Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAOUR 20. JANÚAR 2004 9
ísraelar
rými húsið
Eigandi byggingarinnar
sem hýsir ísraelska sendi-
ráðið í Stokkhólmi hefur
óskað eftir því að sendi-
ráðsmenn rými húsnæðið.
Kvað eigandinn óttast um
öryggi annarra leigjenda í
húsinu. Sendiherra ísraels í
Svíþjóð, Zvi Masel, hefur
sætt gagnrýni eftir að hann
réðst að listaverki í Þjóð-
minjasafni Svíþjóðar og
skemmdi það. Verkið, sem
er eftir Dror Feiler, sýnir
palestínska stúlku sem
sprengdi sig í loft upp í
fyrra. Portrett af ungu kon-
unni flýtur ofan á rauðlit-
um polli.
Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði um
helgina að Masel hefði gert
það eina rétta í stöðunni.
Masel neitar að biðjast af-
sökunar á athæfinu enda
segir hann verkið ekki eiga
neitt skylt við list.
Hörkubarátta
í lowa
Allt útlit var fyrir harða
baráttu milli efstu fram-
bjóðenda Demókrata-
flokksins í forkosningunum
í Iowa sem fram fóru í gær.
Niðurstöður skoðanakönn-
unar Zogby leiddu í ljós að
lohn Kerry, öldungadeild-
arþingmaður frá Massa-
chusetts, væri með mest
fylgi eða urn 25%. Fast á
hæla honum kom Howard
Dean með 22% og í þriðja
sæti var John Edwards með
21% og í því fjórða Dick
Gephardt með 18% fylgi.
Búist var við að um 100
þúsund demókratar tækju
þátt í forvalinu og fóru
kosningar fram á tvö þús-
und stöðum í ríkinu.
Howard Dean hefur lengst
af haft mest fylgi í Iowa en
á því hefur orðið viðsnún-
ingur síðustu daga og þeir
Kerry og Edwards skotist
upp fyrir. Næstu forkosn-
ingar demókrata fara fram í
New Hampshire síðar í
mánuðinum.
Ebóla
drepur apa
Nýjar rannsóknir í
Afríku hafa sýnt fram á að
ebólaveiran lífshættulega
er jafnvel enn skeinuhætt-
ari stóru mannöpunum en
mönnum. Ebólaveiran,
sem íyrst var greind um
1976 í sunnanverðri Mið-
Afríku, veldur
mjög kvalafull-
um dauða 80
prósenta
manna sem
smitast og yrði
því einhver
mesti skað-
valdur heims,
slyppi hún
laus úr frum-
skógunum þar
sem hún held-
ur sig helst.
Færri verður sagt upp hjá Landspítala en upphaflega var áætlað, en í staðinn verð-
ur dregið úr vinnu hjá öðrum. 200 hverfa frá störfum en 300 taka á sig skerðingu í
formi minni vinnu. Helmingur starfanna sem hverfa er í lækningu og ummönun
sjúklinga.
Kjaraskerong
hiá 500 mams
Uppsagnir Helmingurinn afþessum 180 stöðugildum sem hverfa er i lækningum og umönnun, hinn helmingurinn i skrif-
stofuö og rannsóknarvinnu.
Færri verður sagt upp á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi en gert var ráð fyrir í upphafi. I stað
þess verður dregið úr yfirvinnu hjá öðrum, starfs-
hlutfall lækkað og vöktum fækkað. Breytingarnar
snerta alls 502 starfsmenn, en þannig verður
fækkað um 180 stöðugildi.
Forsvarmönnum nokkurra verkalýðsfélaga
voru kynnt uppsagnaráform í gær, og halda fund-
ir áfram með verkalýðshreyfmgunni fram eftir
vikunni. Uppsagnarbréf hafa flest þegar verið
send. Á fundunum kom fram að vöktum verður
fækkað hjá 119, starfshlutfall minnkað hjá 30, 143
fá ekki framlengingu á tímabundnum ráðningar-
samningum, 39 verður sagt upp yfirvinnu, hjá 114
verður vinnufyrirkomulagi breytt á annan hátt, en
52 verður beinlíns sagt upp.
