólk á
skólaaldri, en íslendingar eru ung
þjóð með marga einstaklinga á
skólaaldri. Til að standa jafnfætis
öðrum Norðurlandaþjóðum þurf-
um við að auka framlögin um 30
prósent.
Tölurnar hér til hliðar sýna að
ekki nægjanlega margir íslending-
ar sækja sér framhalds- og há-
skólamenntun. Það getur að ýmsu
leyti skýrst af því að framhalds-
skólinn sé nokkuð einhæfur og
ekki hafi verið lagt nógu mikið upp
úr fjölbreyttum námsleiðum. En
einnig er of lítið fé lagt til fram-
halds- og háskólastigsins. Þennan
vanda þarf að leysa en hann verður
ekki leystur með upptöku skóla-
gjalda, heldur með heildarendur-
skoðun á menntamálum þjóðar-
innar.
Hagvöxtur eykst með auk-
inni menntun
Urn helgina birtist viðtal við ný-
skipaðan menntamálaráðherra,
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, í
Fréttablaðinu. Þar tekur hún já-
kvætt í það að tekin verði upp
skólagjöld ef það skili okkur aukn-
um hagvexti. Þetta finnst mér und-
arleg nálgun af hálfu menntamála-
ráðherrans, því eins og fram hefur
komið verjum við mun minni fjár-
munum til háskólastigsins en hin
Norðurlöndin og mun færri út-
skrifast með framhalds- og há-
skólamenntun.
Er hún að segja að sem mennta-
málaráðherra ætli hún að brúa
þetta bil með fjármagni frá nem-
endunum sjálfum? Hvernig ætlar
hún þá að fjölga nemendum - sem
eru hinn raunverulegi drifkraftur
hagvaxtar? Þorvaldur Gylfason hélt
athyglisvert erindi á nýafstöðnum
menntadegi Samtaka iðnaðarins.
Þar kom fram að fari 25-30 prósent
fleiri í hverjum árgangi í fram-
haldsskóla aukist hagvöxtur sjálf-
krafa um heilt prósent á ári. Aukin
sókn nemenda í framhaldsmennt-
un skilar okkur því auknum hag-
vexti. Lítil sókn eftir menntun er
Katrín Júlíusdóttir
vill fleiri
námsmenn.
Kjallari
því kjarni vandans að mínu mati, á
sama tíma og þar liggja einmitt
sóknarfæri okkar til aukins hag-
vaxtar. Að nálgast málið út frá
skólagjöldunum sjálfum finnst mér
röng nálgun. Við þurfum fyrst og
fremst fleiri útskrifaða nemendur.
„Kostnaðarvitund" og skóla-
gjöld
Margir talsmenn þess að taka
upp skólagjöld við ríkisháskólana
halda því fram að þá verði stúdent-
um fyrst alvara með náminu. Nauð-
synlegt sé að nemendurnir hafi svo-
kallaða „kostnaðarvitund" gagnvart
sínu námi. Þetta hefur gjarnan
heyrst frá þeim ungu sjálfstæðis-
mönnum sem helst vilja skólagjöld-
in. Þessi rök eru mikil einföldun því
námsmenn í háskólum eru án
tekna á meðan námi stendur og
þeir hafa ýmsan kostnað af námi
sínu. Þannig að háskólanám er nú
þegar afar þungt og þessi svokall-
aða „kostnaðarvitund" er án efa
þegar til staðar af þeim sökum. Við
megum ekki þyngja námstímann
enn með því að taka upp himinhá
skólagjöld. I áðurnefndu viðtali við
Fréttablaðið sagði menntamálaráð-
herra að sú aðgerð að taka upp
skólagjöld þyrfti ekki að hamla fólki
frá skólasókn því Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna myndi lána
fyrir þeim.
