Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Týndurfor-
setafram-
bjóðandi
Rússneski forsetafram-
bjóðandinn Ivan Rybkin
hefur verið lýstur týndur af
fjölskyldu sinni og vinum.
Rybkin hefur ekki sést síðan
á fimmtudagsmorgni. Fram-
boð hans er stutt af millj-
ónamæringnum Boris Bere-
zovsky, sem er í sjálfskipaðri
útlegð. Rybkin hefur verið
óspar á gagnrýni á Vladimír
Pútín forseta, sem sækist
eftir endurkjöri. Talsmaður
Rybkins lýsti því yfir, eftir að
lögregla hóf leit að honum,
að engin ástæða væri til að
telja að hann hefði verið
numinn á brott. Hann er
ekki talinn sigurstrangleg-
astur af sex mótframbjóð-
endum Pútíns og hefur að-
eins um eins prósents
stuðning í skoðanakönnun-
um.
Milljón í sekt
fyrirfokk-
merki
Bandaríski ferðamaður-
inn Douglas Alan Skolnick
hefur verið sektaður um
rúma milljón króna fyrir að
sýna yfirvöldum í Brasilíu
vanvirðingu þegar taka átti
fingraför og ljósmynd af
honum við komuna til
landsins á föstudaginn,
samkvæmt nýjum lögum.
Brasilíumenn settu lög í jan-
úar þess efnis að allir ferða-
menn frá Bandaríkjunum
ættu að vera ljósmyndaðir
og tekin af þeim flngraför
við komuna til landsins, til
að svara sambærilegum lög-
um um Brasilíumenn í
Bandaríkjunum. Skolnick
var fangelsaður fyrir að gefa
„fokkmerki" þegar tekin var
mynd af honum. „Ég er
bandarískur borgari. Ég er
ekki api,“ sagði Skolnick við
brasilíska blaðamenn þegar
hann var fangelsaður.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða.
„Það hefur lengi vantað gott
hótel i miðbæ Reykjavíkur og
þess vegna keypti ég Eim-
skipaféiagshúsið, sem er mjög
hentugt. Það sem réð úrslitum
er að húsið er einstakt og
staðsetningin mjög góð,“segir
Hvað liggur á?
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, sem bráðiega
hefst handa við að innrétta
fjögurra stjarna hótel í húsinu.
„Það er mikil eftirspurn eftir
góðu hóteli í miðbænum fyrir
ferðamenn sem hingað koma.
Það verður farið afstað með
vinnu við hótelið í byrjun
næsta mánaðar og ætlunin er
að það verði tilbúið vorið
2005," segir Andri, sem stend-
ur einn að kaupunum. „Það
hefur verið mér farsælast i
gegnum árin," segir hann.
íslendingurinn Tómas Þórðarson hefur verið valinn til að flytja danska lagið í
Eurovision-keppninni sem haldin verður í Istanbul í Tyrklandi 15. maí næstkom-
andi. Tómas er meðvitaður um íslenskan uppruna sinn og fer ekki leynt með
hann. Hann er stoltur af því blóði sem rennur 1 æðum hans og elskar Landmanna-
laugar umfram aðra staði í heiminum.
Söng fyrir manninn sinn og
elskar Landmannalaugar
„Ég ætla að syngja líka fyrir íslendinga í hjarta
mínu. I æðum mínum rennur íslenskt blóð að
hálfu og ég þekki uppruna minn," segir Tómas
Þórðarson, sem sigraði í dönsku úrslitakeppninni
vegna Eurovision-keppninnar sem haldin verður
í Tyrklandi 15. maí næstkomandi. Tómas söng
lagið Det ik’ lögn sem þýða mætti Þetta er ekki
lygi. Höfundur lagsins, Ivar Lind Greiner, er
þekktur í Danmörku fyrir lagasmíðar sínar. Eigin-
kona Ivars var að baka pönnukökur síðdegis í gær
í tilefni af sigri Tómasar og eiginmanns síns:
„Tómas er fínn náungi og veit vel af íslenskum
uppruna sínum," segir hún.
Tómas er 29 ára gamall og er sonur Þórðar
Hjörvarssonar, sem búið hefur í Danmörku í 36
ár. Þórður og dönsk móðir Tómasar báru ekki
gæfu til að búa saman og skildu leiðir þegar
Tómas var enn barn að aldri. Þórður hefur unnið
við vegagerð í Danmörku og unað hag sínum þar
vel:
„Pabbi kom hingað út og hitti mömmu og úr
varð ég,“ segir Tómas á ágætri íslensku sem hann
hefur haldið við með aðdáunarverðum árangri.
Skilur hana vel þó ekki tali hann hana reiprenn-
andi. „Ég á fullt af skyldfólki á íslandi og hef kom-
ið fjórum sinnum til landsins. Nú síðast um jól-
in.“
Tómas er atvinnumaður í tónlist og söng-
urinn er hans lifibrauð. Hann hefur tekið
þátt í mörgum söngvakeppnum í
heimalandi sfnu og náð ágætum ár-
angri: „En þetta er toppurinn. Að fá
að syngja fyrir hönd dönsku þjóð-
arinnar í Eurovision er frábært.
Algjört æði. Ég hef aldrei verið
ánægðari en í dag,“ segir Tómas,
sem þekkir ágætlega til í íslenskri
tónlist og er með nöfn íslenskra
tónlistarmanna á hraðbergi þeg-
ar að er spurt. „Þó er ég mest fyr-
ir Björk og þekki tónlist hennar
best," segir hann.
