Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Blaðsíða 23

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Blaðsíða 23
TlMARIT VFl 1955 5 Dettifoss. Þessir menn nefna oft Áburðarverksmiðjuna h.f., sem sönnun þess, að við Islendingar getum sjálfir byggt upp stóriðnað. Ef fjárhagshlið verksmiðjunnar er athuguð, kemur í ljós, að hún er fremur sönnun hins gagnstæða. Mikill hluti af þvi erlenda f jármagni, sem fékkst til verk- smiðjunnar, var framlag frá Marshallaðstoðinni. Án þess framlags er mjög ólíklegt, að við hefðum getað byggt verksmiðjuna. Ekki er hægt að búast við sliku í fram- tíðinni Einnig má benda á, hve erfitt hefir reynzt að fá lán til sementsverksmiðjunnar, sem þó er tiltölulega lítið fyrirtæki og arðvænlegt. Virkjun stórvatna. Sagan er ekki öll sögð. Undirstöðuskilyrði fyrir stór- 'ðnaði er ódýr og stöðug raforka. Samkeppisfæra raf- °rku til stóriðnaðar er varla hægt að framleiða hér á landi nema með því að virkja allstórt, til dæmis 150 til 200 þús. kw, í okkar beztu fallvötnum. 1 fljótu bragði virðist helzt koma til greina að virkja í Þjórsá eða Jökulsá á Fjöllum. Ekki virðist líklegt að orkan yrði eins ódýr og til dæmis í Noregi og Kanada. Stafar það emkum af því, að ár þær, sem til greina koma, eiga ekki upptök sin í stöðuvötnum, sem gefa miðlun, og fallhæðir eru hér yfirleitt lágar. Slík virkjun mundi kosta 450 til 600 milljónir króna að minnsta kosti. Sá stóriðnaður, sem væri nauðsynlegur til að nýta slíka orku, mundi kosta enn meira. Að visu er satt, að Áburðarverksmiðjan h.f. fær ódýra orku frá Soginu. Yfir 80% af orkunotkun verksmiðjunnar er ódýr afgangsorka, sem Sogsvirkjunin getur takmark- að tvisvar á dag, ef þörf krefur. Þegar í vetur lítur út fyrir að þetta verði gert til hlítar. Slíkt er eðlilega mjög kostnaðarsamt fyrir verksmiðjuna og væri af tekniskum ástæðum útilokað fyrir flestan stóriðnað. Stóriðnað er alls ekki hægt að byggja á afgangsorku. Hann verður að hafa næga, ódýra og stöðuga orku. Sumum kann að virðast sem ég lýsi hér með óþarfa svartsýni getu okkar Islendinga. Slíkt er ekki ætlun mín, enda hygg ég, að sú mynd, sem ég hef dregið upp, mundi virðast raunhæf, ef hún er skoðuð í ljósi þeirra stað- reynda, að við Islendingar erum aðeins 150 þúsund í stóru landi og viljum byggja upp iðnað, sem kostar hundr- uð eða jafnvel þúsundir milljóna, ef hann á að vera af þeirri stærð, sem nú er talið nauðsynlegt til að hann sé samkeppnisfær á heimsmarkaðinum. Mér virðist ekki eftir neinu að bíða. Ég er jafnvel þeirrar skoðunar, að slíkt geti verið mjög skaðlegt, þvi að þau auðævi, sem nú renna til sjávar daglega í fall- vötnum okkar, geti fallið mjög i verðmæti innan tiltölu- lega skamms tíma. Einkum óttast ég, að samkeppni við aðrar orkulindir, eins og til dæmis atomorkuna geti orðið okkur erfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.