En sú aðgerð yrði að mínu mati
ekki til þess fallin að hafa áhrif á
þessa óskilgreindu „kostnaðarvit-
und" á meðan námi stendur. Nem-
endurnir þurfa þá ekki að eiga fyrir
skólagjöldunum, en hins vegar
þurfa þeir að greiða þau til baka að
námi loknu. Þá fyrst kemur skell-
urinn, sem er nú ekki til þess fallið
að bæta stöðu ungs fólks sem er að
koma sér fyrir í samfélaginu og er
sú byrði nú þegar allt of þung.
Samkeppni um nemendur
Á Norðurlöndum eru ekki
skólagjöld við ríkisháskóla. Skóla-
gjöld geta leitt til þess að við hverf-
urn aftur um hundrað ár þar sem
stúdentar fara utan til náms og
viðbúið að einhverjir komi ekki
aftur heim. Ef þeir þurfa hvort sem
er að greiða fyrir skólavist sína
hugsa þeir eflaust með sér að þeir
geti eins menntað sig í útlöndum.
Menntun og þekking íslendinga
gæti í auknum mæli ílust úr landi
þannig að íslenskt samfélag njóti
hennar ekki lengur. Við erum nú
þegar í bullandi samkeppni við
önnur lönd um unga fólkið og ekki
yrði þetta á þá stöðu bætandi.
Fjölgum nemendum
Háskóli íslands stendur nú
frammi fyrir því að þurfa að vísa
900 umsækjendum um skólavist
frá námi við skólann vegna 600
milljóna króna fjárskorts. Eða þá
taka upp harkalegar fjöldatak-
markanir og há skólagjöld til að
mæta fjárþörfinni.
Það er mín skoðun að ekki eigi
að nota skólagjöld til að bregðast
við þessum fjárhagsvanda. Ef við
ætlum að auka hagvöxt með
menntakerfinu eigum við að ráð-
ast á hinn raunverulega vanda -
þ.e. að fjölga nemendum og efla
þannig mannauðinn. Það er hags-
munamál fyrir þjóðina, og hags-
munamál fyrir atvinnulíflð, að fólk
geti stundað nám innanlands og
skili þekkingu sinni til samfélags-
ins.
Það á að vera hlutverk stjórn-
valda að skila heilbrigðum og vel
menntuðum einstaklingum af fjöl-
breyttum sviðum út í lífið. Okkar
fámenna þjóð á að reka metnaðar-
fullt menntakerfi sem allir hafa að-
gang að - einungis þannig getum
við styrkt okkur enn frekar í efna-
hagslegu og félagslegu tilliti meðal
þjóða.
STAÐREYNDIR UM SKÓLAMÁL
ísland Norðurlönd
Framlög til háskóla sem hlutfall af landsframleiðslu 0,8% 1,2-1,7%
Hlutfall (slendinga á aldrinum 25-34 ára með háskólapróf Hlutfall (slendinga á sam aldri með framhaldskólamenntun 27% 60% um 37% 86-94%
Stígurtil bakaog
hneigirsig
„Það liggur í hlutarins eðli. Ef
honum er annt um heiður sinn,
líkt og japanskur samúræi, þá
slíðrar hann sverðið, stígur til
baka og hneygirsig."
Bubbi Morthens,
tónlistarmaður.
„Ég sé enga
ástæðu til þess.
Hann hefur
hagsmuna að
gæta en ég
geri fastlega
ráð fyrirþví að
hann sé ekki
einn í nefnd-
inni."
„Mér finnst nú
bara að hann
ætti að víkja
svona al-
mennt."
Freyr Eyjólfs-
son, tónlist-
ar- og út-
varpsmaður.
Ragnar 'Sót' Gunnarsson,
Skriðjökull og athafnamaður.
„Já, tvímæla-
laust. Mér
finnst hann
vanhæfur í
þessu málieins
ogreyndarí
svo mörgum.
Ég segi eins og
Ragnar Reykás:
Það erskítalykt
afþessu. Það
getur vel verið að þetta sé ekki upp á
kant við þingsköp og þingvenjur en
þetta brýtur í bága við allt sem heita má
siðgæði. Allt virðist leyfilegt hjá ríkis-
stjórninni - og stjórnarandstaðan hefur
gert sig bera að þvíað vera alveg van-
hæftil að takast á við það og fara með
málefni fólksins í landinu."