Tómas er samkynhneigður og býr
ásamt eiginmanni sínum, Kenneth Christiansen,
á Nörrebro í Kaupmannahöfn. Þar ala þeir í sam-
einingu upp fósturbarn og njóta fjölskyldulífsins
út í æsar. Kenneth var einmitt í bakraddakórnum
sem studdi við bakið á Tómasi þegar hann söng
sig til sigurs í undankeppni Eurovision í Árósum
um helgina: „Ég söng lagið fyrir Kenneth," sagði
Tómas í samtali við danska Ekstrablaðið eftir að
sigurinn var í höfn. Tómas er ekki eingöngu sigur-
vegari; hann er líka og ekki síður ástfanginn: „Það
skilar sér alltaf í söngnum," segir hann.
Tómas hefur víða farið um Island á ferðum
sínum hér á landi þó hann þekki Reykjavík ef til
vill best: „Uppáhaldsstaðurinn minn er Land-
mannalaugar og þangað ætla ég örugglega
að koma aftur sem fyrst. Fegurðin þar er
ólýsanleg," segir hann. „Ég er stoltur af
því að vera Islendingur og reyni að
koma þvf að hvenær sem færi gefst. Það
á ég líka eftir að gera á sviðinu
Eurovisionkeppninni í Istanbul í maí.“
Tómas Þórðarson Tómas ersamkyn-
hneigður og býr ásamt eiginmanni sin-
um, Kenneth Christiansen, á Nör-
rebro i Kaupmanna-
höfn. Þar ala þeir i
sameiningu upp
fósturbarn og
njóta fjölskyldu-
lifsins út i æsar.
Kenneth, maður
Tómasar, var í
bakradda-
kórnum sem
studdi við
bakið á
Tómasi þeg-
ar hann söng
sig tilsigursí
undankeppni
Eurovision í Ár-
ósum um helg-
ina.
,
Tómas á stóra fjölskyldu á íslandi og endurnýjaði kynnin fyrir fimm árum
Fjölskylda Tómasar stolt af honum
Tómas endurnýjaði kynninn við
stóra fjölskyldu sína á Islandi fyrir
um fimm árum síðan, eftir um tutt-
ugu ára hlé. Hann á hálfbróður hér á
landi, Þröst, sem á fimm börn með
konu sinni, Sigrúnu Waage. Þau
heita Kristján Freyr, Smári, Oddur
Þór, Þórður og Særós. Svo má ekki
gleyma ömmunni, henni Fiddí, sem
fylgdist mjög spennt með sigri
Tómasar ásamt öðrum fjölskyldu-
meðlimum í gegnum gervihnatta-
disk á laugardagskvöldið.
Ekki náðist samband við Þröst
sjálfan í gær, en fyrir svörum varð
eiginkona hans, Sigrún.
„Hann stóð sig frábærlega, við
vissum það svo sem fyrir fram, hann
hefursýnt það."
Tómas var á íslandi um jólin hjá
bróður sínum, ásamt Kenneth,
manninum sínum.
„Þá var hann einmitt að undir-
búa sig fyrir keppnina. Síðan leiðir
okkar lágu saman aftur hafa tengslin
styrkst mikið, og nú er þetta eins og
við höfum alltaf verið bestu vinir,“
segir Sigrún.
„Við erum mjög stolt af honum.
Þetta er frábær strákur, ofsalega
góður og mjög heill persónuleiki. Og
okkur leist mjög vel á kærastann."
Sigrún segir að Tómas og Kenneth
hafi sýnt mikinn áhuga á íslandi, og
fjölskyldan haft ferðast með þá víða
um landið.
„Hann kom hingað þegar hann
var tólf ára og var hjá vinafólki
pabba hans. Þau töluðu bara ís-
lensku við hann, og þar með lærði
hann hana. Hann talar ótrúlega
góða íslensku í dag, og mamma
hans hefur lagt sig mikið fram við að
hjálpa honum að halda henni við,“
segir Sigrún. Hún segir synd að ís-
lendingar hafi ekki heyrt meira í
Tómasi, en þó tók hann eina syrpu
með Geir Ólafssyni eina kvöldstund
á veitingahúsi eitt sinn þegar hann
var staddur í Reykjavík.
Tómas þykir nokkuð líkur bróður
sínum, en enginn af íslenskum ætt-
ingjum hans hefur þó lagt tónlistina
fyrir sig.
Það er ekki vandamál fyrir fjöl-
skylduna að ákveða með hverjum á
að halda á Eurovision-keppninni
sjálfri, sem fer fram í Tyrklandi.
„Við erum nú að velta fyrir okkur
að fara á keppnina sjálfa í Tyrklandi,
en hún lendir einmitt á afmælisdegi
Þrastar, þann 15. maí. Við ætlum
auðvitað að halda með Tómasi, það
ér nú ekki annað hægt!" segir Sig-
rún, og líklega munu hjörtu allra ís-
lendinga slá með Tómasi í keppn-
inni, þótt við höldum auðvitað líka
með okkar eigin fulltrúa. Það er nú
ekki annað hægt!
Geir Ólafsson
Tómas tók lagið með
Geir þegar hann var
hér á landi i heim-
sókn hjá ættingjum.