Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 Fréttir DV Ævareiðir kvikmyndagerðarmenn vilja sjá hvernig Hrafn fór með opinberan fjárstyrk að upphæð 33 milljónir króna við gerð myndarinnar Opinberun Hannesar. Kostnaðaráætlun myndarinnar var upp á 60 milljónir króna en Hrafn hefur þegar fengið 43 milljónir hið minnsta í myndina. Fagmenn telja sig ekki sjá merki þess að myndin hafi kostað meira en 10-20 milljónir ogþvíhafílO milljónir frá RÚVog Wmilljónir frá Björgólfi Guðmundssyni náð að dekka raunkostnað- inn. Hrafn segist ætla að birta bókhaldið sitt og segir:f/Sá hlær best sem síðast hlær." Á fundi í Félagi kvikmyndagerðarmanna í síðustu viku var skorað á Hrafn Gunnlaugsson að birta bókhaldið vegna sjónvarpskvikmyndarinnar Opinberun Hannesar. Á sama fundi kynntu kvikmyndagerðarmennirnir Ragnar Santos og Ólafur Jóhannesson mat sitt á raunkostnaði við gerð myndarinnar. Þeir töldu heildarkostnaðinn vera 12-18 milljónir króna þegar allt væri metið af sanngirni. DV hefur rætt við fjölda fagmanna, auk flestra þeirra sem komu að gerð myndarinnar, og áætlar að útlagður kostn- aður við Opinberun Hannesar hafi verið 11-13 milljónir króna. Þá eru ótaldar greiðslur Hrafns til sjálfs sín fyrir handritsskrif, framleiðslu, leik- stjórn, lokaklippingu, eftirvinnslu og samningu tónlistar. Þegar Hrafn Gunnlaugsson réð til sín leikara og starfsfólk til að taka upp myndina Opinberun Hannesar síðsumars 2002 var öllum gert Ijóst að litlir peningar væru fyrir hendi til gerðar myndarinnar. Þetta kemur fram í samtölum DV við fjölda aðila sem komu að gerð þessarar um- deildu myndar. Gera átti ódýra mynd sem ekki átti að kosta meira en 10 milljónir. Eftir að upptökum lauk fékk Hrafn 42 milljónir í mynd- ina, þar af 32 milljónir af opinberu fé og þar af 22 milljóna króna styrk úr Kvikmyndasjóði á grundvelli kostnaðaráætlunar upp á 60 millj- ónir. Leikarar og starfsmenn féllust á það á sínum tíma að slá vel af töxt- um sínum en eru nú afar ósáttir við sinn hlut. Mikil ólga er einnig með- al kvikmyndagerðarmanna sem á fundi í félagi sínu í síðustu viku hvöttu Hrafn til að opinbera bók- hald myndarinnar. Það er gert í ljósi ásakana um að raunkostnaður við Opinberun Hannesar hafi verið á bilinu 10-20 milljónir eða vel undir þriðjungi af kostnaðaráætlun. Lúpulegir umkvörtunar- sinnar Þrátt fyrir ólgu meðal kvik- myndagerðarmanna - og DV hefur rætt við hátt í 20 manns sem starfa við kvikmyndagerð - gætir tregðu meðal þeirra til að tjá sig opinber- lega um fjárhagslega þætti Opinber- unarinnar. I einkasamtölum spara menn þó ekki stóru orðin og virtir framleiðendur og leikstjórar eru ófeimnir við að kalla sjónvarps- mynd Hrafns skandal og þjófnað á opinberu fé. Það virðist einkum vera tvennt sem fælir kvikmynda- gerðarmenn frá því að hafa hátt um „skandalinn" og „þjófnaðinn"; annars vegar sú staðreynd að við- komandi geti með því skaðað möguleika sína á verkefnum og vinnu í geira þar sem samkeppnin er hörð. Hins vegar er á það bent að kvikmyndagerðarmenn, flestir hverjir, haft leikið sama leikinn og Hrafn er sakaður um þ.e. að verja í veruleikanum minna fé til mynd- anna en kostnaðaráætlun segði til um. Fylgir þó yfirleitt sögunni að haft aðrir leikið sér að tölum hafi Hrafn farið svo yfirgengilega útyfir mörk velsæmis að engin annar komist í hálfkvisti við hann í þeim efnum. Opinbert fé í Opinberunina Vert er að hafa í huga að milljón- irnar 23, sem Hrafn fékk úr Kvik- myndasjóði (þar af milljón í undir- búningsstyrk), eru aðeins hluti af skattpeningum sem runnu til myndgerðarinnar. Því hefur ekki verið hafnað að Ríkissjónvarpið hafi borgað 10 milljónir króna fyrir sýn- ingarréttinn að myndinni. Ofaná þessar 33 milljónir fékk Hrafn stuðning frá Björgólft Guðmunds- syni Landsbankaeiganda að upp- hæð 10 milljónir króna. Samið hafði verið um sölu á myndinni til danska og finnska sjónvarpsins en ekki ligg- ur fyrir hvað greitt var fyrir þann sýningarrétt en Hrafn segir sjálfur að þetta „...hafi ekki verið neinar milljónir". Ekki liggur fyrir hvort Hrafni tókst að fá fé annars staðar frá uppí þær 17 milljónir sem uppá vantar til að myndin teljist fullfjár- mögnuð. 