Kjaraskerðing
„Þetta er auðvitað
skárra en að segja upp enn
fleiri, en þetta þýðir kjara-
skerðingu hjá fleirum,1'
segir Einar Oddsson, for-
maður starfsmannaráðs
Landspítalans.
„Svo kemur í ljós hvort
þetta fólk getur yfirleitt
starfað á lægri launum. Það Einar Oddsson „Svo
er nokkuð sem ekki hefur kemur i Ijós hvort þetta
verið kannað. Það er þá fólkgeturyfirleittstarfað
fólksins að ákveða hvort á lægri launum."
það gengur að nýjum
samningi."
Um helmingur þeirra sem breytingarnar
snerta eru innan Bandalags háskólamanna.
„Þetta erauðvitað skárra en
að segja upp enn fíeiri, en
þetta þýðir kjaraskerðingu
hjá fíeirum."
Helmingurinn af þessum 180 stöðugildum
sem hverfa er í lækningum og umönnun, hinn
helmingurinn í skrifstofu- og rannsóknarvinnu.
„Það er þetta sem er alvarlegast, þessi fjöldi starfa
sem hverfur hjá læknum, hjúkrunarfræðingum,
sjúkraþjálfurum og öðrum í klíníska þættinum,"
segir Einar. „Þetta skiptir mestu rnáli og er það
sem almenningur mun finna mest fyrir.“
Ríkisstjórnin fundar um niðurskurð á Land-
spítalanum f dag, en Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra mun taka málið upp þar að beiðni starfs-
manna spítalans og heildarsamtaka launafólks. Á
föstudag verður haldinn nýr fundur hjá stjórn
spítalans og helstu stéttarfélögum.
NIÐURSKURÐUR HEFUR ÁHRIF
Á 500 STARFSMENN
119-fækkunvakta
30 - minnkun starfshlutfalls
145 - starfslok án uppsagnar
39 - sagt upp yfirvinnu
114- breytingar á vinnufyrirkomulagi
52 - bein uppsögn
Aukin ásókn er í laxveiði - dagur með stöng kostar allt að 200 þúsund krónur
Laxveiðin tíu prósentum dýrari en í fyrra
Veiðileyfi í laxveiðiám landsins
eru um 10 prósentum dýrari f ár en í
fyrra. Undanfarin ár hefúr verið stíg-
andi í verði á veiðileyfum umfram
verðbólgu. Vaxandi ásókn og eftir-
spurn eftir laxveiði er talin ráða
verðhækkuninni.
„Heilt yfir hefur það frekar verið
þróunin að þetta hefur hækkað um-
fram verðbólgu, og það er aukin
samkeppni og aukin ásókn bæði
innlendra og erlendra veiðimanna.
Hækkunin er um 10 prósent yfir
landið í heild, en sumar ár hafa ekk-
ert hækkað, á meðan aðrar hækka
þó nokkuð," segir Bjarni Ómar
Rangarsson, formaður Stangaveiði-
félags Reykjavikur.
Dagsleyfi með eina stöng í dýr-
ustu laxveiðiá landsins, Laxá á
Ásum, kostar um 200 þúsund krónur
þegar mest er, samkvæmt upplýs-
ingum frá fyrirtækinu Laxá. Helst
eru það innlendir og erlendir við-
skiptamenn sem veiða á slíkum
kjörum. Dæmi er um evrópskan við-
skiptamann sem kemur hvert sumar
með fylgdarliði á þremur einkaþot-
um í þeim tilgangi að veiða í Laxá á
Ásum, með tilheyrandi þjónustu og
leiðsögn sem er innifalin í verðinu.
Hins vegar er víða hægt að veiða
fyrir skikkanlegt verð. Laxá, sem hef-
ur með fleiri veiðisvæði að gera en
nokkur annar aðili á landinu, býður
upp á veiði í Blöndu fyrir 3.800 krón-
ur á ákveðnu veiðisvæði. Þá er
mögulegt að veiða hjá Stangaveiðfé-
lagi Reykjavíkur í Soginu fyrir 6.100
krónur á dag.
jontrausti@dv.is
Laxveiði við Norðurá Bjarni Ómar
Ragnarsson, formaður Stangaveiðifélags
Reykjavikur, segir að ásókn i laxveiði sé
vaxandi.