Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 Fréttír W Enginn sátta- hugur í ísrael ísraelsk stjórnvöld hafa aðhafst lítið til að letja íbúa landsins til að byggja á svæð- um sem til- heyra Palest- ínumönnum. Á Givat Haroeh fjölgaði húsum um þrjú á einni helgi þrátt fyrir loforð um að þau þrjú hús sem þar stóðu áður yrðu fjar- lægð hið fyrsta. Þykja þessar dræmu undirtektir réttlæta sívax- andi þrýsting erlendra þjóða á ísraela enda hafa þeir ekki sýnt neina tilburði til að koma til móts við Palestínumenn. Framkvæmdir í Kína Miklar framkvæmdir eiga sér stað í höfuðborg Kína þessa dagana. Bygg- ingaverkamenn eru önnum kafnir enda mikil verkefni framundan vegna ólympíu- leikanna sem haldnir verða þar árið 2008. Enn fremur á að halda fyrstu keppni For- múlu 1 í landinu í septem- ber næstkomandi og verður að byggja kappaksturs- brautir eftir kúnstarinnar reglum vegna þess. Veðjað á kakkalakka Búist er við allt að sjö þúsund manns á árlega kakkalakkakeppni sem haldin verður í Brisbane í Ástralíu á þjóðhátíðardegi Ástrala þann 26. janúar næstkomandi. Margir þeirra koma með sína eigin kakkalakka til þátttöku en keppnin þykir spennandi og er venja að veðja um úrslit keppninnar. Margvíslegar þrautir verða lagðar íyrir skor- dýrin en ekki fylgdi sögunni hver verðlaunin verða. „Hér í Bolungarvík er heilmikið um að vera og þar ber auðvitað hæst þorrablótið okkar næsta laugardag, 24. janúar, “ segir Magnús Ólafs Hansson í Bol- Landsíminn ið er heimsfrægt fyrir margra hluta sakir, svo sem að á það mæta konur ekki nema í upp- hlut eða peysufötum og karlar aðeins í dökkum fötum. Fyrir nokkrum árum tókst mér að vekja stemmningu fyrir þvi að menn kæmu iþjóðbúningi karla og 93% þeirra komu þannig klæddir á blótið.Ætli það hafi ekki verið eitthvað nærri 80 karlar. Nú, til sjávarins hér i Vikinni hafa gæftir verið frek- Magnús Ólafs ar lélegar aðundan- Hansson í Bol- förnu, en aflabrögð un9arvík- ágæt þegar gefið hefur á sjó. Það er nýtega kominn bátur sem héðan er gerður út, Páll á Bakka, en að útgerðinni standa þeir Pálmi Stefánsson og Eggert Jónsson á Isafirði. Hér snjóaði talsvert um daginn en þó ekki þannig aðkominn sé skíðasnjór. Með öðrum orðum þá var þetta hriðarskot minna en mörg sem komið hafa i timans rás." Pétur Blöndal var úrskurðaður hæfur til að stýra fundum efnahags- og viðskipta- nefndar um sparisjóðina. Upplýsinga verður aflað um hæfisreglur þingmanna í ná- grannalöndum. Lagaprófessor hefur verið falið að gera grein fyrir lagalegri stöðu þingmanna varðandi hæfi eða vanhæfi. Pétur Blöndal var ekki vanhæfur til að sitja eða stýra fundum efnahags- og viðskiptanefndar þeg- ar málefni sparisjóðanna voru þar til umræðu, samkvæmt úrskurði Halldórs Blöndal, forseta Al- þingis, í gær. Pétur er stofnfjáreigandi í SPRON og hefur hagsmuni af því að kaup KB banka á SPRON gangi eftir. Forseti Alþingis segir að engar reglur útiloki þetta. Þingmenn megi hins vegar ekki greiða at- kvæði með fjárveitingu til sjálfra sín. Deilan snýst fyrst og fremst um ólíka túlkun á þeirri lagagrein. Guðmundur Árni Stefánsson og aðrir Samfylking- armenn telja hana eiga við Pétur, þar sem spari- sjóðamálið varði í raun fjárveitingu til hans. Guðmundur Árni, sem sæti á í forsætisnefnd, vísar í eldra mál þar sem Vilhjálmur F.gilsson al- þingismaður hafði talað með einkasölu áfengis sem framkvæmdastjóri Verslunarráðs. „Þá úrskurðaði forseti Alþingis, Ólafur G. Ein- arsson, að ákvörðun um hvort hann stýrði fund- um nefndarinnar, þegar máiið væri til umfjöllun- ar, væri í höndum nefndarinnar sjálfrar," segir Guðmundur Árni. Hann gerir ráð fyrir að þessi verði tillaga Samfylkingarinnar á næsta fundi efnahags- og viðskiptanefndar þegar mál spari- sjóðanna verða rædd. „Ég