Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 Fréttir DV Skjálftahrina Jarðskjálftahrina varð við Geirfugladrang á Reykjaneshrygg í gærmorg- un. Sterkasti skjálftinn mældist3,l á Richter í kjölfarið mældust tíu skjálftar, flestir í kringum 2 á Richter. í tilkynningu frá Veður- stofunni sagði að ekki hefði orðið vart gosóróa og ekkert benti til að eldgos væri í uppsiglingu. Mannaferðir til marz? Þór Jakobsson, veðurfræðingur. „Mér lýst stórkostlega vel á slíkar hugmyndir og tel að geimferðir, að ég tali nú ekki um leiðangrar til marz, víkki sjóndeildarhring mannkyns til mikilla muna. Það er okkur öll- um hollt að sjá hlutina úr fjar- lægð og utan úrgeimnum getum við séð hve fáfengilegt það er fyrir mannkynið að fara í styrjaldir þó ekki sé nema vegna smáskika og gieymum ekki að margar styrjaldir hafa verið háðar vegna landamæra. Afmynd- um að dæma svipar landslagi á marz til íslenska hálendisins og eftil vill geta mannaferðir þangað opna augu okkar fyrir þvihvaða perla íslenskar óbyggðir eru." Ragnhildur Sigurðardóttir, umhverfisfræðingur. „Fyrir mannkynið er eðlilegast að einbeita sér að því að kanna jörðina og það vistkerfi sem við erum hluti af.Ævintýri lífsins á jörðinni er stórkostiegt og kunnáttu okkar um það í mörgu áfátt, en samt erum við með gjörðum okkar - sérstak- lega eftir iðnbyltinguna - farin að hafa mikil og oft ófyrirséð áhrifá umhverfi okkar. Við ættum líka að beina kröftum okkar að því að þessir rúm- lega sex milljarðar manna sem búa á jörðinni geti haft það bærilega gott, i stað þess að misskiptingin sé jafn mikil og raun ber vitni. Og það hiit- ur að vera skylda okkar sem nú erum uppi að tryggja það að komandi kynsióðir taki við sæmilegu búi. Að þessu loknu má skoða möguleikana á því að nema land á öðrum hnött- um." Hannes Lárusson myndlistarmaður hleypti upp málþingi í Nýlistasafhinu með því að hafa í frammi gjörning þegar hann átti að sjá um fundarstjórn. Gjörningurinn var stöðvaður og gestir lögðu hendur á Hannes í viðurvist Ólafs Elíassonar og virtra safnstjóra frá Hollandi og Belgíu. Here Comes The Sun Hannes Lárusson veifarguia klútnum fyrir framan Nýlista- sáfnið. og gestir sáu rautt Hannes Lárusson myndlistarmað- ur hleypti upp málþingi í Nýlistasafn- inu fýrri helgi þegar hann hafði í frammi gjörning sem var stöðvaður af málþingsgestum sem héldu margir hverjir að Hannes væri genginn af göflunum: „Ég átti að sjá um fundarstjórn þarna og hóf hana á gjörningi en gerði þau mistök að tilkynna það ekki fyrir fram. Gjörningurinn kom því flatt upp á fólk en leysti um leið úr læðingi mikla spennu sem virðist ríkja hjá myndlistarmönnum. Ein kona gekk á dyr og svo var ég klapp- aður niður á meðan reynt var að fjar- lægja mig af staðnum með handafli. Það voru myndlistamennirnir Krist- inn G. Harðarsson og Finnur Arnar sem lögðu á mig hendur en höfðu ekki erindi sem erfiði," segir Hannes sem þarna flutti nýjan gjörning sem hann nefnir Here Comes The Sun. Gengur gjörningurinn út á að Hannes leikur hið víðfræga Bítlalag með sama nafni á meðan hann veifar gulum klút sem hann hendir síðan yfir mynda- tökuvél sem tekur allt upp. Hannes á upptöku af þessari illa heppnuðu fundarstjórn sinni í Nýlistasafninu og ætlar að nota hana að hluta eða í heild í nýtt myndverk. „Þetta málþing átti að fjalla um umgjörð myndlistar hér á landi og í pallborðinu sátu ekki ómerkari menn en Ólafur Elíasson, Halldór Björn „Það voru myndlista- mennirnir Kristinn G. Harðarsson og Finnur Arnar sem lögðu á mig hendur." Runólfsson lisfræðingur, Hlynur Hallsson, Þóra Þórsdóttir í Gallerí Hlemmur og svo belgískur listamað- ur og hollenskur safnstjóri. Ég held að aðstandendur málþingsins hafi verið með minnimáttarkennd gagnvart jressu fólki og hreinlega skammast sín fyrir mig. Það er einhver ógurleg spenna ríkjandi í sálarlífi margra myndlistarmanna sem brýst úr á þennan hátt og það á séstaklega þeg- ar útlendingar eru nærri. Ég held að menn hafi f raun vonað ég ég væri orðinn endanlega galinn og þeir myndu þarna losna við mig í eitt skipti fyrir öll. En sjálfir skammast ég min ekkert og tók upp fundarstjórn eins og ekkert hefði í skorist eftir að mér var sleppt og menn hættir við að henda mér út. Hins vegar þótti mér verra að geta ekki lokið við gjörning- inn en ég á þetta allt á myndbandi og það getur orðið gott verk bæði sem list og heimild," segir Hannes Lárus- son sem slapp að mestu ómeiddur frá málþinginu í Nýlistasafninu. Flutningaskipi hvolfdi á tveimur til þremur mínútum úti fyrir Bergen Óttast um 20 manns eftir sjóslys Óttast er um allt að 20 manns eftir að norska flutningaskipinu Rocknes hvolfdi á tveimur til þremur mínútum úti fyrir Bergen á vesturströnd Noregs í gær- kvöldi. Björgunaraðgerðir stóðu yftr langt fram eftir nóttu en 25 manns voru í áhöfn skipsins. Skipinu hvolfdi 200 metra frá landi. Lokaðir inni Samkvæmt netmiðli Bergens Tidende voru menn úr áhöfn lokaðir inn í skipinu. Heyrðist til þeirra þar sem þeir lömdu í skrokkinn til þess að koma boðum til björgunarmanna. Áformað var í gærkvöld, áður en blaðið fór í prentun að skera gat á skrokkinn og senda kafara inn til að bjarga fólkinu. Einnig var áformað að draga skrokkinn nær landi eða að bryggju. Tveir látnir Tveir höfðu fundust látnir þeg- ar DV fór í prentun en björgunar- sveitir áttu erfitt verk fyrir höndum þar sem farið var að skyggja þegar óhappið varð. Heimildum frá Nor- egi bar ekki saman um fjölda áhafnarmeðlima en talið var víst að þeir væru milli 25 - 30 talsins. Að sögn sjónvarvotta sáust eng- ir björgunarbátar á íloti eftir að skipinu hvolfdi sem bendir til að áhöfninni hafi ekki tekist að koma neinum á flot á þeim stutta tíma sem þeir höfðu. Ekki er vitað um nákvæm tildrög slyssins en Rocknes var með stóran farm af grús innan borðs. Rocknes er ríflega 17 þúsund brúttótonn að stærð og 166 metrar að lengd. Það var byggt árið 2001.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.