Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Grunuðum
sleppt
Mennirnir tveir sem
grunaðir eru um rán í
Spron við Hátún þarsíðasta
föstudag em lausir úr haldi.
Lögreglan ákvað að reyna
ekki á aðra framlengingu
gæsluvarðhalds þar sem
rannsókninni hefur ekki
miðað mikið áfram. Beðið
er eftir niðurstöðum úr
rannsókn á lífssýnum sem
fundust í klæðnaði nærri
bankanum, en hún fer fram
í Noregi og gæti tekið tvær
vikur enn. Engar frekari vís-
bendingar hafa borist um
sekt mannanna frá því í
síðustu viku.
—
Samskip færa
úr kvíarnar
Samskip hafa tekið yfir
rekstur hollenska flutninga-
fyrirtækisins Nedshipping
Liner Agencies BV. Neds-
hipping er sérhæft í gáma-
flutningum milli Skandin-
avíu, Finnlands og megin-
fands Evrópu. Aflir starfs-
menn Nedshipping í
Hollandi halda áfram störf-
um hjá Samskipum og
heyra undir skrifstofu fé-
lagsins í Rotterdam.
Félagið býr yfir áratuga
reynslu í flutningum milli
Vestur - Evrópu og Skand-
inavíu og nam veltan á síð-
asta ári tæpum 400 milfjón-
um króna.
Ásbjörn Gíslason for-
stjóri Samskipa erlendis
fagnar þessum áfanga og
segir félögin hafa átt gott
samstarf á flutningaleiðinni
á milli Suður- Noregs og
meginlands Evrópu frá þvf
Samskip hófu að sigla á
þeirri leið í ágúst í fyrra.
Hann efast ekki um að
kaupin eigi eftir að styrkja
enn frekar stöðu Samskipa
í Skandinavíu.
Þroskahjálp
leitar svara
„Við eigum fund með
Magnúsi Péturssyni for-
stjóra á Landspítala Ffá-
skólasjúkrahúsi í dag og
munum óska eftir því að
verða upplýst um hvað taki
við þegar endurhæginga-
deildinni á Kópavogshæli
verður lokað í apríl," segir
Friðrik Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Þroskahjálp-
ar.
Friðrik segir að lokunin
bitni á 23 skjólstæðingum
þeirra sem búa á Kópa-
vogshæli en auk þeirra séu
32 einstaklingar búsettir
annars staðar sem noti
þessa þjónustu að jafnaði.
„Við viljum fá að heyra það
svart á hvítu frá Magnúsi
hvað þeir hyggjast fyrir og
hvað taki við fyrir þessa
sjúklinga en það er alveg
ljóst að þeir þurfa á þessari
endurhæftngu að hafda,"
segir Friðrik.
Fjöldi einstaklinga með fötlun hefur stóraukist á íslenskum vinnumarkaði. DV
greindi frá því í gær að IKEA hefði sagt upp seinþroska stúlku án nokkurra út-
skýringa. Forstöðumaður Atvinnu með stuðningi hefur tekið málið upp á sína
arma.
Hanna Lilja fær
nýja vinnu í vikunni
„Ég kýs alfarið að tjá mig ekki um þetta mái,“
segir Jóhannes R. Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri IKEA varðandi uppsögn Hönnu Lilju Bjarna-
dóttur, 24 ára seinþroska stúlku. Hún var rekin frá
IKEA eftir að hafa starfað þar í fjögur ár án þess að
fá eina einustu kvörtun. „Þeir sögðu að það væru
breytingar og ég þyrfti að hætta," sagði Hanna
Lilja í frétt DV í gær. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
vildi Jóhannes R. Jóhannesson ekki tjá sig um mál-
ið en uppsögn Hönnu Lilju stendur ennþá.
Fyrirtækin standa sig vel
Árni Már Björnsson, forstöðumaður Atvinnu
með stuðningi sem er þjónusta fyrir einstaklinga
með fötlun, segir að ekki sé hægt að dæma allan
vinnumarkaðinn út ffá dæmi Hönnu Liiju. „Fyrir-
tækjum virðist almennt mjög umhugað að fá til sín
einstaklinga með fötlun," segir Árni Már og nefnir
sérstaklega Hagkaup og Bónus í því samhengi.
„Þau fyrirtæki hafa verið tif fyrirmyndar og greini-
lega áttað sig á þeim verðmætum sem felast í því
að hafa einstaklinga með fötlun innanborðs.
„Við höfum þegar skipulagt
fundmeð Hönnu og móður
hennar á fimmtudaginn og
munum fara í það að út-
vega henni aðra
vinnu."