60 milljónir sagði áætlun- in en hvar var raunin? Opinberun Hannesar Iupphafi voru allir ráðnir á þeim forsendum að þetta yrði ódýr mynd sem ætti ekki að kosta meira en 10 milljónir króna. Ódýr leið farin Við mat á raunkostnaði við sjón- varpsmyndina verður að hafa í huga að öll nálgunin við gerð hennar var eins ódýr og kostur er. Myndin var þannig tekin á afar ódýrar og litlar stafrænar tökuvélar sem eru á næsta þrepi fyrir ofan heimilistöku- vélar. Hrafn notaði við kvikmynda- tökur svokallaðar 100 og 150 vélar, önnur var í eigu Hrafns en hin í eigu aðaltökumannsins. Það var engin beinn útlagður leigukostnaður við myndavélarnar en hægt er að leigja vél af þessu tagi fyrir 6000 krónur á dag. Opinberun Hannesar var tekin upp á tæplega tveggja mánaða tímabili. Sumir tökudagar voru stuttir og miðar DV við 30 heila tökudaga þó að fagmenn, sem blað- ið hefur ráðfært sig við, bendi á að það hefði mátt ljúka verkinu á skemmri tíma. Dogma Mjög fáir unnu við upptöku myndarinnar að leikurum frátöld- um og voru mest ftmm að vinna við hana í einu á meðan á upptökum stóð. Fyrir utan Hrafn sjálfan störf- uðu tveir myndatökumenn við myndina þeir Arnar Þór Þórisson og Sigurbjörn Búi Baldvinsson. Sigrún Sól Ólafsdóttir var aðstoðarleikstjóri og Steinþór Birgisson sá um hljóð- upptöku. Svo að segja engin ljós voru notuð við upptökuna og hefur því kostnaður við lýsingu verið í al- gjöru lágmarki. Engin förðunar- meistari eða búningahönnuður vann vð myndina enda er engra slíkra getið í kreditlista. Eitthvað var þó um það að leikararnir keyptu á sig föt og fengu endurgreitt. Ekki voru notuð nein aukatæki svo sem vagnar eða kranar við gerð myndar- innar svo þar hefur fé sparast. Eng- ar myndatökur voru gerðar í mynd- veri og engin leikmynd var gerð. Myndataka fór að mestu fram á einkaheimili, í Seðlabankanum, á lögreglustöðinni og utandyra. Eftir- grennslan hefur leitt í ljós að hvergi þurfti Hrafn að taka upp veskið til að greiða fyrir afnot aftökustöðum. Kvikmyndagerðarmaðurinn fékk aðstoð lögreglu sem lánaði honum lögreglubíla, mótorhjól og aðstöðu til myndatöku á lögreglustöð. Ekk- ert var greitt fyrir aðstöðu og tækja- lán. Karl Steinar Valsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn segir að embættið sýni kvikmyndagerðarmönnum lið- OPINBERUN HANNESAR - ÚTLAGÐUR KOSTNAÐUR frá til Handrit HG Ráðgjöf v/handrit 150000 200000 Framleiðandi HG Leikstjóri Aðalleikstjóri HG Aðstoðarleikstjóri Sigrún Sól Ólafsdóttir 700000 800000 Leikarar Aðalleikarar: Viðar Víkingsson 700000 800000 Jóhanna Vigdís Arnardóttir 250000 300000 Helga Braga Jónsdóttir 150000 200000 Þórhallur Sverrisson 80000 100000 Theódór Þórðarson 140000 160000 Sigrfður Helgadóttir 150000 MH180000 Gunnar Jónsson 100000 120000 Aðrir leikarar 21 talsins 200000 HBÍ250000 Magadans Josy Zareen 40000 50000 Magadansmeyjar María Kristln Steinsson r ' ° Rosana Regimove 0 Áhættuleikarar Björgvin Ploder 60000 80000 Einar Rúnarsson 60000 80000 Framleiðsla Kamerudeild Aðaltökum Arnar Þór Þórisson ** 400000 600000 Aukatökum Sigurbjörn Búi Baldvinsson 300000 400000 Myndavélar/leiga** HNMH Leikmynd 0 Greiðsla tökustaðir 200000 300000 Leikmunir 50000 100000 Búningar 50000 ooooo Förðun 0 Brellur 0 Stúdíóleiga 0 Grip o Ljós 50000 70000 Hljóðupptaka Steinþór Birgisson 400000 600000 Upptökukostnaður 150000 200000 Bílafloti 100000 150000 Dýr 0 Filma-framköllun 0 Klipping Forklipping Steinþór Birgisson 400000 600000 Forklipping Viðar Vikingsson * Lokaklipping HG Tækjaleiga/klipp 180000 200000 Tónlist Höfundur HG Útsetningar Guðm. Péturss./Gunnar St. 200000 300000 flytjendur 800000 900000 ráðgjöf 50000 100000 Hljóðvinnsla Kjartan Kjartansson/Bíóhljóð 3000000 3000000 Eftirvinnsla 250000 300000 þrívíddargrafík/grafík Ómar Guðjónsson 200000 250000 Tölvugrafík Ari Kristinsson 100000 150000 Kynning 250000 300000 Ýmis kostn. ca 10% 1000000 1200000 Samtals 10910000 13140000 *heildargreiðsla fyrir leik og aðra vinnu T* myndataka og vélaleiga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.