Bjartmar Guðlaugsson,
tónlistarmaður.
„Já, mér finnst
nú eðlilegt að
hann geri það.
Hann á per-
sónulegra
hagsmuna að
gæta og er ein-
hvern veginn
beggja vegna
borðsins. Ann-
ars góður maður og réttsýnn i mörgu
sem hann hefur tekið sér fyrir hendur.
Eflaust góður i nefndinni. Má alls ekki
hætta þar að mínu mati."
Gaui litli,
heilsuræktarfrömuður.
Á Pétur Blöndal að víkja úr efnahags- og viðskiptanefnd í Spron-málinu?
Akureyri „Enginn Akureyringur getur hald-
ið áfram viðskiptum við Landsbankann þvi
aðalbankinn í Reykjavik er að fjármagna 2/3
afsöluverði ÚA til utanaðkomandi að-
ila, "segir bréfritari
Norðlendingar
launa Lands-
bankanum
Tryggvi Bjamason stýrimaöur
skrifar:
Salan á ÚA frá Akureyringum á
eftir að draga dilk á eftir sér - og er
ekki séð hvernig málið fer.
í fyrstu verður flótti viðskiptavina
Landsbankans á Akureyri, enginn
Akureyringur getur haldið áfram
Lesendur
viðskiptum við Landsbankann þvf
aðalbankinn í Reykjavik er að fjár-
magna 2/3 af söluverði ÚA til utan-
aðkomandi aðila. Auk þess var ferlið
við söluna óeðlilega stutt; ein nótt.
Það virðist sem ekki hafi átt að
hleypa KEA meira inn í umræðuna.
Þessi vinnubrögðum þekkja menn,
það er hvernig sjálfstæðismenn hafa
unnið við niðurlagningu ríkisfyrir-
tækja til sér vilhallra manna og kall-
að einkavæðingu. Stundum nefnt
einkavinavæðing.
En hafa Landsbankinn og Eim-
skip ekki gleymt einhverju? Jú, þeir
gleymdu staðarbúum, öllu Norður-
landi. Nú eru bankaviðskipti orðin
frjáls og ekki nema andartaksverk að
flytja öll viðskipti yflr í annan banka
eða sparisjóð, hvort heldur eiga í
hlut fyrirtæki og einstaklingar. Þarna
hefur KEA riðið á vaðið með það og
líklega verður Akureyrarbær að gera
það sama. Sýna, sem höfuðstaður
Norðurlands, samstöðu með Norð-
lendingum. Ella er stjóm Akureyrar-
bæjar ekki trúverðug. Svo verða önn-
ur fyrirtæki og einstaklingar að taka
sig saman og færa sfn viðskipti yfír til
annarra banka til að launa Lands-
bankanum kinnhestinn.
Svo er það flutningageirinn. Þar
eru að koma - eða komnir - nýir að-
ilar sem geta alveg staðið að flutn-
ingum fyrir Norðlendinga. Slíkt væri
lfka sparnaður hjá Eimskipi því þá
geta þeir lagt niður strandflutninga.
I framhaldi af því getur Landsbank-
inn flutt afgreiðslu sína til Eimskips
á Oddeyrinni og þannig sparað. Slíkt
heitir hagræðing. í Oddeyrarskála
verður bankinn með eitt afgreiðslu-
borð, því viðskiptin verða sennilega
ekki meiri svo að slíkt dugar.
Þetta verður hagræðingarsparn-
aður.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
BIÓMVND ARSINS
FRAMLAGISLANDS TIL OSKARSfOffi
LEIKARIÁRSINS
Tómas Lemarquis
ÚTLITIfVM
jjtóq SiBlflar Ragí^
eflir Dag Kára
ER K0MIN ÚT Á DVD 0G SÖLUMYNDBANDI.