Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 16
76 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 Fókus DV DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 7 7 Unglingurinn er oft til umræðu, og þá ekki síður kostnaðurinn við að vera nútímaunglingur. Sögur heyrast afungu fólki í menntaskólum sem séu með bílalán, endalausa vísareikninga og ýmis námsmannalán og að við þeim blasi ekkert ann- að en gjaldþrot. DV fór á stjá og hitti fyrir ungmenni á ýmsum aldri og ræddi við þau um hvað það kostaði að vera til. Mi/ai wjjj* Krakkarnir í MR Það er frek- ar dýrtað bjóða itelpu út. sér- staklega þegar strákarnír þurfa aö borga allt. „Fyrst þarftu náttúrlega að gefa henni rós, sem er svona 500 kallf svo er maturinn plús eftirréttur að minnsta kosti2000 kr. á mann og kaffi á eftir um 600 kr. Þannig að eitt stefnumót kostar mann kannski rúmlega 5000 kr. sem er mikið fyrir ungan mann í skóla.“ „Ég held að því meiri pening sem þú átt því meira eyðirðu," seg- ir Helgi Egilsson, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. „Sjálíúr reyni ég að lifa fyrir daginn og eyða öllu sem ég er með í vasan- um á hverjum degi.“ Hildur Þóra Sigurðardóttir, vinkona Helga, er ekki alveg á sömu skoðun. „Nei, maður lifir ekki bara frá degi til dags, allavega reyni ég að plana hlutina fram í tímann." Ragnar Jón Ragnarsson, sem er einnig nem- andi í MR, tekur undir sjónarmið Helga. „Ef maður er með pening í vasanum þá er hann bara farinn," segir Ragnar og bætir við að því sé fínt að eiga ekki debetkort. „Þá freistast maður síður til að eyða." Sumarlaunin duga skammt Helgi, Ragnar og Hildur eru í rit- stjórn skólablaðs MR. Þau eru öll sammála um að erfitt sé að lifa af veturinn á sumarlaununum einum saman. „Ég neyðist til að vinna með skólanum því sumarlaunin duga skammt," segir Ragnar og Helgi tekur í sama streng. „Ég er blessunarlega laus við skuldasúp- una þótt oft sé erfitt að þurfa að vinna með skólanum." Allt snýst þetta um kröfurnar sem maður gerir, eins og Ragnar bendir á. „Tökum sem dæmi stelpur sem eiga heilu fataskápana af alls kyns klæðnaði," segir Ragnar. „Sjálfur geng ég alltaf í sömu gallabuxunum og er bara nokkuð sáttur." Hildur bætir við að ef stelpa mæt-1 i í sömu fötunum tvo daga í röð í skólann sé tekið eftir. „Annars held ég að stelpur eyði alveg jafn miklu og strákar í klæðnað." Dýrkeypt frelsi Hildi finnst nauðsynlegt að taka bfla fyrir í umræðunni um kostn- aðinn við það að vera ungur. „Mér finnst ekki nauðsynlegt að eiga bfl og er ekki enn komin með bflpróf þrátt fyrir að vera orðin átján ára.“ Strákarnir taka undir sjónarmið Hildar en benda á að því fylgi mik- ið frelsi að eiga bfl. „Það er kannski ekki nauðsynlegt," segir Ragnar, „en það er óneitanlega þægilegt." Ragnar býr í Hafnarfirði, eins og Helgi, og bendir á að það sé jafnvel ódýrara að sameinast um bfl með einhverjum í stað þess að taka strætó." „Það er verið að okra á ungling- um og eldra fólki sem er langstærsti hópurinn af þeim sem Helgi Egilsson „Það Pf... rC. f ; ; ., • Ragnar Jón Ragnarsson nýta sér þessa þjónustu," segir Hildur og varpar fram þeirri hug- mynd að hafa bara ókeypis í strætó. Helgi ákveður að ljúka bílaum- ræðunni með því að bfll auki óneitanlega frelsi manns, en rústi reyndar fjárhaginn í leiðinni. Rósin fullmikið af hinu góða Helgi minnist svo á annan kostnaðarlið sem að hans sögn kemur frekar niður á strákum en stelpum. „Við höfum ekkert talað um stefnumót," segir Helgi. „Það er frekar dýrt að bjóða stelpu út, sérstaklega þegar strákarnir þurfa að borga allt." Hildur segir að þess- ir hlutir séu að breytast. „Ég hef til dæmis ekkert á móti því að borga fyrir mig þegar ég fer á stefnumót." Ragnar er hins vegar með sitt á hreinu. „Segjum að þú takir allan pakkann og bjóðir stelpu út að borða," segir hann. „Fyrst þarftu náttúrlega að gefa henni rós, sem er svona 500 kall, svo er maturinn plús eftirréttur að minnsta kosti 2000 kr. á mann og kaffi á