Einstaklingum með fötlun fjölgar á
vinnumarkaðnum
Um 50 einstaklingar starfa í fjölda fyrirtækja á
vegum Atvinnu með stuðningi. „Þát-
taka einstaklinga með fötlun
á atvinnumarkaðnum hef-
ur stóraukist síðan við
fórum af stað árið
1999,“ segir Árni
Már. „Sum fyrir-
tæki hafa líka
nýtt sér svokall-
aðan vinnu-
samning
öryrkja
sem
gengur
út á að
Trygg- I
ingar-
stofn- II
ir allt að 75% launa einstaklinga með fötlun aftur
til fyrirtækisins," útskýrir Árni. „Samningar af
þessu tagi eru mjög jákvæðir og virka hvetjandi á
fyrirtæki en það er kannski helst að vifjann
vanti hjá hinu opinbera til að ráða til sín
|pS|s. einstaklinga með fötlun."
Vinnan snýst um virðingu
Árni bendir einnig á að mikil-
vægt sé fyrir einstakling með
fötlun að hafa vinnu. „Þetta
hefur meira með virðingu og
sjálfsmynd að gera en bara
fjárhagslegu hliðina," segir
B Árni Már. „Það er líka mun
ódýrara fyrir hið opinbera að
einstaklingar með fötlun séu
á hinum almenna vinnu-
markaði, til dæmis í formi
f skerðingu bóta."
Eins og áður hefur komið
fram stendur ekki til hjá IKEA
að endurráða Hönnu Lilju.
„Þetta er auðvitað leiðinlegt mál
en ekki hægt að taka það sem
dæmi um það sem almennt gerist
á vinnumarkaðnum," segir Árni.
„Við höfum þegar skipulagt fund
með Hönnu og móður hennar á
fimmtudaginn og munum fara í það að
útvega henni aðra vinnu."
simon@dv.is
un
endur
greið-
Árni Már Björnsson „Fyrirtækjum
virðist almennt mjög umhugað að
fá til sin einstaklinga með fötlun."
Hefur guð fyrirgefið konunni?
Svarthöfða rak í rogastans nú í
morgun þegar hann var búinn að
nudda stírurnar úr augunum og
smeygja sér í klossana og tölta á
þeim fram í anddyri og teygja sig í
DV. Það sem vakti undrun Svart-
höfða var fréttin efst í eindálknum á
síðu tvö sent fjallaði um umsækj-
endur um prestsembætti í Mosfells-
dal.
Hvorki fleiri né færri en 21 prest-
ur og/eða guðfræðingur sækir um
þetta brauð.
Þetta þótti Svarthöfða í sjálfu sér
furðum 'sæta. 21 umsækjandi um
eina stöðu er meira en lítið og Svart-
höfði furðaði sig stórum á því hví
svona mikil ásókn væri í þetta starf.
Svarthöfði hélt nefnilega að þetta
væri erfitt og vanþakklátt starf.
Prestar þurfa sífellt að vera
hringla eitthvað yfir dánu eða deyj-
Svarthöfði
andi fólki, tala milli öskuvondra
hjóna og vinna önnur sorgleg og
leiðinleg störf.
Svarthöfði mundi að minnsta
kosti heimta himinhátt kaup fyrir
annað eins og þetta, jafnvel þótt
með í kaupunum fylgi vissulega
ýmsir ánægjulegri atburðir eins og
giftingar, skírnir og þess háttar. En
þar sem Svarthöfði hafði þóst telja
að prestar væru ekki ofsælir af laun-
um sínum, þá þótti honum fram-
boðið af sóknarprestum - sem fjöldi
umsækjenda gaf til kynna - með
mestu ólíkindum.
En það sem olli Svarthöfða þó
enn meiri heilabrotum var sá fjöldi
sem sótti um, eða sautján konur á
móti aðeins fjórum körlum. Og
Svarthöfða rámaði í að hafa heyrt
um daginn að kynjahlutfallið hefði
verið eitthvað ámóta þegar auglýst
var eftir prestum í Grafarvog.
Og Svarthöfði lagðist í þunga
þanka um hvað væri eiginlega á
seyði í íslensku þjóðkirkjunni. Nú er
Svarthöfði síður en svo á móti kven-
prestum. Og það er ekki vanþörf á
að rétta af hlutfallið eins og það er
núna, hugsaði Svarthöfði meira að
segja með sér, jafnréttissinnaður
sem hann er. En haldi þessi þróun
áfram munu ekki líða nema nokkur
ár, kannski áratugur, þangað til kon-
ur verða komnar í yfirgnæfandi
meirihluta meðal presta.
Og hver er ástæða fyrir þessu?
Eru konur trúaðri en karlmenn? Eru
konur í nánari tengslum við guð en
karlmenn? Eru konur betur tif þess
fallnar að vera prestar en karlmenn?
Eru konur kannski einfaldlega betri
en karlmenn? Hefur guð loks fyrir-
gefið Evu eplaátið í Paradís?
Kona Svarthöfða, Svarthöfða, lá
enn og svaf sínum fegurðarblundi
þar sem Svarthöfði staulaðist inn úr
anddyrinu með DV og hugðist bera
þetta undir hana. Og Svarthöfði
skildi strax hvernig í öllu lá - slík var
hin guðlega fegurð konunnar...
Svarthöföi