Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 Fókus ÐV Klassík • Hulda Björk Garðars- dóttir sópran og Ólafur Kjartan Sig- urðarson baritón flytja brot af því besta úr smiðju Gershwins ásamt Kurt Kopecky píanóleikara á hádeg- istónleikum í Islensku óperunni. Bla Bla Bla er yfirskrift tónleikanna og flytja þau sönglög og dúetta úr söngleikjum og óperum Gershwin- bræðra, þar á meðal Porgy og Bess, „Oh, Kay“ og Lady, Be Good. Tón- leikarnir hefjast kiukkan 12.15. • Rúnar Óskarsson klannettuleik- ari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Ami Heimir Ingólfs- son píanóleikari flytja verk eftir Mozart, Schumann og fleiri í Salnum, Kópavogi klukkan 20. Kvikmyndir • Kvikmynda- safn fslands sýnir kvikmyndina Nýtt lff eftir Þráin Bertelsson í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, klukkan 20. Fundir og fyrirlestrar •Kristín Astgeirsdóttir sagnfræðing- ur flytur fyrirlestur í Norræna hús- inu klukkan 12.05 í fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Islands, Hvað er (um)heimur? Fyrirlesturinn nefnist: „Þar sem völdin eru, þar eru kon- Þriðjudagsbiljarð Lífið eftir vinnu urnar ekki." Áhrif kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á fslandi. • Ingvill T. Plesner, doktorsnemi við Norsku mannréttindaskrifstof- una, heldur fyrirlestur í Þingvalla- stræti23, stofu 24, klukkan 16.30. Fyrirlesturinn nefnist Trúfrelsi, ríki og kirkja í Evrópu. Þar er velt vöng- um yfir því hvort hægt sé að tryggja trúfrelsi í landi þar sem þjóðkirkju- fyrirkomulagið er við lýði. • Sigríður Hrönn Sigurðardóttir kristniboði segir frá hinni merku konu Madam Guyon, fræðir um kristna íhugun og leiðir viðstaddar inn í hana. Fundurinn er haldinn af KFUK í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg klukkan 20. Sýningar* Sýningin Stefnu- mót við safnara stendur yfir í Gerðubergi. Þar sýna ellefu safnarar á öllum aldri brot af gersemum sín- um. • Bjami Sigurbjömsson og Svava Bjömsdóttir hafa opnað samsýn- ingu á verkum sínum í Listasafninu áAkureyri. • Sigriður Guðný Sverrisdóttir er með málverkasýninguna Gulur, rauður, grænn og blár í Baksalnum í Það er góð þriðjudags- skemmtun að skella sér á eina af fjölmörgum biljarðstofum bæjar- ins. Taktu vini þína með þér og fyrir nokkra hundrað- Jæja kalla er hægt að setja saman mót. Á flestum stofunum eru seldar veitingar þannig að þama er kom- in uppskrift að prýðis- góðu þriðjudagskvöldi. Hádegisverður á Vegamótum Margir eru hrifnir af því að fara út að borða í há- deginu. Ef fólk á leið um miðbæinn um hádeg- isbil er óhætt að mæla með matnum á Vega- mótum. Fjölbreyttur og góður matseðill semalltafgeymir leynda gullmola. Ekki of dýrt heldur og fólk þarf ekki að standa á blístri nema það kjósi svo. Pallborð í Hafnarfirði Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör og námskeiðið - Að njóta leiklistar - á vegum Fé- lags háskólakvenna, halda pallborðsumræð- ur um Icikritið Meistarinn og Margaríta eftir Mikaíl Bulgakov í Hafnarfjarðar- leikhúsinu í kvöld klukkan 20. Fjall- að verður um bókina og hvemig bók verður að leikriti. Við pallborðið sitja Hilmar Jónsson leikstjóri, Hávar Sigur- jónsson, íeikskáld og leikhúsfræðingur, og Ingibjörg Haraldsdóttir