Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004
Sport DV
1.STÓRMÓTIÐ 2. STÓRMÓTIÐ 3. STÓRMÓTIÐ 4. STÓRMÓTIÐ 5. STÓRMÓTIÐ
HM í Austur-Þýskalandi HM í Austur-Þýskalandi HM íTékkóslóvakíu HM í Frakklandi Ólympíuleikar í Miinchen
1958 9.sæti 1961 6. sæti 1964 9.sæti 1970 lO.sæti 1972 ll.sæti
Þjálfari Hallsteinn Hinriksson Markahæstur Gunnlaugur Hjálmarsson 16 mörk Þjálfari Hallsteinn Hinriksson Markahæstur Gunnlaugur Hjálmarsson 22 mörk Þjálfari Karl G. Benediktsson Markahæstur Gunnlaugur Hjálmarsson 11 mörk Þjálfari Hilmar Björnsson Markahæstur Geir Hallsteinsson 19 mörk Þjálfari Hilmar Björnsson Markahæstur Jón Hjaltalín Magnússon 21 mark
ísland hefur tekið þátt í 19 stórmótum í handbolta, 13 heimsmeistarakeppnum, 4 Ólympíuleikum og 2
Evrópumeistaramótum. Evrópumótið í Slóveníu verður tímamótamót fyrir íslenska landsliðið.
íslenska handboltalandsliðið hefur glatt þjóðina í gegnum tíðina með
frábærri frammistöðu á stórmótum á erlendri grund. Nú eru strákarnir
okkar að Ieggja af stað á 20. stórmótið f sögu íslenska handboltalandsliðs-
ins en þetta er eina landsliðið okkar í boltagreinum sem hefur komist á
stórmót - heimsmeistaramót, Evrópumeistaramót eða Ólympíuleika.
Þetta er þriðja Evrópumeistaramótið sem íslenska liðið tekur þátt í en það
er af mörgum talið vera sterkasta mótið af stórmótunum þremur.
fsland hefur aldrei komist á
verðlaunapall á stórmóti en tvisvar
hefur íslenska liðið leikið um verð-
laun, á Ólympíuleikunum 1992 í
Barselóna og á Evrópumótinu í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum. Bestum ár-
angri á heimsmeistaramóti náðist í
Kumamoto í Japan árið 1997 en ís-
lenska landsliðið datt þá út úr átta
liða úrslitum gegn Ungverjum en
vann síðan tvo síðustu leiki sína og
hafnaði í 5. sæti.
Fyrsta stórmót íslenska lands-
liðsins var heimsmeistaramótið í
Austur-Þýskalandi fyrir 46 árum en
þetta var þriðja heimsmeistaramót-
ið sem haldið var. Islenska liðið
vann einn af þremur leikjum sínum
í riðlinum, 13-11 gegn Rúmeníu, en
3. sætið nægði ekki til að komast
áfram í næsta hluta og þátttaka ís-
lenska liðsins var í styttra lagi þenn-
an marsmánuð 1958.
Þremur áður síðar slógu íslensku
strákarnir hinsvegar í gegn á fjórðu
HM sem var haldin í Vestur-Þýska-
landi og enduðu í 6. sæti eftir að
hafa tapað fyrir Dönum með
minnsta mun, 13-14, í leik um 5.
sætið. Heimsmeistarar urðu Rúm-
enar sem íslenska liðið lagði af velli
þremur árum áður og Tékkar urðu í
öðru sæti en við þá gerði íslenska
liðið jafntefli í riðlakeppninni.
Sjaldan misst úr mót
Frá þeim tíma hefur ísland
sjaldan misst úr stórmót og biðin
hefur aldrei verið lengri en tvö mót,
síðast misstum við af
Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000. Islenska liðið er nú að taka
þátt í fjórða stórmótinu í röð og
hefur auk þess tryggt sig inn á það
næsta, Ólympíuleikana í Aþenu í
Grikklandi í haust. Frammistaðan í
Slóveníu kemur síðan til með að
ráða miklu um hvort fsland verður
með á HM í Túnis 2005 eða
Evrópumeistaramótinu 2006 en því
hefur ekki ennþá verið valinn
staður.
Guðmundur og Ólafur efstir
Guðmundur Hrafnkelsson er í
sérflokki þegar kemur að fjölda
stórmóta en hann hefur tekið þátt í
meira en helmingi af þeim
stórmótum sem ísland hefur keppt
á. Guðmundur ver nú mark íslands
á ellefta stórmótinu en hann var
fyrst með á Ólympíuleikunum í
Seoul 1988. Síðan þá hefur
Guðmundur alitaf verið með og er
einnig sá leikmaður sem hefur leikið
flesta landsleiki fyrir íslands hönd.
Ólafur Stefánsson hefur verið
markahæstur hjá íslenska liðinu á
síðustu þremur stórrpótum og hann
er orðinn sá leikmaður sem hefur
ísland hefur aldrei komist á verðlaunapall en
tvisvar hefur íslenska liðið leikið um verðlaun,
á Ólympíuleikunum 1992 í Barselóna og á Evr-
ópumótinu í Svíþjóð fyrir tveimur árum.
Besti árangur í Heimsmeistarakeppni ■ Besti árangur á Evrópumeistaramóti
5. sæti á HM í Japan 1997 ■ 4. sæti á EM í Svíþjóð 2002
skorað flest mörk fyrir ísland á
stórmótum en enginn annar
leikmaður hefur náð að skora yfir
200 mörk fyrir íslenska landsliðið
HM, EM eða Ólympíuleikun
Ólafúr fær
bæta við mörkum í
en hann getur auk þess orðið
fyrsti leikmaðurinn til að
verða markahæsti maður
landsliðsins á fjórum
stjórmótum en bæði
þeir Gunnlaugur
Hjálmarsson og
Valdimar Grímsson
hafa verið marka-
hæstir á þremur
stórmótum líkt
og Ólafur.
ooj@dvJs
11. STÓRMÓTIÐ 12. STÓRMÓTIÐ 13. STÓRMÓTIÐ 14. STÓRMÓTIÐ 15. STÓRMÓTIÐ
HM íTékkóslóvakíu Ólympíuleikar í Barselóna HM í Svíþjóð HM á (slandi HM í Kumamoto í Japan
1990 lO.sæti 1992 4.sæti 1993 8. sæti 1995 13.sæti 1997 5. sæti
Þjálfari Bogdan Kowalczyk Markahæstur Alfreð Gíslason 32 mörk Þjálfari Þorbergur Aðalsteinsson Markahæstur Valdimar Grímsson 35 mörk Þjálfari Þorbergur Aðalsteinsson Markahæstur SigurðurValur Sveinsson 37 mörk Þjálfari Þorbergur Aðalsteinsson Markahæstur Valdimar Grímsson 34 mörk Þjálfari Þorbjörn Jensson Markahæstur Valdimar Grímsson 52 mörk