eftir um 600 kr. Þannig að eitt stefnumót kostar mann kannski rúmlega 5000 kr. sem er mikið fyrir ungan mann í skóla." Hildur samþykkir útreikn- inga Ragnars en bendir á að kannski sé rósin fullmikið af hinu góða. Yfirdrátturinn brúar bilið Hildur, Ragnar og Helgi eru sammála um að auðvelt sé að kom- ast af fyrir lítið. „Það er hins vegar reynt að búa til þá ímynd að allir verða að eiga allt," segir Ragnar og bendir á að það sé skammarlegt hvernig bankarnir reyni að troða upp á unglinga yfirdráttarheimild- um og skammtímalánum. „Það er verið að telja ungu fólki trú um að það sé bara í lagi að strauja kortið fyrir hverju sem er.“ Hildur er sammála Ragnari. „Það er slæmt þegar bankarnir ýta undir að krakkar safni skuldum," segir hún. „Til dæmis hvetur Bún- aðarbankinn unglinga til að fá sér yfirdrátt til að kaupa trommusett með slagorðinu Yfirdrátturinn brú- arbilið!" Helgi vill meina að það séu ekki bara bankarnir sem mættu hugsa sinn gang heldur samfélagið í heild: „Það eru oft slæm skilaboð sem okkur unga fólkinu eru gefin," segir hann. ,Ætli grundvallaratriðin séu ekki fínn sími og góðar græjur," segir Tommi, einn af nem- endunum í Hvammshúsi. Tommi er mikill Slip- knot aðdáandi og segist helst kaupa sér einn geisladisk á viku. Félagi hans Heiðar Ingi Odd- geirsson tekur undir það að tónlist og græjur séu málið. „Ef það væri ekki til tónlist þá væri maður dauður," segir Heiðar og bendir blaða- manni á að húsið hans Tomma nötri þegar hann kveiki á græjunum. Tölvuleikir of dýrir Annar nemandi, Pétur Geir Grétarsson, er al- veg með á hreinu hvað það kostar að vera ung- lingur í dag. „Ég segi bara við pabba - 10.000 og ég læt ísskápinn vera!" Pétur er einnig mikill tölvuáhugamaður. „Ég gæti ekki hugsað mér að vera án tölvu, “ segir hann og bætir við að fyrir þá sem spili Counterstrike sé nauðsynlegt að vera sítengdur við Netið. „Það er samt leiðinlegt að tölvuleikir em alltof dýrir - kosta alveg upp í 5000 kr. einn leikur." Tommi grípur inn í og seg- ist sjálfur eiga Playstation og þar kosti leikimir allt upp í 9000 kr., sem sé fáránlegt verð. Óþarfi að klæðast eins og Manson Heiðari fínnst fatatískan vera komin út í al- gjörar öfgar. „Þeir sem hlusta á rokk halda að það sé nett að klæðast eins og Marylin Manson. Ég hlusta á rapp og teknó en ekki klæði ég mig eftir því," segir Heiðar og bætir við að best sé að vera bara maður sjálfur. Allir eru strákarnir „Gallinn hérna á íslandi er að efmaður gerir eitthvað skemmtilegt þá hefur maður gert það 500 sinnum áður." sammála um að erfitt sé að finna góða skemmt- un hér á Fróni. „Það er alltof dýrt að fara í bíó,“ segir Pétur. „í fyrsta lagi kostar miðinn 800 kall og með nammi og öllu kostar þetta kannski 1500 kr. í heildina - fyrir að sjá eina mynd." Þreyttir á sömu hlutunum Heiðar segir lika að alltof lítið framboð sé á afþreyingu og að maður geú orðið þreyttur á að gera alltaf sömu hlutina. „Gallinn hérna á ís- landi er að ef maður gerir eitthvað skemmtilegt þá hefur maður gert það 500 sinnum áður," segir Heiðar, sem mælir þó með nýrri skemmt- un sem kallast Zorb og snýst um það að rúlla niður brekku, fastur í stórri kúlu. Strákarnir í Hvammshúsi em í níunda og tí- unda bekk. Þeir segja að það sé gaman í skólan- um og nóg að gera. Meðal verkefna sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur er að gera við biluð hjól sem þeir senda svo með Rauða krossinum til bágstaddra í öðrum löndum. Svo taka þeir þátt í þróunarverkefni sem kallast „Hög er sú hönd". Það gengur út á að nýta timbur sem til fellurhjá Kópavogsbæ til að smíða og tálga. "V'c IBUÐIR TIL S0LU Á vefsíðu íbúóalánasjóðs, www.ils.is, er að finna ýmsan fróóleik fyrir kaupendur og seljendur fasteigna. Þar eru einnig upplýsingar um fasteignir í eigu íbúóalánasjóðs sem eru til sölu. Borgartúni 21 105 Reykjavík j Sími: 569 6900 • 800 6969 j Fax: 569 6800 j www.ils.is Ibúðalánasjóður ——— i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.