þýðandi. Viðar Hreinsson fékk í gær verðlaun fyrir bók sína um Steph- an G. Stephansson. Viðar segist hafa verið í einhverju undar- legu bjartsýniskasti þegar hann byrjaði að skrifa bókina. Heiður og hjálp í líísbaráttunni „Ég var í einhverju undarlegu bjartsýniskasti þegar ég byrjaði að skrifa," segir Viðar Hreinsson sagnfræð- ingur, sem í gær hlaut viðurkenningu Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir tveggja binda verk sitt um Vestur-íslandsskáldið Stephan G. Steph- ansson. Verðlaunin nema 750.000 krónum, en þess má geta að það er sama upphæð og íslensku bókmennta- verðlaunin veita í hvorum flokki fyrir sig. „Ég byrjaði á bókunum fyrir sex árum þegar ég var að kenna íslensku við Manitoba-háskóla í Winnipeg í Kanada. Þar fékk ég tækifæri til að sökkva mér ofan í viðfangsefnið." Kannast Kanadamenn almennt við Stephan? „Allir sem vita að þeir eru af íslenskum ættum kann- ast við nafnið, en kannski ekki meira en það. En húsið hans er friðað, og það stendur á skiltum á öllum hrað- brautum í nágrenninu: „Stephansen House, Historic Site."“ Er stefnt að þvíað gefa bókina út erlendis? „Stephan á erindi til allrar heimsbyggðarinnar. Hann var ekki vælandi ættjarðarskáld, heldur var hann að kveðast á við heiminn allan. Það er stefnt að því að gefa bókina út á ensku og til þess þarf að stytta hana niður í eitt bindi. Heimurinn er ekki auðsigraður. En til þess þarf fé." Mun vinningsupphæðin verða notuð íþað? „Hún fer nú bara í mig sjálfan. Það er dýrt að vera sjálfstætt starfandi fræðimaður." Stephan G. Stephansson fæddist árið 1853 og fluttist vestur tvítugur að aldri. Hann bjó fyrst í Wisconsin og Manitoba, en settist loks að í Alberta árið 1889. Á dag- inn stundaði hann bústörf, eins og flestir samferða- menn hans, en á næturnar orti hann ljóð, sem komu loks út í bókinni Andvökur. Kom þessi hugmynd um að skrifa bók um Stephan til á andvökunóttu? „Nei, andvakan kom ekki fyrr en ég byrjaði að skrifa." Um hvað orti Stephan? Það er auðveldara að svara því um hvað hann orti ekki. Hann var yfirlýstur trúleysingi og átti í útistöðum við presta og íhaldsmenn. Hann var mikið á móti fyrri heimsstyrjöldinni og sá hana á einhvern hátt fyrir. Hann orti einnig mikið af náttúruljóðum, en á hinn bóginn lítið af ástarljóðum." Það var kannski ekki mikill tími til ástarlífs þegar hann var að yrkja allar nætur? Viðar Hreinsson Vinningsupphæðin fer ísjálfan mig. Það erdýrt að vera sjálfstætt starfandi fræðimaður. „Nei, hugsanlega ekki. En hann átti nú samt átta börn, og þar af komust sex á legg." Hvað tákna þessi verðlaun? „Þetta er heiður og hjálp í lífsbaráttunni." George Gershwin samdi söngleiki fyrir bæði Broadway og Hollywood Samlokur og hádegistónleikar í Óperunni „Ja, ég vona allavega að það verði seldar samlokur," segir Hulda Björk Garðarsdóttir um Hádegisóperuna, sem nú er að hefja gang sinn aftur. „Þetta er hugsað fyrir fólk sem hefur tíma til að skreppa í hádeginu og er vel sótt." Sér til halds og trausts hef- ur Hulda Björk Kurt Kopecky, tón- listarstjóra Óperunnar, á píanó nú sem endranær á hádegistónleikun- um, og einnig mun Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón syngja með henni í hádeginu í dag. „Við syngj- um