sé hvergi möguleika í lögunum á þessari leið,“ segir Pétur Blöndal. „Ég held að þetta mál sé allt saman hrein og klár pólitík, ætluð til að klekkja á mér. Samkvæmt lögum ber þingmanni að mæta á fundi Alþingis nema nauðsyn banni. Það var engin nauðsyn sem kom í veg fyrir að ég mætti á fundinn. Formaður skal stýra fundi ef hann er mættur, svo þetta er mjög skýrt. Það er með ólíkindum að aðrir þykist sjá aðra túlkun á lögunum." „Þarna er uppi lagalegur og siðferðislegur ágreiningur. Það sér hver maður hvaða hagsmuni Pétur Blöndal hef- ur í málinu," segir Guðmundur Árni. „Þetta er búið. Ég þess að málefni sjóðanna tekin upp efnahags ekki vænti þegar spari- verða á ný í og við- Guðmundur Árni Stefánsson. „Þarna er uppi lagalegur og siðferöis- legur ágreiningur. Þaö sér hver mað- ur hvaða hagsmuna Pétur Blöndal hefuri málinu" skiptanefnd verði framhald á þessari um- ræðu.“ Málið er um- deilt, og jafnvel nokkrir liðs- menn beggja stjórnarflokka telja að Pétur eigi að víkja sæti þegar sparisjóðirnir eru ræddir. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem sæti á bæði í efnahags- og viðskiptanefnd og forsætisnefnd, er þeirrar skoðunar að Pétur eigi ekki að víkja. Halldór Blöndal hefur farið þess á leit við Pál Hreinsson lagaprófessor að hann semji greinar- gerð um almenna lagalega stöðu þingmanna varðandi hæfi eða vanhæfi. Þá hefur skrifstofu- stjóra Alþingis verið falið að afla upplýsinga um hæfis- reglur þjóðþinga ná- grannalanda. Boðað verður til fundar í efnahags- og viðskiptanefnd eins fljótt og nefndar- menn geta mætt, og verður hann að líkindum haldinn eftir næstu helgi. „Þá úrskurðaði forsetiAI- þingis, Óiafur G. Einarsson, að ákvörðun um hvort hann stýrði fundum nefndar- innar, þegarmálið væri til umfjöll- unar, væri í höndum nefndar- innar sjálfrar.‘ Pétur Blöndal „Égheldað þetta mál séallt saman hrein og klár pólitik, ætluð til að klekkja á mér.“ Aðeins fæst greitt upp í hluta krafna vegna gjaldþrots Margar kröfur í þrotabú útgáfufélags DV Frestur rann út í gær til að skila kröfum í þrotabú útgáfufélags DV. Þorsteinn Einarsson, skiptastjóri þrotabúsins, segist ekki hafa yfirsýn yfir heildarupphæð krafnanna að svo stöddu. „Þetta er mjög mikið af kröfum og heilmikil vinna að fara yfir þetta. Upphæðin mun ekki liggja fyrir strax," segir Þorsteinn. Ljóst er að aðeins fæst greitt upp í hluta krafn- anna, en Þorsteinn sagðist, enn sem komið væri, ekki geta sagt til um að hversu miklu leyti það yrði. Um fimmtíu manns misstu vinnu sína við gjaldþrotið og á fjórða hundrað blaðberar áttu rétt á að gera kröfu í búið. Eigi þrotabúið ekki fyrir 65 milljóna króna skuld opinberra gjalda eru stjórnarmenn félagsins persónulega ábyrgir. Blaðið skuldaði um 1100 milljónir króna þegar það fór í gjaldþrot, en bókfærðar eignir töldust 790 millj- ónir, að sögn Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, tilsjónarmanns meðan blaðið var í greiðslustöðv- un. Gunnar Thoroddsen hjá Lands- bankanum sagði tap DV á síðustu sex mánuðum hafa verið um millj- ón króna á dag. Stærstu lánar- drottnar blaðsins voru Landsbank- inn, Búnaðarbankinn Kaupþing, ís- landsbanki og Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Skuldin við Ár- vakur var til komin vegna prentun- ar blaðsins og var yfir 100 milljónir króna. Morgunblaðið sýndi áhuga á að kaupa þrotabúið en Landsbank- inn leysti til sín rekstur og eignir DV úr þrotabúinu og seldi þær Frétt ehf. Greitt var fyrir þrotabú DV með nýju hlutafé í Frétt ehf. og á Lands- bankinn nú 22% í félaginu. Höfuðstöðvar DV Greitt var fyrir þrotabú DV með nýju hlutafé í Frétt ehf. og á Landsbankinn nú 22% i félaginu. Fréttablaðið ogDV eru nú starfrækt í húsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.