saman og sitt í hvoru lagi í léttri og góðri stemningu," segir Hulda. Tónleikarnir eru haldnir undir yfir- skriftinni Bla Bla Bla, og á efnisskrá eru lög eftir George Gershwin. Hvers vegna eru tónleikarnir nefndir Bla Bla Bla? „Þetta er nafn á lagi eftir Gersh- win, og okkur fannst þetta skemmti- legur titill." George Gershwin samdi söng- leiki fyrir bæði Broadway og Flollywood, en hefur einnig verið talinn í hópi klassískra tónskálda, og jafnvel verið kallaður bandarískur Mozart. Lög hans hafa einnig verið flutt af djasssöngvurum, svo sem Ellu Fitzgerald, og rokksöngkonan Janis Joplin söng lagið Summertime. Er Óperan að reyna að poppa sig upp með þessum hætti? „Ef við viljum tala um einhver mörk er Porgy og Bess (eitt þekktasta verk Gershwins) ópera, en þótt við séum óperusöngvarar reyn- um við að fara út fyrir þau mörk. Ég er á því að það sé gott að flytja fleira en bara háklassísk verk í Óperunni. Þessi verk eru úr söngleikjum og eru samin með svið í huga, en þetta verða fyrst og fremst tónleikar." Verðið þið í einhverjum búning- um? „Við verðum bara smekklega klædd." íslenska óperan skrifaði undir samstarfssamning við Mastercard í gær, en fyrirtæki hafa í auknum mæli sóst eftir að styrkja einstök verkefni frekar en að vera með föst framlög til Óperunnar. Er þetta talið auka sýnileika þeirra, jafnframt því sem þetta hjálpar Óperunni við að skipuleggja starf sitt fyrirfram. Tón- leikarnir hefjast klulckan 12.15. Hádegisóperan Snýraftur eftir hlé. DV-Mynd GVA GallerfiFold, Rauðarárstíg 14-16. Sýningin standur til 1. febrúar • Sýning Ólafc Elíassonar, Frost Actívity, stendur eins og kunnugt er yflr í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar- húsinu. Japanskar myndir Þeir sem hafa horft á Tom Cruise japanast í The Last Samurai eru ef til vill forvitnir um hvernig alvöru Japanar gera þetta. Það er því óhætt að mæla með myndum Akira Kurosawa, en myndir hans hafa verið staðfærðar í Villta vestrið (A Fistful of Dollars), út í geim (Star Wars), og til Islands á vtkingaöld (Hrafninn flýgur). Nú er hægt að sjá myndir hans á Hvíta tjaldinu, en vorönnin í Kvikmyndasafni íslands í Hafnarfirði er tileinkuð japönsk- um myndum. Fyrsta myndin, Yojimbo eða LífVörðurinn, var sýnd í síðustu viku, en myndirnar eru sýndar á þriðjudögum klukkan 20 og á laugardögum klukkan 16. Inn á milli öskurreiðra Asíubúa að höggva hver annan með samúræjasverðum má lfka sjá fjandvinina Þór og Danna klekkja hvor á öðrum með öllu íslenskari brögðum, því hinar klassísku lífs-myndir Þráins Bertels- sonar verða líka sýndar á vorönn. Einnig verða sýndar myndir frá öðr- um löndum utan hins engilsax- neska heims sem sjaldan rata hér í bíóhús. Gott paunk Bloggari að nafni Raskat segir frá því besta við Reykjavík: „Ég mæli með hamborgara á Grillkofan- um í Grafarholti, morfínsprautu á karlaklósettinu á Hlemmi, Metal- mania í Hinu húsinu 5. febrúar, pönnuköku á Kaffivagninum, fata- verslun Hjálpræðishersins í Garða- stræti, mótmælum við Stjórnarráð- ið, að pissa á Valhöll og síðast en ekki síst mæli ég með góðu paunki hvar og hvenær sem er.“ Þá er bara að hefjast handa. http://www.kan- inka.net/raskat/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.